Bændablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 6
6 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Málgagn bænda og landsbyggðar
LOKAORÐIN
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 6.200 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.100.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0332 Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is
Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
Hart vor
„Tækifærin eru
gríðarleg"
LEIÐARINN
Mannkynið verður að fara að
hugsa í heildrænum lausnum til
að tryggja fæðuöryggi til fram-
búðar. Íslenskum bændum getur
gagnast þessi nýi hugsanaháttur á
margvíslegan hátt, sérstaklega ef
yfirvöld styðja þá af fullum hug,
að sögn breska verkfræðingsins
Peter Head, sem kom hingað til
lands nýverið.
„Íslendingar búa við öruggt
framboð af orku og í henni felast
gríðarleg efnahagsleg tækifæri sem
geta gagnast stórum hluta heims-
ins. Hér er til dæmis hægt að rækta
grænmeti og ávexti til útflutnings
og fæða þannig stóran hluta Evrópu.
Tækifærin eru gríðarleg. Ísland getur
stefnt að því að komast í röð helstu
grænmetisframleiðenda Evrópu og
flutt ávexti og grænmeti út í stórum
stíl,“ sagði Peter Head í viðtali í
síðasta Bændablaði.
Peter er byggingarverkfræðingur
og framkvæmdastjóri Arup verk-
fræðistofunnar í London, sem meðal
annars hannaði óperuhúsið í Sydney
í Ástralíu. Hann vinnur nú við að
aðstoða Kínverja við að finna lausnir
á hvernig þeir geti brauðfætt sig
sjálfir á því stöðugt minna landrými
sem í boði er til ræktunar. Hann segir
að styrkur Íslands þegar kemur að
gróðurhúsaræktun felist að stórum
hluta í öruggu og stöðugu framboði
á orku, því önnur lönd, sem eru að
reyna að hasla sér völl sem stórir
grænmetisframleiðendur, svo sem
Kína, búi ekki við sama orkuöryggi.
Peter segir að það sem þurfi til að
gera þetta að veruleika á Íslandi sé
vilji, samvinna og sterk áætlun og
framtíðarsýn.
„Þessu fylgir auðvitað líka gríð-
arleg atvinnusköpun, en til þess að
úr slíkum áformum verði þarf vilja-
styrk og stuðning yfirvalda, og fjár-
hagsútlát í upphafi. En því má ekki
gleyma að hér erum við að tala um
mikla fjárfestingu í framtíð lands-
manna.“
Oft er sagt að glöggt sé gests
augað og Peter sér hið augljósa
tækifæri sem Íslendingar hafa í
höndunum umfram aðrar þjóðir.
Tækifæri sem Bændasamtök Íslands
hafa m.a. verið að reyna að opna
augu Íslendinga fyrir.
Hér höfum við flest sem til þarf.
Nægt landrými, yfirburðastöðu í
sjálfbærri orkuframleiðslu og mikla
þekkingu á ræktun og matvælafram-
leiðslu við þær aðstæður sem hér
eru. Okkur ber skylda til sem þjóð
að hagnýta þessa kosti eins vel og
mögulegt er, þá mun okkur farnast
vel. /HKr.
Eldgos hófst í Grímsvötnum að
kvöldi laugardagsins 21. maí Þegar
þetta er skrifað er gosið í rénun
og erfitt að segja til um hversu
umfangsmikið tjón af völdum
þess hefur orðið. Þó er þegar ljóst
að það kann að verða þó nokkuð.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
frá 23. maí sl. kemur fram að hún
muni næstu daga meta afleiðingar
eldgossins með fjölmörgum sér-
fræðingum og hagsmunaaðilum
og í framhaldinu taka ákvarðarnir
um nauðsynleg viðbrögð. Að svo
stöddu liggur ekkert fyrir um með
hvaða hætti Bjargráðasjóður og
Viðlagatrygging munu koma að
mati á tjóni bænda og greiðslu
bóta.
Eftir sem áður er mikilvægt að
þeir bændur sem telja sig hafa orðið
fyrir tjóni af völdum eldgossins,
haldi skrá yfir tjónið og taki ljós-
myndir ef hægt er, á hverri stundu,
með eins ítarlegum hætti og mögu-
legt er. Einnig er mikilvægt að gripið
verði til allra þeirra ráðstafana sem
eru til þess fallnar að takmarka tjón
sem orðið hefur eða afstýra því.
Jafnframt að haldin verði skrá yfir
slíkar ráðstafanir. Þá eru bændur
hvattir til þess að hafa samband
við viðkomandi ráðunauta að því er
varðar hugsanlegt tjón og ráðstafanir
til varnar tjóni.
Viðlagatrygging Íslands
Hlutverk Viðlagatryggingar Íslands
er að vátryggja gegn tjóni af völdum
náttúruhamfara, þ.m.t. eldgosa og
vatnsflóða.
Með eldgosi er átt við hraun eða
gjósku sem veldur skemmdum eða
eyðileggingu á vátryggðum munum
og með vatnsflóði er átt við flóð,
er verður þegar ár eða lækir flæða
skyndilega yfir bakka sína og valda
skemmdum eða eyðileggingu á
vátryggðum munum.
Vátryggðir munir eru m.a. hús-
eignir og lausafé sem er brunatryggt
hjá vátryggingafélagi en einnig nær
vátryggingarskyldan til lausafjár sem
tryggt er almennri samsettri vátrygg-
ingu er innifelur brunatryggingu.
Mikilvægt er að aðilar sem telja
sig hafa orðið fyrir tjóni á vátryggð-
um munum af ofangreindum völd-
um hafi tafarlaust samband við
Viðlagatryggingu Íslands eða við-
komandi vátryggingafélag sem seldi
vátrygginguna eða umboðsmenn
þess. Í kjölfarið veita starfsmenn
viðkomandi aðila upplýsingar um
næstu skref og senda eftir atvikum
matsmann á staðinn til þess að meta
tjónið.
Bjargráðasjóður
Bjargráðasjóður veitir einstaklingum
og félögum fjárhagsaðstoð til að bæta
bein tiltekin tjón af völdum náttúru-
hamfara. Meðal annars getur verið
um að ræða tjón á girðingum, túnum
og rafmagnslínum er tengjast land-
búnaði og á heyi sem notað er við
landbúnaðarframleiðslu. Þá getur
verið um að ræða tjón á búfé, afurð-
um búfjár og uppskerutjón vegna
sjúkdóma, óvenjulegs veðufars og
slysa. Fjárhagsaðstoð sjóðsins er
fólgin í veitingu styrkja sem stjórn
sjóðsins ákveður hverju sinni í sam-
ræmi við fjárhag og stöðu sjóðsins.
Forsenda styrkveitinga úr sjóðnum
er að skil hafi verið gerð á búnaðar-
gjaldi í samræmi við ákvæði laga nr.
84/1997 um búnaðargjald.
Tjón sem nýtur almennrar trygg-
ingaverndar eða hægt er að fá bætt
með öðrum hætti, sbr. ákvæði laga
um Viðlagatryggingu Íslands, eru
ekki bætt af Bjargráðasjóði.
Tjón af völdum eldgoss - fyrstu viðbrögð
Sjaldan á seinni árum hafa bændur þurft að
reyna jafnmikla erfiðleika í búskap og und-
anfarna daga. Ekki þarf að rifja upp glímu
bænda við náttúruöflin í fyrravor þegar
Eyjafjallajökull spjó ösku yfir nálægar sveitir.
Nú eru það Grímsvötn sem gera landsmönnum
bilt við og kuldakast á Norður- og Austurlandi
er ekki síður alvarlegt fyrir búskapinn.
Á undanförnum dögum hafa sauðfjárbændur
þurft að leggja á sig mikið erfiði á sauðburði. Alla
jafna er sauðburðarvinna, við venjulegar aðstæður,
verulegt álag. En þegar við bætist að takast á við
náttúruhamfarir og harðindi, verður vinnan erfið.
Eftir gosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess
vonuðust landsmenn eftir betri tíð. Þess vegna
var kvöldfréttatíminn laugardaginn 21. maí eins
og slæmur draumur – aftur var farið að gjósa!
Krafturinn í gosinu og askan lét ekki á sér standa.
Nú helltist aska yfir marga bæi í annað sinn á
stuttum tíma í byrjun gróanda og á sauðburði.
Á sömu dögum er hríðarveður norðanlands og
austan. Lambfé allt á húsi, snjór og jafnvel ófærð.
Ekki möguleiki á að setja út fé með tilheyrandi
vinnu í fjárhúsum og mjólkurbílar lenda í ófærð
við mjólkursöfnun. Kannski ekki algjörlega fram-
andi aðstæður.
Bú hafa stækkað en fólki fækkað
Líf bóndans og starf er sannarlega ekki létt um
þessar mundir. Bændur mega búast við verstu
áföllum og eru sannarlega margir í næsta óhugs-
andi aðstæðum. Bú hafa stækkað en fólki við
búskap fækkað. Mjög margir bændur búa stórum
búum og ætla sér að komast yfir mikla vinnu.
Stækkun búa og fækkun í sveitum á þá skuggahlið
að þegar á bjátar eru erfiðleikarnir oft óyfirstígan-
legir. Stór sauðfjárbú eru rekin á lágmarksmann-
skap en sem betur fer hefur tækni við fóðrun og
hirðingu, ný fjárhús og endurbætt eldri hús, létt
vinnuna.
Þó það sé vart viðeigandi við jafn fordæma-
lausar aðstæður og nú, að nefna allan kostnaðar-
auka vegna ástandsins og hækkandi kostnaðar
vegna áburðarkaupa og annarra aðfanga. Búskapur
hefur ekki í neinn uppsafnaðan hagnað að sækja
til að mæta slíku árferði sem nú er.
Ferðaþjónusta mikilvæg búgrein
Ferðaþjónusta bænda er mikilvæg búgrein á
áhrifasvæði gossins og hagsmunir þar miklir.
Ljóst er að þegar hefur orðið alvarlegt tjón þeirra
aðila og ekki síður nauðsynlegt að horfa til þeirra
með stuðning í huga. Líkt og sagt er frá á öðrum
stað í Bændablaðinu fékk Ferðaþjónusta bænda hf.
Útflutningsverðlaun forseta Íslands. Ferðaþjónusta
bænda hefur verið ein besta búháttabreyting und-
anfarinna áratuga og skotið styrkari stoðum undir
byggð og afkomu. Vonandi verða ferðaþjónustu-
bændur og allir aðrir bændur fljótir að komast á
beinu brautina eftir hið snarpa Grímsvatnagos.
Skuldamál
Frá því fyrir hrun, þegar gengi krónunnar tók að
falla, hefur verið unnið að sérstakri fjármálaráð-
gjöf hjá skuldsettum bændum. Búnaðarþing hefur í
tvígang látið skuldaúrlausnamál til sín taka og áður
hafa verið reifuð hér sjónarmið Bændasamtakanna
og sagt frá því starfi sem ráðunautar búnaðarsam-
banda og fleiri hafa unnið með bændum. Því miður
gengur illa, hægt og stirðlega að koma almennilega
fyrir vind þeim lausnum sem kynntar hafa verið.
Margt hefur tafið fyrir eins og dómar um lögmæti
erlendra lána. Vantraust er hjá neytendum gagn-
vart lánastofnunum, úrlausnarleiðir eru flóknar
og ekki alltaf augljóst hvort verið sé að reyna
að leysa mál til lengri tíma. Bændur eru eins og
önnur fyrirtæki og heimili sem enn þurfa að kljást
við óljósa framtíð.
Stjórnvöld hafa ekki verið nógu vel skipu-
lögð né drífandi við að setja lánastofnunum skýrt
aðhald. Þetta verður betur skiljanlegt þegar skýrsla
fjármálaráðherra um endurreisn bankanna er lesin.
Það á eftir að útskýra og rökstyðja, svo allir geti
skilið, hvernig það mátti verða að lán sem voru í
raun niðurfærð og leiðrétt skili sér ekki til flestra.
Hvers vegna er betra að láta banka vinna sér inn
nýtt eigið fé, hagnað, með því að ganga á greiðslu-
vilja eða greiðslugetu til hins ítrasta?
/HB