Bændablaðið - 26.05.2011, Side 8

Bændablaðið - 26.05.2011, Side 8
8 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Fréttir Þær hörmungar og búsifjar sem bændur á gossvæðinu í kringum Grímsvötn og víðar mega þola vegna gossins í Grímsvötnum bitna ekki einungis á mönnum dýrum og gróðri. Huga þarf sérstaklega að öllum vélum við þessar aðstæður. Af þessu tilefni hefur Guðmundur Sigurðsson, verkstæðisformaður og þjónustustjóri Vélfangs tekið saman lista yfir þau atriði sem sérstaklega ber að hyggja að við þessar aðstæður. Öskufall á dráttar- og vinnuvélar Hér eru nokkur atriði sem þarf að huga að vegna fínnar ösku eins og nú leggst yfir Suðurland. Þessi örfína aska er engum holl. Hér kemur smá listi yfir þá hluti sem vert er að hafa í huga og geta forðað frekara tjóni. 1. Loftsíur Vélin notar óhemju mikið loft (meðal dráttavél notar 3-8 m3 á mínútu). Þess vegna er mjög mikil- vægt að loftsíur fyrir mótorinn séu í góðu lagi. Ytri loftsíuna ætti að taka úr og hrista reglulega úr henni með því að slá henni t.d. utan í dekkið. Ef blásið er úr henni ber að forðast að vera með mjög öflugan blástur of nálægt síunni, of kraftmikill blástur rífur upp síuna og gerir hana grófari. Fyrir innan aðalsíuna er oft lítil sía sem er öryggissía til þess að vernda mótorinn ef ytri sían gefur sig eða eitthvað kemst framhjá henni eða í gegnum hana. Margar vélar eru með forsíur sem annaðhvort eru við loftinntak eða í endanum á síuhúsinu. 2. Miðstöðvarloftsíur Loftsíur fyrir miðstöðvar eru mjög mikilvægar en vilja oft gleymast. Þær eru til að tryggja hreint loft fyrir ökumanninn og því áríðandi að þær séu í lagi. Þær vernda líka mjög fín- gerð miðstöðvarelement fyrir því að stíflast og hlífa legum og fóðringum í miðstöðvarmótor. Sumir vélafram- leiðendur bjóða eiturefnasíur fyrir miðstöðvar sem sía enn betur heldur en venjulegar síur. 3. Smurolía Mjög mikilvægt er að fylgjast með smurolíunni. Þegar loftsía er óhrein verður undirþrýstingur vélinni meiri en ella. Það orsakar meiri brennslu af smurolíu sem sogast upp með stimpilhringjum, niður með ventl- um og innúr túrbínu. Við þessar aðstæður getur líka sogast innum opna öndun á mótor sem verður til þess að smurolían fær í sig ösku og skemmist. 4. Hráolíusíur Hráolíukerfi í dag eru orðin mun við- kvæmari heldur en þau voru, spíssar mun háþrýstari með fínni bunum og mjög nákvæmum rafstýribúnaði. Þetta kallar á fínni og betri síur sem nauðsynlegt er að skipta um reglulega. Askan smýgur inn á ólík- legustu stöðum og er hráolíutankur þar engin undantekning. Öndun á hráolíutönkum er í gegnum áfyll- ingartappa eða sér öndunarrör uppúr tanknum, þar eru möguleikar á að askan komist inn. 5. Kælikerfi Kælivatn er í flestum nýrri vélum í ágætlega lokuðum kerfum og ætti ekki að vera í mikilli hættu. En í sumum vélum getur aska sogast inní kælivatnið þegar vélin kólnar og þrýstingur fellur á vatnskerfinu. Kæliviftan flytur mikið magn af lofti í gegnum vatnskassa, vökva- kæla, loftkælingarkæli, millikæli fyrir mótor, hráolíukæli o.s.frv. Askan sest í kælana og þéttist mjög þegar rakt loft kemur í hana því er mikilvægt að blása úr kælunum og halda þeim hreinum. 6. Vökvakerfi Vökvakerfi eru oft sambyggð gír- kössum. Vélar sem útbúnar eru öndunarsíum á vökvakerfistönkum eða gírkössum eru betur í stakk búnar til að hreinsa loft sem kemur inná tankana í hitabreytingum eða þegar mikið er tekið af olíu af tankinum í einu (t.d. sturtuvagn o.þ.h.) Þar sem ekki er öndunarsía er loft oft dregið inn með olíukvarða eða lofttappa án síu. Þá er hætta á að sogist inn aska sem skemmir olíuna. 7. Askan Ný aska er með skarpar og beittar brúnir, því slítur hún þeim hlutum mikið sem hún nær að nuddast við, t.d. inní mótorum, túrbínum, gír- kössum og vökvakerfum. Ef aska liggur á lakki þá bítur hún sig í lakkið og á auðvelt með að rispa það sé hún þurrkuð eða teiknaðar myndir o.þ.h. Hún skemmir rúður auðveldlega ef rúðuþurrkur not- aðar. Best er ef askan fýkur af eða er skoluð af með köldu vatni án þess að kústa hana. Meðferð dráttavéla í gosösku: Mikilvægt að fylgjast vel með síum og kælikerfi Við þær sérstöku aðstæður sem hafa skapast undanfarna daga vegna snjókomu á N-Austurlandi og öskufalls í Skaftafellssýslum hafa margir sauðfjárbændur þurft að halda fé inni óvenju lengi eða taka á hús, Rétt er að huga að ýmsum vandamálum sem af þessu geta hlotist. Hníslasótt Lömb sem eru í þröngum hólfum eða þröngum stíum inni geta smitast af hníslasótt. Henni veldur einfrumung- urinn Eimeria, sem skilst út með saur og smitar lömbin þannig. Einkennin koma fram í 4-6 vikna lömbum. Þau verða dauf, lystarlaus, þrífast ekki, fá skitu og tapa við það miklum vökva. Skitan er daunill og dökkleit vegna blæðinga í görnunum. Lömbin eru kvalin og kveina gjarnan þega skitan rennur frá þeim. Engin fyrirbyggjandi lyf eru skráð fyrir sauðfé. Súlfalyf verka ágætlega á sjúkdóminn en þau eru ekki heldur skráð fyrir sauðfé. Dýralæknar geta útvegað töflur sem má gefa með vissum skilyrðum. Ormasmit Eins og með hníslasóttina magnast ormasmit við þrengsli og á þröngu landi. Það er því mikilvægt að gefa ormalyf áður en fé fer í sumarhaga. Selen- E-vítamínskortur, stíuskjögur Það er þekkt að lömb sem eru höfð lengi inni geta fengið stíuskjögur, sem er E-vítamín- og selenskortur. Lömbin verða stirð í gangi og leggj- ast jafnvel flöt. Getur komið fram í þriflegum lömbum þegar þau koma út. Mælt er með að lömb séu sprautuð með selen og E-vítamíni áður en þeim er sleppt út. Það getur líka verið ástæða til þess að sprauta ærnar og gemlinga. Á öskufallsvæðum 2010 og 2011 getur verið rétt að sprauta hryssur, tryppi og folöld með selen- og E-vítamíni. Geldneytin gæti líka þurft að sprauta, ef ekki hafa verið settir í þau stautar. Hafið samráð við dýralækna um hvernig best væri að standa að þessu. Einnig skal bent á að nú fást sérstakir steinefnastampar sem innihalda mikið Selen-Evítamín en lítið járn, þessir stampar eru gerðir sérstaklega fyrir gossvæðin. Athugið að sauðfé þolir mjög illa ofskömmtun kopars, veljið því alltaf koparsnauð steinefni fyrir sauðféð. Garnapest, flosnýrnaveiki Ef bólusetning með bóluefni gegn pestarsýklum (Clostridium) hefur verið vanrækt geta slíkar sýkingar blossað upp við snöggar fóður- breytingar þegar kindurnar koma út. Falleg lömb bráðveikjast og drepast á stuttum tíma úr flosnýrnaveiki. Skrokkurinn bólgnar fljótt upp, blánar og verður illa lyktandi. Leitið ráða hjá dýralækni. Júgurbólga Huga þarf vel að því hvort ærnar hafa fengið júgurbólgu vegna innistöð- unnar. Lömbin ganga hart að ánum í þrengslunum, stela og særa spena. Alltaf verða einhver óhreinindi þegar féð er mjög margt saman og smitá- lagið verður smám saman mikið. Hreinsun á augum á öskusvæðum. Þar sem öskufall hefur verið mest getur þurft að hreinsa augu kinda og hrossa. Best er að nota úðabrúsa og hreint vatn til að þvo augun. Askan er líka undir augnlokum svo það þarf að reyna að hreinsa þar líka. Þorsteinn Ólafsson, sérgreinadýralæknir hjá MAST Það sem helst ber að varast þegar illa vorar á búfé Grímsvötn í Vatnajökli, austur af Grímsfjalli, er virkasta eldstöð landsins og er talið að þar hafi gosið oftar en hundrað sinnum frá landnámi – þar af þrettán sinnum síðan frá 1902. Á þessari öld gaus síðast 2004 og svo hófst sem kunn- ugt er gos þann 21. maí sl. Eldstöð Grímsvatna er um 100 km löng og 15 km breið. Talið er að gosið nú sé það stærsta í 100 ár og svipi til gossins 1873. Gosmökkurinn náði í byrjun um 15-18 km hæð sem þýðir að það er um tíu sinnum öflugra en síðasta gos. Grímsvatnagos fara í gegnum fasa- tímabil þar sem þau gjósa á 60-80 ára tímabili og svo koma álíka löng róleg tímabil. Gosið nú virðist í svipuðum fasa og þegar gaus árin 1619 og 1783. Þetta er nokkuð stórt Grímsvatnagos, miklu stærra, kraft- meira og með meira kvikuflæði og ösku en í Eyjafjallajökli á síðasta ári. Megineldstöðin er stórt bungu- vaxið eldfjall, um 1.700 metra hátt, með þrefaldri öskju. Á sigsvæðinu er stöðuvatn sem eru hin eiginlegu Grímsvötn, en það heiti nær þó bæði yfir öskjuna og eldstöðina. Þegar ákveðinni vatnshæð er náð brýst vatn fram undir Skeiðarárjökul og verða þannig hin hefðbundnu Skeiðarárhlaup. Sjónvarpsstöðin Discovery setti Grímsvötn í áttunda sæti yfir merk- ustu eldstöðvar allra tíma þegar það setti saman lista árið 2009. Í sam- tali við Morgunblaðið af því tilefni sagði Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og sérfræðingur í Grímsvötnum, að það sæti væri fyllilega verðskuldað. /smh Heimildir: Ari Trausti Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson; Eldgos 1913-2004, mbl.is; 27. mars 2009, ruv.is; viðtal við Magnús Tuma Guðmundsson 22. maí 2011, wikipedia.org. Grímsvötn talin ein merkasta eldstöð allra tíma Eldgos hófst í Grímsvötnum 21. maí. Mynd / Mathew Roberts Veðurstofu Íslands. Samkvæmt efnagreiningum Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands er flúorinnihald öskunnar úr eldgosinu í Grímsvötnum ekki hátt. Í tveimur sýnum sem tekin voru 22. maí síðastliðinn mældist magn vatnsleysanlegs flúors vera annars vegar 4,90 mg/l og hins vegar 4,95 mg/l. Í fyrstu mælingum greindist flúorinnihaldið 5-10 mg/kg af vatns- leysanlegum flúor á yfirborði. Þrátt fyrir að flúormagnið sé lágt er afar mikilvægt að gæta þess að búfé drekki ekki úr stöðnu vatni eða pollum þar eð magn útskolaðs flúors gæti verið mun meira þar. Flúorinnihaldið í Grímsvatna- gosinu nú er verulega mikið minna en var í eldgosinu í Eyjafjallajökli í fyrra en þá mældist flúorinnihald á bilinu 25-35 mg/kg fyrstu dagana. Að sögn Páls Einarssonar prófessors á Jarðvísindastofnun er ekki gert ráð fyrir því að efnagreina fleiri sýni í bráð að óbreyttu. Sýnatöku verður hins vegar framhaldið og brugðist við ef aðstæður breytast. Ráðunautar Búnaðarsambands Suðurlands hafa unnið að gróður- sýnatöku á svæðinu en þau sýni verða svo greind hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Búast má við að niðurstöður þeirra efnagreininga liggi fyrir upp úr helgi. /fr - Þó nauðsynlegt að gæta þess að búfé hafi aðgang að hreinu, rennandi vatni Lítið flúormagn í öskunni Hross voru rekin í hús á bænum Hátúni í Landbroti fv. Kjartan Stefánsson og Sólveig Sigríður Gunnarsdóttir björgunnarsveitarmenn úr Víkverja í Vík.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.