Bændablaðið - 26.05.2011, Page 9
9Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
ROBOT-20%
er með 20% hráprótein.
Hentar vel með beit og
próteinsnauðu heyi.
Nýr fóðurbætir
á góðu verði
NÝJUNG FRÁ FÓÐURBLÖNDUNNI!
FB Verslun Hvolsvel l i
H l í ð a r v e g u r 2 - 4
S í m i : 5 7 0 - 9 8 5 0
N
Ý
P
R
E
N
T
Í samgönguáætlun 2009–2012, sem
samþykkt var sumarið 2010, var
áætlað að 7,5 milljarðar króna
færu til nýframkvæmda á árinu
2011. Á fjárlögum sem samþykkt
voru nú fyrir áramótin var hins-
vegar dregið úr því og settir tæpir
6 milljarðar króna í nýfram-
kvæmdir ársins. Stór hluti þess
fjár fer til verka sem þegar eru
hafin, að því er fram kemur á vef
Vegagerðarinnar.
Helstu verk sem eru í gangi og eru
fjármögnuð af stofnkostnaði eru tvö-
földun Suðurlandsvegar, á kafla frá
Lögbergsbrekku að Litlu kaffistof-
unni, Bræðratunguvegur um Hvítá,
tveir áfangar við Suðurstrandarveg,
tvöföldun Vesturlandsvegar um
M o s f e l l s b æ ,
verkefni við veg
54, Haffjarðará
á Mýrum og
Vestfjarðarveg um
Skálanes, einnig
um Hringveg 1 um
Ysta-Rjúkanda,
Norðausturveg til Vopnafjarðar
og lokið verður við fyrri áfanga
Dettifossvegar.
Til viðbótar þessu má nefna að
kostnaður við héraðsvegi, landsvegi,
styrkvegi, reiðvegi og fleira greiðist
af stofnkostnaði, ásamt undirbún-
ingskostnaði við vegi sem hafa ekki
enn fengið fjárveitingu.
Þau verk sem ekki hefur þegar
verið samið um, en miðað er
við að unnið verði við í ár, eru
m.a. gerð tveggja undirganga á
Reykjanesbraut, smærri verk á
höfuðborgarsvæðinu, á Strandvegi
og við Vestfjarðarveg, frá Eiði
að Kjálkafirði. Umhverfismat og
skipulagsferli vegna framkvæmda
þar lýkur ekki fyrr en síðsumars
og því verður ekki hægt að bjóða
það verkefni út fyrr en næsta haust.
Hluti fjárveitinga til þess flyst yfir á
næsta ár. Þá er einnig gert ráð fyrir
að hluti fjárveitinga til Strandavegar
færist yfir á næsta ár en verkefnið
verður boðið út nú í vor. Þá er einnig
reiknað með að leggja bundið slitlag
á 20–30 km af tengivegum víðsvegar
um landið.
Viðhald
vega verður
með nokkuð
hefðbundn-
um hætti og
ráðist í yfir-
lagnir og
styrkingar
af svipuðum
krafti og
síðustu tvö
ár, en búist er við að útboð fari af
stað á næstu vikum.
Þau verk sem voru á samgön-
guáætlun fyrir árið 2011 en þarf að
fresta vegna niðurskurðar eru við
Hafnarfjarðarveg, Álftanesveg og
Borgarfjarðarbraut um Reykjadalsá.
Nýframkvæmdir í
vegagerð 2011:
Aðallega
verk sem
þegar var
byrjað á