Bændablaðið - 26.05.2011, Side 10
10 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Fréttir
Klaufsnyrtir á Hvanneyri vill bæta vellíðan íslenskra kúa:
Kominn með fræsara til landsins
til að minnka hálku á fjósgólfum
– Tækni sem mjög hefur rutt sér til rúms hjá dönskum kúabændum
Ragnhildur Eggertsdóttir frá
Kirkjulæk í Fljótshlíð og Hermann
Örn Kristjánsson frá Blesastöðum
á Skeiðum hafa tekið við rekstri
Kertasmiðjunnar í Brautarholti
í Skeiða og Gnúpverjahreppi af
Kristjáni Guðmundssyni.
Kristjæán er faðir Hermanns, og
rak hann smiðjuna í 20 ár, fyrst í
Reykjavík, síðan á Blesastöðum og
loks í Brautarholti. Þau Ragnhildur
og Hermann sjá einnig um rekstur
tjaldsvæðisins í Brautarholti fyrir
sveitarfélagið.
Í Kertasmiðjunni er fjölbreytt
úrval af kertum en mesta athygli
vekja dýrakertin eins og af hönum,
uglum og öndum. Gestir sem
heimsækja smiðjuna geta fengið að
útbúa sín eigin kerti og vekur það
alltaf jafn mikla lukku. Þá taka þau
Ragnhildur og Hermann Örn á móti
hópum til að kynna starfsemina en
þau eru einnig með verslun í húsnæði
Kertasmiðjunnar.
Opnunartíminn hjá þeim er alla
daga vikunnar frá mánudegi til
fimmtudags frá 11:00 til 18:00 og
frá 11:00 til 20:00 frá föstudögum
til sunnudags. Heimasíða þeirra er
www.kertasmidjan.is /MHH.
Kertasmiðjan í Brautarholti:
Hanar, uglur og endur
steypar úr kertavaxi
Ragnhildur og Hermann Örn í kertasmiðjunni sinni í Brautarholti í Skeiða
og Gnúpverjahreppi þar sem verður opin upp á gátt í allt sumar fyrir gesti
og gangandi. Myndir / MHH
Guðmundur Hallgrímsson,
ráðsmaður og klaufsnyrtir á
Hvanneyri, fékk í síðustu viku til
landsins sérstakan gólffræsara
sem hann leigir frá Danmörku.
Með honum hyggst hann fræsa
rásir í fjósgólf hjá bændum til
að draga úr hálku sem víða er til
mikils ama.
Daninn sem á vélina er einnig
klaufskurðarmaður og mun væntan-
legur til landsins til að kynna þessa
tækni. „Þá ætlar hann líka að hafa
smá námskeið í leiðinni fyrir okkur
sem erum í þessum klaufskurði.
Annars voru það drengirnir hjá
Vélfangi sem aðstoðuðu mig að
fá þessa vél frá Danmörku,“ segir
Guðmundur.
Ekki er langt síðan Danir fóru að
fræsa fjósgólf til að draga úr hálku.
Vél eins og sú sem Guðmundur hefur
fengið var upphaflega hönnuð til
að hamra gólf undir nýjar ílagnir á
slitnum gólfum. Þá datt mönnum í
hug að setja á gripinn tromlu með
steinsagarblöðum til að fræsa rásir í
gólfin. Að sögn Guðmundar er slík
útgáfa af vélinni nánast einráð á
markaðnum í Danmörku til þessara
nota.
Vélin er með öflugum rafmótor
fyrir þriggja fasa rafmagn. Þar sem
ekki er slíkt aðgengi að rafmagni
í öllum fjósum mun Guðmundur
verða með rafstöð meðferðis hvert
sem fara þarf með vélina. Gripurinn
er með mörgum steinsagarblöðum
sem rista 2-4 millimetra djúpar rásir
í gólfin með eins sentímetra millibili.
Guðmundur segir að auðvitað fylgi
því talsverður kostnaður því að fá
svona vél til landsins auk þess sem
steinsagarblöðin eru dýr, en settið er
talið duga á um 1.000 fermetra. Hann
segir að það verði bara að koma í ljós
hvort þetta brölt borgi sig en margir
kúabændur telji að þetta geti orðið
til að bæta mjög aðbúnað og öryggi
kúa í fjósum landsmanna.
Hálka á fjósgólfum víða mikið
vandamál
„Þetta er vandamál þó nokkuð víða
í fjósum og menn hafa orðið fyrir
skaða vegna sleipra gólfa og hafa
þurft að lóga kúm. Þegar verið er að
steypa ný gólf hafa menn oft kústað
steypuna til að yfirborðið verði ekki
sleipt. Það slitnar bara mjög fljótt
auk þess sem fjóssköfurnar skrapa
gólfin linnulaust alla daga og það
endar með því að þau verða flughál.
Það kemur fyrir að gólfin séu orðin
svo sleip að kýrnar sýna ekki einu
sinni einkenni þegar þær eru að yxna.
Þá er nú nokkuð langt gengið ef það
er farið að hafa áhrif á kynlífið hjá
kúnum,“ segir Guðmundur.
Mikið fræst í Danmörku
Hann segir að danskir kúabændur
hafi mikið gert af því að fræsa gólfin
í sínum fjósum. „Ég fékk skýrslu
frá Dönunum sem hafa tekið þetta
út og hún var mjög jákvæð. Sá sem
á þessa vél gerir út nokkrar slíkar.
Hann er búinn að fara yfir og fræsa
600.000 fermetra af fjósgólfum í
Danmörku. Samt er hann bara einn
af um fjórum sem stunda þetta þar í
landi. Hann fer yfir rimla líka. Í dag
sýnist mér Danir hafa það þannig að
þegar byggð eru ný fjós þá fara þeir
með vélina yfir gólfin áður en þeir
hleypa kúnum inn.“
Guðmundur segir að kýrnar fari
oft flatt á fjósgólfunum í bókstaf-
legum skilningi. „Þær vilja detta og
það hefur komið fyrir að menn hafa
þurft að farga kúm út af þessu. Þetta
vandamál er þó ekki í nærri öllum
fjósum og mjög misjafnt hvernig
þetta er.“
Hann segir nokkra bændur í
Skagafirði hafa sýnt þessu mikinn
áhuga og vel geti því verið að hann
fari fyrst með vélina þangað til að
gera prufu. /HKr.
klaufsnyrtibásinn hefur kúnum oft skrikað fótur á hálum gólfum. Við þessu hyggst Guðmundur nú bregðast með því að fræsa
Sundahöfnina í Reykjavík. Mynd /HKr.
Hestamannafélagsins Sleipnis á
-
kvæmdasamning, sem hljóðar upp
2011 vegna uppbyggingar á svæði
reiðhöll félagsins.
Meðfylgjandi mynd var tekin
við undirskriftina en á henni eru frá
vinstri, Ágúst Hafsteinsson, for-
maður Íslandsmótsnefndar Sleipnis,
Magnús Ólason, stjórnarmaður í
Sleipni, Þórdís Viðarsdóttir, for-
maður Sleipnis, Ásta Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Árborgar, Íris
Böðvarsdóttir, stjórnarmaður í
Sleipni og Eyþór Arnalds, for-
maður bæjarráðs. Hrossin heita
Glóðarfeykir og Glódís. /MHH
Hestamannafélagið Sleipnir:
Fékk 8 milljóna króna styrk frá Árborg
Eyjafjarðarsveit, þau Benjamín
Baldursson og Hulda M.
Jónsdóttir, buðu gestum og gang-
andi að fylgjast með þegar kúnum
var hleypt út eftir vetrarinnistöðu
50 mjólkurkúm.
Um 250 manns fylgdust með
þegar kýrnar fögnuðu vel og innilega
að komast út í vorið og var hraust-
lega slett úr klaufunum líkt og búist
var við. „Þetta var mjög skemmtilegt
og það var ánægjulegt að sjá hvað
margir komu og fylgdust með, en við
giskum á að hér hafi verið um 250
manns,“ segir Benjamín Baldursson
á Ytri-Tjörnum. Hann segir að dansk-
ir kúabændur hafi um skeið boðið
gestum heim þegar kúm er hleypt
út á vorin. „Þeir voru afar stoltir nú
í vor þegar fleiri gestir komu að sjá
kúnum hleypt út heldur en komu á
Hróarskelduhátíðina á síðastliðnu
ári,“ segir Benjamín. Hugmyndina
segir hann hafa kviknað í kolli sonar
síns Baldurs Helga, sem er fram-
kvæmdastjóri Landssambands kúa-
bænda. MS - Akureyri bauð gestum
upp á hressingu.
Ytri- Tjarnir:
Um 250 manns fylgdust
með kúnum á fagna sumri