Bændablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 12

Bændablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 ÁSKORUN Til sauðfjárbænda í Borgarbyggð fyrrum Kolbeinsstaðahreppi Landgræðslufélag Skógars- trandar sem nær frá Vörðufelli í austri að Stóra Langadal í vestri skorar á sauðfjár- bændur í Borgarbyggð fyrrum Kolbeinsstaðahreppi að finna sumarbeitarhaga fyrir fé sitt utan svæðis Landgræðslufélagsins. Þar sem bændur innan Landgræðslufélagsins eru margir hverjir í skógrækt og uppgræðslu fer sú starfsemi ekki saman við sauðfjárbeit. Hefur ágangur sauð- fjár undanfarin ár, m.a. á illa förnu landi, valdið verulegum skemmd- um á ungum plöntum og gróðri sem reynt er að vernda til að endur- heimta gróðurþekju og landgæði. Við teljum það hluta af siðlegum samskiptum og virðingu fyrir ráð- stöfunar-, og nýtingarrétti á þing- lýstum jörðum annarra. Stjórn Landgræðslufélags Skógarstrandar Sigurkarl Stefánsson, Setbergi Kristinn Sigvaldason, Hálsi Lúðvíg Lárusson, Breiðabólstað VB Landbúnaður sem er umboðs- aðili LELY mjaltaþjóna stóð fyrir getraun eða orðaleik meðal mjólkurbænda. Send voru út með ríflega viku millibili 9 bréf en í hverju þeirra var einn bókstafur sem þátttakendur áttu safna saman og að raða í þrjú orð. Að launum fyrir rétt svör voru 11 verðlaun sem dregin voru út 20. maí síðast- liðinn en aðalvinningurinn var utanlandsferð fyrir 2 til Lely í Hollandi. Síðan voru 10 aukavinn- ingar. Lausnin í þessum orðaleik voru orðin ÖRK FRÁ EGG. Mjög góð þátttaka var í þessum leik fyrirtækisins og til að tryggja að engin brögð yrðu í tafli við útdrátt- inn var Eiríkur Helgason auglýsinga- stjóri Bændablaðsins fenginn til að draga úr réttum lausnum. Var það gert á skrifstofu Eiríks í Bændahöllinni að viðstöddum fulltrúum VB landbún- aðar, þeim Stefáni Braga Bjarnasyni framkvæmdastjóra og Sverri Geirmundssyni sölumanni. Upp úr kassanum komu eftir- farandi nöfn: 1. Aðalvinningur, utanlandsferð í haust fyrir 2 til LELY í Hollandi. Vinningshafar: Karl og Valgerður, Mýrum 3 , 531 Hvammstanga. 2.– 11 vinningur; LELY Astri - Lin þvottaefni 25 kg., LELY Astri-cid sýra 24 kg., 2x LELY glös og LELY klukka. Vinningshafar eru: Haukur Sigurjónsson, Seljatungu, 801 Selfoss. Jens Jónsson, Brandaskarði, 545 Skagaströnd. Finnbogi og Ólöf, Breiðalæk, 451 Patreksfjörður. Sigurður og Fjóla, Skollagróf, 845 Flúðir. Kolbeinn Kjartansson, Hraunkoti 1, 641 Húsavík. Magnús R. Sigurðsson, Hnjúki, 541 Blönduós. Sæmundur og Anne, Árbæ, 781 Höfn. Atli Rafn Hróbjartsson, Brekkum 1, 871 Vík. Bárður V og Guðrún Elísa, Hólshúsum, 801 Selfoss. Jón Egill Indriðason, Álfgeirsvöllum, 560 Varmahlíð. Vinningshafar munu fá sent gjafabréf fyrir úttektinni í verslunum VB Landbúnaðar í Reykjavík eða á Akureyri. VB landbúnaður þakkar þeim fjölmörgu sem að sendu inn svör við orðaleiknum. Orðaleikur VB Landbúnaður meðal mjólkurbænda: Ábúendur á Mýrum 3 fyrir norðan hrepptu ferð til LELY í Hollandi Eiríkur Helgason auglýsingastjóri Bændablaðsins, dregur upp úr kassa nöfn heppinna vinningshafa í orðaleik VB landbúnaðar og réttir Stefáni Braga Bjarnasyni framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Sverrir Geirmundsson sölumaður er lengst til hægri á myndinni. Matarsmiðjan á Flúðum var formlega opnuð þann 12. maí sl. Undirbúningurinn að starfsemi þessarar starfsstöðvar Matís hefur staðið yfir frá síðasta ári, en fyrir rekur Matís matarsmiðjur á Höfn í Hornafirði og á Egilsstöðum. Þar sem starfsstöðin er staðsett í hjarta íslenskrar grænmetisframleiðslu má gera ráð fyrir að starfsemin markist að talsverðu leyti af henni, en ásamt Matís standa sveitar- félögin í uppsveitum Árnessýslu að Matarsmiðjunni ásamt Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og Háskólafélagi Suðurlands. Vilberg Tryggvason er stöðvar- stjóri starfstöðvarinnar á Flúðum og hann segir að matarsmiðjurnar séu hugsaðar sem stuðningstæki við ein- staklinga og smáfyrirtæki sem hyggj- ast, þróa og framleiða íslenskar mat- vörur. „Meðal verkefna er að hjálpa einstaklingum og fyrirtækjum beint með vöruþróun og öflun tilskilinna leyfa til að mega hefja matvælafram- leiðslu. Matarsmiðjurnar eru mjög virkar í námskeiðahaldi sem tengist matvælaframleiðslu, þær koma að rannsóknum á matvælum með tilliti til betri nýtingar þeirra og/eða nýrri tegund nýtingar þeirra.“ Nokkrir af helstu framleiðendunum í samstarf Vilberg vill ekki að sinni gefa upp nöfn þeirra aðila sem þegar eru komnir í samstarf við Matarsmiðjuna eða á leið í samstarf en segir að vel sé tekið á móti öllum og nokkrir af helstu grænmetisframleiðendum uppsveita Árnessýslu séu annaðhvort komnir í samstarf eða hafi sýnt því áhuga. „Nokkrar góðar hugmyndir af vörum úr grænmeti eru nú þegar komnar af stað og líklegt að hluti þeirra verið kominn á almennan markað fyrir haustið, til að mynda vörur unnar úr íslenskum tómötum og paprikum. Einnig hafa stærri matvælafyrirtæki sýnt áhuga á að fara í vöruþróun með matarsmiðj- unum með það að markmiði að auka verðmæti aukaafurða í matvælafram- leiðslu.“ Tækjakosturinn er góður Sá tækjakostur sem Matarsmiðjunni er ætlaður er kominn í hús, enda reksturinn formlega hafinn. Vilberg segir það þó aldrei þannig að það sé sá tímapunktur þar sem öll tækin sem verði þar notuð séu í húsi. „Matís er vel tækjum búið og ef verkefni sem krefjast einhverja tækja sem ekki eru á staðnum í þeirri matarsmiðju sem vinna á verkefnin í þá eru tækin ein- faldlega flutt á staðinn.“ Af þeim tækjum sem eru komin í hún má þó tiltaka þurrkhermi sem getur hermt eftir mismunandi aðstæðum við þurrkun á matvöru. „Þetta tæki er mjög heppilegt til að finna heppilegustu aðferðina við að þurrka viðkvæmar matvörur. Ekki er ólíklegt að þurrkarinn verði töluvert mikið notaður í haust þegar kemur að því að þurrka kryddjurtir, sveppi og grænmeti. Stór þrýstisuðupottur er líka í Smiðjunni enn hann er eitt af aðal undirstöðutækjunum við niðursuðu og niðurlagningu á matvöru. Þessi pottur er undirstaðan í flestum af þeim verkefnum sem nú þegar eru komin af stað, en kosturinn við hann er að hægt er að dauðhreinsa matvöru sem er í krukkum, þannig að hún þurfi ekki að geymast í kæli fyrir en neitandinn hefur opnað krukkuna í það minnsta einu sinni. Þá er komið inn á gólf til okkar tæki sem kallast extruter sem notað er til að framleiða snakk og flögur og fer það í notkun í sumar varð- andi vöruþróun á ólíkum tegundum af snakki. Það hefur lengi verið á stefnuskrá Matís að gera tilraunir með hollustusnakk og er extrúter- inn eitt af megin tækjunum í þeirri tilraun.“ Starfsmenn víða að koma að starfseminni Einn fastur starfsmaður er í Matarsmiðjunni á Flúðum. Starfsfólk frá öðrum starfsstöðum Matís vinnur þó einnig að verkefnum sem tengd eru matarsmiðjunni. „Meðal þess sem þetta starfsfólk vinnur að eru rannsóknir, vöruþróun, ráðgjöf og námskeiðahald. Gera má ráð fyrir að í náinni framtíð bætist einnig við háskólanemar sem munu þá vinna að verkefnum sínum í matarsmiðjunni. Framtíðaráform matarsmiðjunnar er að vaxa og hjálpa sem flestum fyrirtækjum og einstaklingum að komast á legg með hugmyndir sínar. Jafnframt er stefnt að því að auka vægi nemenda í matvælafræðum í starfsemi smiðunnar og stytta þannig bilið milli háskólasamfélagsins og hinna vinnandi stétta, til að mynda með hagnýtum rannsóknum. Haldið verður áfram að fullum krafti við námskeiðahald og að auka samvinnu og samskipti við matvælaframleið- endur á svæðinu, öllum til hagsbóta,“ segir Vilberg Tryggvason. /smh Matarsmiðjan á Flúðum var opnuð formlega á dögunum Nokkrir af helstu grænmetis - framleið endum héraðsins í samstarf þurrkhermi og súrkálskrukkur á bak við sig. Skrifstofa Lífeyrissjóðs bænda verður opin frá kl. 9:00 til 14:00 í júní, júlí og ágúst. LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík s. 563 0300 - fax 561 9100 lsb@lsb.is - www.lsb.is Sumar 2011: BREYTTUR OPNUNARTÍMI Hrifin af íslensku grænmeti Dorrit Moussaieff forsetafrú er er afar hrifin af íslenska grænmetinu. Magnús Hlynur Hreiðarsson okkar maður á Suðurlandi náði þessum myndum af henni á opna húsinu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi fyrir skömmu. Þar varforsetafrúin leyst út með myndarlegri grænmetiskörfu. Fréttir

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.