Bændablaðið - 26.05.2011, Síða 28
29Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Námskeið í
gæðastýringu
í sauðfjárrækt
Nýir þátttakendur í gæðastýringu:
Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa
að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20.
nóvember ef framleiðandi óskar eftir álagsgreiðslum
fyrir næsta almanaksár.
Námskeið:
Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringu í sauð-
fjárrækt er að hafa sótt undirbúningsnámskeið.
Fyrirhugað er að halda þrjú námskeið á þremur stöðum
um miðjan júní:
Stóra Ármóti, mánudaginn 14. júní.
Hvanneyri, þriðjudaginn 15. júní
Akureyri, mánudaginn 20. júní
Námskeiðin hefjast kl. 10.00 fyrir hádegi og þeim lýkur
kl. 18.00.
Námskeiðin eru ætluð þeim framleiðendum sauðfjár-
afurða sem eru nýir þátttakendur og/eða hafa ekki sótt
námskeið áður.
Eru nýir ábúendur eða eigendur jarða.
Eru að hefja sauðfjárbúskap, taka við sauðfjárbúi eða
gera það síðar á þessu ári eða því næsta.
Skráning:
Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhuguð námskeið eru
vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku til Bændasamtaka
Íslands fyrir 6. júní. Unnt er að skrá þátttöku í síma 563
0300 eða á tölvupósti bella@bondi.is
Bændasamtök Íslands
Bændahöllinni við Hagatorg
107 Reykjavík
Kristinn Sveinsson, fyrrum
svínabóndi, var mikill frum-
kvöðull í svínarækt á Íslandi
og átti frumkvæðið að stofnun
Svínaræktarfélags Íslands ásamt
Páli heitnum Ólafssyni árið 1976.
Í umfjöllun í síðasta Bændablaði
slæddist inn sá misskilningur
að hann hafi verið svínabóndi
í Brautarholti. Það er auðvit-
að ekki rétt þó nafni hans hafi
verið þar, því Kristinn Sveinsson
var að sjálfsögðu svínabóndi í
Straumi sunnan Hafnarfjarðar.
Bændablaðið biður Kristinn og
Margréti Jörundsdóttur eiginkonu
hans því velvirðingar á þessum
mistökum.
Risabúin eiga engan rétt á sér
Kristinn sagði í léttu spjalli við
blaðið að hann væri síður en svo
mótfallinn auknum kröfum um vel-
ferð og bættan aðbúnað svína sem
annarra dýra. Hann segist jafnframt
afskaplega mótfallinn því að steypa
svínaræktinni í landinu í risabú á
fárra manna höndum.
„Þetta er bara angi af banka-
græðginni. Það er ekki vitglóra í
að hafa þetta í fáum búum og gera
mönnum slíkt kleift. Þessi risabú
eiga engan rétt á sér. Okkar mark-
aður er svo lítill og svínaræktin er
svo viðkvæm gagnvart sjúkdómum.
Það yrði því ekkert grín, hvorki
fyrir neytendur né bændur, ef upp
kæmi einhver pest. Það er samt ekki
nema gott um það að segja að menn
taki tæknina í sína þjónustu. Það
verður þó að vera skynsemi í því og
menn verða að ætla sér af og reikna
allt með í dæmið. Ég stækkaði til
dæmis aldrei búið svo að ég réði ekki
við það sem ég var að gera.
Þegar við Páll stofnuðum félagið
var það okkar áhugamál að bændurn-
ir sem ekki höfðu nægan kvóta nýttu
sér svínaræktina sem viðbót til að ná
sæmilegri afkomu. Á bak við þessa
hugmynd var heilbrigð hugsun. Ég
man eftir því þegar ég var formaður
að margir hugðust fara út í svínarækt
af því að þeir héldu sig græða svo
mikið á því. Samt vissu þeir varla
hvað stóð fram eða aftur á svíninu.
Áður en félagið var stofnað
stofnaði einn kunningi minn svínabú.
Hann sagðist þurfa að æfa sig á að
reykja vindla og drekka brennivín í
stórum stíl til að geta komið gróð-
anum í lóg. Maður er því vel kunn-
ugur slíkum hugsunarhætti frá fyrstu
tíð í svínaræktinni.“
Kristinn segir að hagkvæmnin í
svínaræktinni liggi ekki endilega í
stærðinni og því að sem fæstir ráði
yfir greininni.
Nauðsynlegt að sýna 100%
nærgætni
„Það er afskaplega þýðingarmikið að
vera ekki með það mörg dýr að ekki
sé hægt að sýna þeim 100% nærgætni
í smáu sem stóru. Þá er sama hvort
það eru svín, fé eða annað. Dýrin
finna alveg hvað að þeim snýr og
svínin vita sínu viti. Það hefur komið
fram í rannsóknum að þau eru í hópi
10 greindustu dýra jarðarinnar. Það
þarf því að fara gætilega að þeim.
Dýrin kunna að meta það
sem vel er gert
Ég segi fyrir mig að á öllum þessum
árum voru það yndislegustu næturnar
sem við hjónin vöktum stundum uppi
í svínabúi þegar við vorum að byrja.
Þegar gylturnar voru að gjóta var
yndislegt hvað þær voru glaðar þegar
við komum inn í stíuna og sýndum
þeim nærgætni og þær fundu að
maður stóð með þeim. Dýrin eru svo
greind að þau kunna að meta allt sem
maður gerir fyrir þau. Ef maður sýnir
þeim ekki nærgætni þannig að þau
geti treyst manni, þá verða þau pirruð
og trekkt á taugum og útkoman úr
búinu verður miklu verri. Öll dýr
þurfa nærgætni, blíðu og hlýju.
Þannig er þetta t.d. með hestana.
Sá hestur sem farið er fruntalega að
verður aldrei spakur, hann treystir
engum,“ segir Kristinn Sveinsson,
sem notar hvert tækifæri til að fara á
æskuslóðirnar á Sveinsstaði í Dölum,
þar sem hann á nú sumarbústað.
/HKr.
Kröfur um velferð og bættan aðbúnað dýra af hinu góða:
„Öll dýr þurfa nærgætni, blíðu og hlýju“
- segir Kristinn Sveinsson fyrrum svínabóndi í Straumi
Kristinn Sveinsson og Margrét Jörundsdóttir hafa átt drjúgan þátt í uppbyggingu svínaræktar á Íslandi. Mynd / HKr.
Dekkjainnflutningur
Viltu spara allt að 35%
Eigum talsvert magn Traktors-vagna, jeppa 31“33“35“38“
og fólksbíladekkja til á lager á frábæru verði.
Erum einnig að bóka í næsta gám sem kemur
til landsins 25. júní.
Verðdæmi:
Traktorsdekk 540/65 R30 kr.170.000 m/vsk
Vagnadekk 600/50 -22,5 kr.135.000 m/vsk
Fólksbíladekk 215/65 R16 kr.18.000 m/vsk
Verðið gildir á afhendingastöðvar Landflutninga
um allt land.
10% aukaafsláttur af sumardekkjum!
Jason ehf
Hafnarstræti 88
Akureyri
Vinsamlegast hafið samband við
Ármann Sverrisson 896-8462 - e-mail manni@gott.is
Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124
TOP N+ ... betra gler
Glerverksmiðjan Samverk ehf
Eyjasandi 2, 850 Hella
Gasfyllt gler, aukin einangrun.