Bændablaðið - 26.05.2011, Page 29
30 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Elvar Jónsteinsson er fram-
kvæmdastjóri hjá nýstofnuðu
metan og þróunar fyrirtæki sem
heitir Metan úr héraði ehf.
„Við áætlum að reisa metan
verksmiðju á Akureyri og nota
til framleiðslunnar mykju og líf-
rænan úrgang. Einnig er áætlað að
nýta skólp Akureyrabæjar til metan
framleiðslunnar og verður þá skólpi
skilað hreinsuðu til sjávar
Fyrirtækið hefur nú að hafið rann-
sóknir á aðföngum þ.e.a.s mykju,
lífrænum úrgangi og skólpi."
Rætt um verksmiðju í Krossanesi
„Hugmyndir okkar byggja á að keyra
mykju frá bændum og úrgangi frá
Akureyrarbæ í eina verksmiðju í
Krossanesi og hita aðföngin með
heitu vatni . Við vinnslu bætir mykj-
an áburðargildi sitt umtalsvert og er
henni síðan skilað til bænda sem
bera hana á tún. Mykjan verður betri
áburður og er það markmið Metans
úr héraði að bændur á svæðinu
minnki áburðarkaup. Í framtíðinni
minnki þeir einnig kaup á olíu og
skipti yfir í metan gas."
Hrágas og eldsneytisgas
Vinnsla á gasinu gæti orðið tvenns-
konar þ.e.a.s hrágas sem m.a. er
hægt að nota til kyndingar ( t.d. hitun
Grímseyjar í heild sinni en eyjan er
nú kynnt með fokdýrri olíu) og svo
eldsneyti metanbifreiða en þá er
hagnaður fyrir almenning mikill og
umhverfisins enn meiri."
Elavar segir að verið sé að reikna
út verkefnið en áætla megi að það
gefi af sér um 15-20 störf, mun fleiri
afleidd störf og styrki bæjarfélagið
og nærliggjandi sveitir til muna.
„Við teljum að flest minni bæjar-
félög í landinu muni á næstu árum
koma sér upp samskonar verk-
smiðjum vegna umhverfisáhrifa og
hækkandi olíuverðs sem er að ganga
að landbúnaði dauðum.
Metan úr héraði er að kynna hug-
myndir sínar fyrir sveitastjórnum
og hagsmuna aðilum þar sem við
teljum að svona verkefni sé mjög
mikilvægt fyrir land og þjóð. Hvað
mykjuna og skólpið varðar þá teljum
við þetta verkefni bráðnauðsynlegt
fyrir byggðir landsins og auðveldar
Íslandi grænvottun á landbúnaðar
afurðum og fiski og dregur úr meng-
un," segir Elvar. /MÞÞ
Metan úr héraði ehf.:
Hyggst reisa metangas-
verksmiðju í Krossanesi
- Hugmyndin að safna mykju frá bændum og úrgangi frá Akureyrarbæ
Elvar Jónsteinsson, framkvæmdastjóri Metans ehf., með gæðahráefni í hendi fyrir væntnalega metangasverskmiðju
sína. "„I Iove it" hefði líklega einhver sagt við slíkt tækifæri.
Í fjósinu á Skriðu í Hörgársveit hjá Þór Jónsteinssyni bóndi sem þegar hefur gert samning við metan ehf. um mykju. Á myndinni eru frá vinstri Þór Jón-
steinsson, Þórður Birgisson, Gunnar Sigurðsson og Elvar Jónsteinsson ramkvæmdastjóri. Myndir MÞÞ.
www.bbl.is
Beint frá smiðju, í sveit.
Íslensk gæða framleiðsla.
Vandaðar og fallegar
göngubrýr.
Vandaðir og traustir
ÞYNGDARKLOSSAR.
á þyngdarklossum.
Kynntu þér málið.
RÚLLUBAGGASPJÓT.
á rúllubaggaspjótum.
Kynntu þér málið.
ÞVOTTASNÚRUR.
Alvöru þvottasnúrur fyrir
íslenskar aðstæður.
Bendum á heimasíðuna okkar.
www.vig.is
Sími: 486-1810
LÉTTHLIÐ. Íslensk
framleiðsla á góðu verði.
HLIÐ fyrir þá sem gera kröfur.