Bændablaðið - 26.05.2011, Side 32

Bændablaðið - 26.05.2011, Side 32
33Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Það þekkja það líklega flestir bændur að þegar útihúsin standa tóm eftir langa innistöðu búfjárins, þarf oft að taka til hendinni í hús- unum. Bæði snýr það að viðhaldi og þrifum. Líklega er algengasti hátturinn við þrif að nota háþrýsti- þvottadælu. Danskar rannsóknir hafa nú sýnt fram á að notkun á háþrýstidælum getur valdið lang- tímaskaða á fólki, en rannsóknin byggir á meira en 200 tilkynn- ingum um heilsutjón í landbúnaði. Verjið heyrnina Háþrýstidælur gefa frá sér hávaða sem oft er langt yfir þeim mörkum sem geta valdið heyrnatjóni. Þegar hávaðinn er yfir 97 dB(A) í meira í 10 mínútur á dag er talið að heyrnin geti beðið skaða. Því skal ávallt nota heyrnarhlífar við háþrýstiþvott strax frá byrjun. Veljið hlífar sem útiloka háa tíðni og loka vel í kringum eyrun. Verjið augun Spúlun með háþrýstidælu hvirflar upp örsmáum vatnsúða og ögnum sem geta valdið ertingu og jafn- vel skaða á augum. Einnig getur vatnsbunan óvænt skotist til baka í andlit viðkomandi þegar hún lendir í kverk eða öðru slíku sem endur- varpar bununni. Því ætti aldrei að nota háþrýstidælu án þess að nota augnhlýfar. Vandinn er þó að velja hlíf sem ekki kemur skjótt móða á, en sérverslanir í öryggisbúnaði hafa þó viðunnandi lausnir til brúkunar. Verjið lungun Eins og áður segir þyrlar háþrýsti- dælan upp örsmáum vatnsúða og smáum ögnum upp í loftið. Þessar smáu agnir eru að sjálfsögðu óhrein- indi sem geta innihaldið bakteríur, gró, hreinsiefni, ryk frá skepnum o.s.frv. Þessar agnir eru bundnar saman við hinn fína vatnsúða og geta auðveldlega borist djúpt í öndunar- veginn, mun dýpra heldur en ef um ryk væri að ræða. Þetta gerist vegna þess að bifhár öndunarvegsins eiga auðveldara með að stoppa af ryk heldur en raka. Af þessum sökum getur hið raka loft við háþrýstiþvott valdið í raun meiri skaða en „hefð- bundið“ ryk. Þessar lífrænu agnir innihalda ertandi lífræn efni sem hafa verið tengd við ýmsa alvarlega lungnasjúkdóma s.s. astma og krón- íska lungnabólgu. Oftast verður fólk ekki vart við þessar agnir og varar sig því síður á hættunni. Afar brýnt er að nota alltaf ryk- grímur þegar háþrýstidælur eru notaðar. Mælingar sýna að allt að 90 mínútum eftir að háþrýstiþvotti lýkur geta framangreindar agnir enn hangið í loftinu. Því ber að leggja áherslu á að loftræsta vel og ekki vera í viðkomandi rými án rykgrímu fyrsta eina og hálfa tímann eftir þrif. Við val á heppilegri gerð af rykgrím- um skal miða við síugerð sem heitir P3SL eða FFP3SL en báðar þessar gerðir eru hannaðar fyrir ryk og úða . Verjið líkamann Það er ljóst að rétt vinnubrögð við öll helstu störf skipta verulega miklu máli, en sér í lagi við álags- verk eins og þrif með háþrýstidælu. Þrýstingurinn, höggin og titringur tækisins veldur staðbundnu álagi á bæði fram- og upphandleggi, axlir og herðar. Þá er vinnustaðan við verkið sjálft mikilvæg. Vegna þessa er afar mikilvægt að viðhafa góð vinnubrögð við þrif og sér í lagi mikilvægt að útskýra vel fyrir ungu fólki hvernig standa beri að vinnu við háþrýstidælu. Helstu þættir sem huga þarf að er að nota rétta lengd á armi dælunnar. Vegna mismunandi hæðar fólks er brýnt að vera með mislanga arma á dælunni sjálfri, svo vinnustaðan við þrifin sé sem réttust. Að bogra við spúlun veldur miklu álagi á bak. Velja þarf því stærð tækisins við hæfi. Þá skiptir vinnustaðan verulegu máli og grunnreglan er að halda höndunum upp við líkamann, en með því að hafa olnbogana upp við líkamann léttist álagið á liðina og sparar krafta. Ýmsar aðrar líkamsbeitingaraðferðir þarf að hafa í huga s.s. rétta beitingu baksins. Almennt má segja að um vinnubrögðin við háþrýstiþvott gildi það sama og við aðra vinnu, muna að beita líkamanum rétt! Sparið vinnuna Almennt séð getur verið erfitt að gefa út leiðbeiningar um þrif á búum, enda aðstæðurnar afar ólíkar á milli búa. Þó er gott að hafa í huga nokkrar grunnreglur: - Tryggið góða vinnulýsingu svo óhreinindin sjáist vel, miða skal við lágmark 200 Lúx. - Tryggið að vatn hlaupi auðveld- lega frá þeim stað sem er verið að þrífa. - Grófhreinsið eins vel og hægt er án notkunar á dælu, það sparar mikinn tíma og minnkar magn líf- rænna agna í loftinu við háþrýsti- þvottinn sjálfan. - Bleytið vel upp í þeim flötum sem á að þrífa. Sé undirlagið gegnumblautt fyrir háþrýstiþvott styttist þvottatíminn um fjórðung! - Ekki nota allt of heitt vatn. Það þekkja allir að óþægilegt er að þvo með köldu vatni en of heitt vatn (>50°C) getur hinsvegar brennt óhreinindin föst. Ágætt er að miða við 30°C hita á vatninu. Snorri Sigurðsson Auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands Heimild: Án höf., 2011. Højtryksrensning i landbruget. 20 s. BAR Jord til Bord. Háþrýstiþvottur getur skaðað heilsuna Selen, E-,A– og D-vítamín á fljótandi formi, til inngjafar fyrir lömb, kálfa og kiðlinga -Mjög hátt hlut-fall af vítamínum og seleni -Tilvalið í lömb sem hafa verið lengi inni -Gefið um munn - engar nálastungur Utan úr heimi Vettlingarnir eru prjónaðir úr blönduðu garni íslenskri ull og nylon. Þeir hafa verið framleiddir hér á landi síðan 1981 og eru fyrir löngu búnir að sanna sig við hin ýmsu störf. Prjónastofan Vanda 680 Þórshöfn s. 862-3255 vandaprjon@simnet.is Íslenskir vinnuvettlingar Endurmenntun LbhÍ hefur frá haustinu 2008 boðið uppá tveggja ára námskeiðsröð fyrir áhuga- fólk um reiðmennsku og almennt hestahald. Námið er keyrt á fjórum verk- legum helgum á önn með símati en að auki er bóklegt efni tekið bæði í lotukennslu eina helgi og í fjarnámi með verkefnum og prófi. Þessi upp- bygging hentar því vel fólki með vinnu. Námið er líka metið til fram- haldsskólaeininga og er því kjörið fyrir nema á því stigi sem vilja nýta einingarnar sem valeiningar og þannig samhliða sinnt áhugamáli sínu og hæfileikasviði. Mikil áhersla er lögð á vand- aða verklega vinnu þar sem unnið er með og út frá hestinum. Nauðsynlegt er því að hafa hest á húsi og geta sinn heimavinnunni vel milli verklegra helgi til að ná fram- förum. Bóklegi hlutinn kemur svo samhliða inná almennt hestahald, s.s. fóðrun, húsvist, heilsufar, o.fl. Á vormánuðum útskrifuð- ust 23 nemar frá námshópum í Rangárhöllinni við Hellu og Hestamiðstöðinni Dal í Dallandi. Að ári munu væntanlega útskrifast námshópar sem hafa nú lokið sínu fyrsta ári á Flúðum, Sörlastöðum í Hafnarfirði, í Faxaborg við Borgarnes, Top Reiterhöllinni á Akureyri og frá Iðavöllum á Fljótsdalshéraði. Um 90 mann hafa verið í nám- inu í vetur. Nú á haustmánuðum er áætlað að bjóða námið fram á þremur stöðum; á Hvammstanga, í Rangárhöllinni við Hellu og í nálægð við höfuðborgarsvæðið. Allar upplýsingar um námið, hesta- kost og fyrirkomulag má finna á heimasíðu skólans www.lbhi.is/ namskeid undir Reiðmaðurinn. Umsóknarfrestur er til 4. júní og má finna umsóknareyðublöð á heimasíðunni. Fjölmargir kennarar koma að kennslu Reiðmannsins, en að faglegri upp- byggingu námsins koma, m.a. Reynir Aðalsteinsson og Þorvaldur Kristjánsson. Aðalkennari við verklega kennslu á Hvammstanga verður Þórir Ísólfsson reiðkenn- ari á Lækjamóti, á Hellu verður það Ísleifur Jónasson reiðkenn- ari í Kálfholti og með þriðja hópinn verður Anna Sigríður Valdimarsdóttir keppnisknapi. Að væntanlegum útskriftarhópum koma auk fyrrnefndra Erlingur Ingvarsson, Reynir Örn Pálmason og Heimir Gunnarsson reiðkenn- arar. Umsjón með allri bóklegri kennslu verður Gunnar Reynisson. Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ er Ásdís Helga Bjarnadóttir og veitir hún allar nánari upplýsingar um – endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000. Yfir 60 útskrifaðir reiðmenn Nemendur sem hófu nám í Reiðmanninum haustið 2009 ásamt kennurum. Mynd / Ásdís Helga Bjarnadóttir. Spennandi tækifæri í Þýskalandi Viltu taka þátt í viðskiptum í Þýskalandi ? Viltu byggja upp eiginasafn í Þýskalandi ? Viltu taka þátt í samvinnuverkefni um kaup, leigu og sölu á þýskum íbúðum ? Íbúðir. Samvinnuverkefnið um kaup á Partaíbúðum í Þýskalandi gefur möguleika á að nota krónur til að kaupa sig inn í viðskiptasamninga með þýskar íbúðir. Sjá nánar á vefsíðu. www.bukw-immobilien.com/fast- eignir www.bukw-immobilien.com

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.