Bændablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 35
36 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Tól og tækni
Handtölvulausn, VasaFjárvís, er
í prófun hjá 18 sauðfjárbændum
við skráningu skýrsluhaldsins
að vori. Segja má að þar með sé
langþráðum áfanga náð í þessu
þróunarverkefni sem hefði mátt
nást fyrr.
Mest notagildi er fyrir þá
bændur sem eru með örmerki fyrir
allan fjárstofn sinn, fullorðið fé og
lömb. Handtölvan Aceeca sem er
notuð í verkefinu frá Nýja-Sjálandi
og umboðsaðili er fyrirtækið Ísbú
(www.isbu.is).
Um er að ræða iðnaðartölvu,
sem á að þola hnjask og raka, og
er með innbyggðum örmerkja-
lesara. Hugbúnaðarlausnin er
þróuð af upplýsingatæknisviði
Bændasamtaka Íslands og er
Hjálmar Ólafsson hönnuður og
aðalforritari. Hugbúnaðarlausnin
samanstendur af forriti í handtölv-
unni, vefforritinu FJARVIS.IS og
samskiptaforriti sem tengir forritin
saman og flytur gögn á milli hand-
tölvu og miðlægs skýrsluhalds-
gagnagrunns sauðfjárræktarinnar.
Með VasaFjárvísi og örmerk-
ingu sauðfjár mun sparast gríðarleg
vinna og öryggi eykst til muna við
aflestur örmerktra sláturlamba og
alls fjárstofnsins. Framundan er
áframhaldandi þróun til að spara
skýrsluhöldurum í sauðfjárrækt
vinnu í fjárhúsinu og við færslu
skýrsluhaldsins.
Ný útgáfa af Kappa
Ný útgáfa af Kappa er komin
út . Upplýsingatæknisvið
Bændasamtaka Íslands hefur unnið
þróun nýrrar útgáfu í samvinnu
við tölvunefnd Landssambands
hestamannafélaga. Þjónustu við
notendur Kappa og SportFengs
veitir skrifstofa og tölvunefnd
Landssambandsins.
Nýir notendur vefforrita BÍ
Rétt er að taka fram að allir nýir not-
endur af vefforritum Bændasamtaka
Íslands þurfa nú að sækja um
aðgangsorð í gegnum Bændatorgið
(farið í gegnum www.bondi.is). Þar
þarf að velja hnappinn Nýr notandi
og við það opnast sérstök vefsíða
Ísland.is fyrir Bændasamtökin sem
gerir kröfu um innskráningu með
RSK veflykli þess umráðamanns
sem sækir um aðgang.
WorldFengur –
nýttáskriftartímabil að hefjast
Um næstkomandi mánaðarmót
hefst nýtt áskriftartímabil not-
enda WorldFengs. Mikilvægt er
að allir félagsmenn aðildarfélaga
Landssambands hestamannafélaga
greiði félagsgjöld í tíma og tryggi
að upplýsingar berist gjaldkera síns
félags. Hvert aðildarfélag heldur
utan um aðgang sinna félagsmanna.
Íslenski fjarskiptamarkaðurinn –
dregur úr fjárfestinu
Fjárfesting í fjarskiptastarfsemi
dróst saman um 1.500 milljónir á
tímabilinu 2008 til 2010 (miðað
við fyrri hluti áranna), eða úr 3.581
milljónum í 2.018 milljónir. Mesti
samdrátturinn varð í fjárfestingu
í gagnaflutningum og internet-
þjónustu, eða úr 1.056 milljónum
í 369 milljónir. Þetta kemur fram í
tölfræðiúttekt Póst- og fjarskipta-
stofnunar (PFS) fyrir íslenska fjar-
skiptamarkaðinn fyrir fyrri hluta
ársins 2010 og finna má á heima-
síðu stofnunarinnar. Í tölfræðiúttekt
PFS kemur fram að fjarskiptafyrir-
tækið Nova hefur aukið markaðs-
hlutdeild sína í GSM/UMTS(3G)
úr 4,2% á fyrri hluta ársins 2008 í
18,9% á fyrri hluta ársins 2010. Á
sama tíma hefur markaðhlutdeild
Símans farið úr 56,6% í 43,1% og
hjá Vodafone úr 36,4% í 30,6%. Í
þessum samanburði er átt við fjölda
viðskiptavina. Þróunin er svipuð
þegar skoðaðar eru fastar áskriftir.
Undanfarin þrjú ár hef ég
farið í landgræðsluferð með
ferða- og útivistarfélaginu
Slóðavinum á Vaðöldu upp undir
Sultartangalóni. Í þessum land-
græðsluferðum höfum við notast
við fjórhjól, sexhjól og tvíhjól til
að komast illfæra slóðana upp á
Vaðöldu þar sem landgræðslan
fer fram.
Í ár mætti formaður Slóðavina,
Ásgeir Örn, sem vinnur sem þjón-
ustustjóri hjá N1, en hann sýndi
þarna þjónustu sem þjónustustjóra
sæmir og mætti með nýtt mótorhjól
sem Nitro hefur nýlega hafið sölu á
(Nitro er hluti af N1). Ásgeir sagði
mér að spara mitt hjól, en í staðinn
færði hann mér að ferðaþjónustunni
Hólaskógi glænýtt hjólið til prufu-
aksturs með kveðju frá Ragnari Inga
verslunarstjóra Nitro.
Álitlegur kostur
Asiawing LD 450 heitir hjólið og
er álitlegur kostur fyrir þá sem vilja
eiga kost á að keyra mótorhjól jafnt
á malarvegum, vegslóðum eða á
bundnu slitlagi. Hjólið er með 449
rúmsentimetra vél, er skráð 25kw
við 7500 snúninga og er 120 kíló.
Hjól sem byrjendur mega keyra sem
fyrsta mótorhjól (17-19 ára).
Í byrjun var ég hálf ragur að vera
á svona glænýju hjóli sem ég átti
ekki, en vitandi að malarvegurinn
frá Hólaskógi er ekki sá besti á land-
inu var ég frekar kvíðinn, og eftir
að hafa skoðað hjólið vel setti ég í
gang og prófaði. Fyrstu metrarnir
voru frekar óþægilegir og eftir um
300 metra akstur heyrði ég ljótt hljóð
fyrir aftan hjólið, snarstoppaði og leit
við. Þetta var bara skráningarnúm-
eraplatan sem var þarna skoppandi
í grjótinu (einhver hefur gleymt að
festa númerið tryggilega). Ég rölti
til baka, tók númeraplötuna og setti
í bakpokann. Næstu tveir kílómetr-
arnir voru frekar óþægilegir enda var
vegurinn mjög grófur, en eftir um 10
km akstur fann ég hvernig hjólið var
að mýkjast smátt og smátt (ég var
greinilega löngu búinn að gleyma
hvernig nýju hjólin mín voru fyrstu
30-50 km, en síðast keyrði ég svona
nýtt mótorhjól fyrir 15 árum).
Bæði með sparkstart og rafstart
Fínmunstruð dekkin gripu betur en
ég hafði fyrirfram búist við, þrátt
fyrir of mikinn loftþrýsting á grófu
yfirborði vegarinns, en á malbikinu
voru dekkin algjör draumur, enginn
hristingur né titringur og loftmagnið
rétt fyrir malbiksakstur. Asiawing er
bæði með sparkstart og rafstart (fyrir
hægri löpp og er mjög auðvelt að
sparka hjólinu í gang verði rafgeym-
irinn eitthvað slappur). Start takkinn
er á stýrinu fyrir hægri þumal. (Ég
er vanur að þurfa að sparka torfæru-
hjólum í gang með startsveif utan
á mótornum og oft þarf að sparka
nokkrum sinnum. Startaratakkinn er
oft nefndur hamingjutakki af þeim
sem hafa lengi átt hjól sem þarf
að sparka í gang.) Vinstra megin á
stýrinu er svo innsogið. Sá ókostur
er við innsogið að maður verður
að halda því inni með vísifingri
og sleppa ekki á meðan vélin er að
volgna, en ef maður sleppir fer inn-
sogið af. Þjöppuhlutfall vélarinnar
er 11:1 og því nóg að nota 95 oktan
bensín á hjólið, en persónulega mæli
ég með því að ef þjöppuhlutfall vélar
fer yfir 11,5 á móti 1 þá sé skyn-
samlegt að nota 98 oktan bensín.
Bensíntankurinn tekur ekki nema
8,5 lítra, sem ætti að skila manni á
bilinu 100-140 km, en flest önnur
hjól af svipaðri stærð eru með svona
litla bensíntanka (ég vil að hjól séu
með það stóra bensíntanka að maður
komist á þeim a.m.k. 200 km).
Hentar best sem innanbæjar
„snatthjól“
Eftir rúmlega 100 km akstur var ég
vel sáttur með hjólið sem ferðahjól á
íslenskum malarvegum og á bundnu
slitlagi er hjólið mjög gott. Hjólið
tel ég að henti best sem innanbæjar
„snatthjól“ og í stuttar malarvega-
ferðir, en þetta er að mínu mati ekki
keppnishjól nema með nokkrum
breytingum s.s. grófari dekkjum,
snarpari blöndungi o.fl., en þeir hjá
Nitro geta breytt hjólinu (persónu-
lega mundi ég ekki breyta neinu,
því hjólið uppfyllir allar mínar þarfir
eins og það er).
Asiawing kostar 799 þúsund,
skráning innifalin og Nitro/N1
býður upp á ýmsa lánamöguleika,
t.d. bílalán, N1 hjólalán og kortalán
vaxtalaus til 6 mánaða (nánar á
www.nitro.is).
Kínversk mótorhjól:
Asiawing LD 450 er
álitlegur kostur
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Upplýsingatækni
og fjarskipti
Upplýsingatækni
nýtt til fullnustu fyrir
sauðfjárbændur
Framhliðin minnir svolítið á
skordýr.
Hægt er að rafstarta með „hamingjutakka“. Líka er hægt að sparka í gang.
Jón Baldur Lorange
sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs
Bændasamtaka Íslands
jbl@bondi.is
Upplýsingatækni
Góð verð - Persónuleg þjónusta
Skeiðarás 3 Garðabær Sími 5272600 velavit@velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit útvegar varahluti í allar gerðir traktora td.
New Holland, CASE, John Deere, Fiat, Zetor,
McCormik, Deutz, Landini, Valtra o.fl.
Hafið samband og látið okkur aðstoða
við að útvega réttu varahlutina
! Ford og New Holland síur á lager !