Bændablaðið - 26.05.2011, Page 39
40 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Ábúendur á Hofsstöðum á
Snæfellsnesi eru hjónin Eggert
Kjartansson og Katharina
Kotschote. Faðir Eggerts kom
með foreldrum sínum að Hofs-
stöðum árið 1942 og tók við búi af
þeim 1963. Eggert tekur síðan við
búinu 1997. Katharina kemur að
Hofsstöðum 2003 og hefur verið
þar síðan.
Býli? Hofsstaðir.
Staðsett í sveit? Eyja- og
Miklaholtshrepp á Snæfellsnesi.
Ábúendur? Hjónin Eggert
Kjartansson og Katharina
Kotschote.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Við eigum tvö börn; Ingibjörgu 5
ára og Kristínu Láru 2 ára – og einn
hundur er á bænum.
Stærð jarðar? Um 1700 ha og af
því um 40 ha ræktað land.
Tegund býlis? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir?
Sauðfé – um 530 kindur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Breytilegur eftir árstíðum, mikið
unnið og lítið sofið á þessum tíma.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Öll störf skemmtileg,
að vísu aðeins mismunnandi.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár?
Svipaðan og nú er, vörur meira
unnar heima, jafnvel fjölgað fénu
eitthvað.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Það þarf að
einfalda fyrirkomulagið í félags-
málum bænda til að það verði
skilvirkara en nú er.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Hann á góða framtíð fyrir sér ef
við höldum okkur utan ESB en ef
við förum þangað inn verður erfitt
að vera bóndi á Íslandi.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Lambakjöt.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólkurvörur og Hofstaðasulta.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Steikt lamba-
læri að hætti húsfreyjunnar á
Hofsstöðum.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Sennilega var það nú
þegar rúllusamstæðan var fyrst
notuð 15. júní 2004.
6 1
5 9 2
6 7 9
4 1 3
1 6
5 8 9
8 4 1
9 6 8
3 2
1 9 6 2
9 7 6
9 3 7 8
3 9 7
6 1 2 9
8 3 9
2 8 1 4
1 9
8 4 3 1
9 3
4 8 1
8 6 7
4 2 5
1 3 7
4 2 9
2
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurnar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóðrétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er
af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú
til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku2.com og þar er einnig
að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Matur sem yngir og eflir
Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og næringar-
þerapisti hefur verið öflug undan-
farin ár í útgáfu heilsubóka og er
ein þeirra Matur sem yngir og
eflir. Þorbjörg hefur í yfir tutt-
ugu ár rannsakað mataræði og
nútímalífsstíl og komist að niður-
stöðu um hvers konar matur, vít-
amín og bætiefni viðhalda best
æsku og lífsþrótti fólks. Hér
kemur girnilegt sýnishorn úr
fyrrnefndri bók.
Lambakjötsbollur
8-10 stykki
1 laukur
400 g lambahakk
2 egg
2 msk. tómat-döðlukryddmauk (sjá hér að
neðan)
2 hvítlauksrif, fínhökkuð
1 dl fínt haframjöl
1 tsk. malað kummin
1 tsk. timjan
3 tsk. gróft salt
1 sítrónugras, mari t.d. með hnífsskafti og afar
fínt saxað
malaður pipar
fita til steikingar, kókosolía og ólífuolía í bland
Aðferð:
Rífið laukinn á rifjárni og blandið
öllum hráefnum saman í skál. Mótið
farsið í fremur litlar bollur og vsteikið
á öllum hliðum í 5-7 mínútur. Gott
er að bera bollurnar fram með góðri
jógúrtsósu og salati.
Tómat- döðlukryddmauk
1 l vatn
1 kg tómatar
60 g tamarind án kjarna
100 g döðlur
2 dl vatn
1 tsk. malað múskat
2 tsk. heil kóríanderfræ
1 tsk. malað engifer
¼ tsk. vanilluduft
1 tsk. gróft salt
1 dl eplasíderedik
1 msk. þunnt hunang
Aðferð:
Sjóðið vatnið í potti, skerið kross
í toppinn á hverjum tómati og
dýfið þeim út í sjóðandi vatnið í
3-4 mínútur eða þar til húðin fer
að hrukkast og losna frá kjötinu.
Hellið vatninu af og láttu tómatana
kólna, nóg til að hægt sé að flysja
þá og skerið harðan kjarnann burt.
Skerið döðlurnar í litla bita, setjið
tómatana í pott ásamt tamarind,
döðlum, vatni og kryddi. Látið
suðuna koma upp, lækkið hitann og
látið krauma í 15 mínútur áður en
þú setur edik og hunang saman við.
Látið krauma áfram í 15-20 mínútur
eða þar til seigar loftbólur byrja að
myndast á yfirborðinu. Smakkið til
með salti og meira af hunangi ef vill.
Hellið maukinu í krukku og geymið
á köldum stað. /ehg
MATARKRÓKURINN
Lambakjötsbollurnar hennar Þorbjargar eru fullar af góðu hráefni og því
orkumiklar og einstaklega bragðgóðar.
5
Hofsstaðir