Bændablaðið - 26.05.2011, Síða 41

Bændablaðið - 26.05.2011, Síða 41
42 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Lesendabásinn Nú má finna á vef landbúnaðar- ráðuneytisins á eftirfarandi tengli drög að frumvarpi að nýjum jarða- lögum:http://www.sjavarutvegs- raduneyti.is/frettir/frettatengt/ nr/10463. Hefðu lög af þessu tagi komið fram í tíð Vísa-Gísla á 17. öld hefðu þau e.t.v. þótt horfa til framfara. Gísli gerði t.d. tilraunir með að plægja og sá, sem sumum hefur eflaust í þá daga þótt svo framúrstefnulegt, að hlyti að vera hálfgert kukl. Á dögum Gísla Magnússonar, sýslumanns á Hlíðarenda, var eign- arhald á jörðum á tiltölulega fáum höndum, enda jarðir helsti fjárfest- ingarkostur þeirra tíma. Hygg ég að mörgum stórbóndanum á 17. öld hefði þótt lög sem þau, sem nú eru kynnt, þrengja kost þeirra um of. Á þeim tíma var verðmyndun á fram- leiðsluvörum landsmanna með þeim hætti, að menn voru litlu betur settir sem sjálfseignar kotbændur að hætti Bjarts í Sumarhúsum en leiguliðar. Vinnufólk var ánauðugir þrælar, en átti vísa framfærslu, svo fremi sem ekki ríkti almenn hungursneyð (sem reyndar gerðist 13 sinnum á 17. öldinni). Þórólfur Sveinsson skrifaði ágæta ádrepu í nýlegt Bændablað um þau undur, sem fólgin eru í ofangreindum frumvarpsdrögum og hlaut fyrir skammir frá Sigríði í Arnarholti, sem ég held samt, að hafi verið að skamma hann fyrir norsku kýrnar. Vera kann, að ein af orsökum þess að þeir sem um þetta mál véla velji þennan tíma til að kynna ofangreind frumvarpsdrög sé sú að þau fáist ekki samþykkt í ríkis- stjórn, en hábjargræðistíminn, slíkur annatími, að óbreyttir bændur hafa engan tíma til athugasemda. Verði drög þessi að lögum væru endur- vaktir átthagafjötrar búandfólks, sem afnumdir voru með framfara- sinnuðum breytingum á jarðalögum undir lok síðustu aldar. Ég kalla þá sem eru sama sinnis og höfundar frumvarpsdraganna bændafeður, sakir velviljaðrar forsjárhyggju þeirra, en veit, að félagsskapur ungra bænda kýs að þessi leið verði farin, því öðru vísi fái þeir ekki jarðnæði til sauðfjárræktar, a.m.k. ekki á verði sem stendur undir þess háttar framleiðslu. Ég get skilið, að félagsskapur ungra bænda vilji fá jarðir eldri kynslóða nánast án end- urgjalds, en finnst ekki eðlilegt að verða við slíkri heimtufrekju. Menn geta vissulega ekki að óbreyttu keypt jarðir til sauðfjárræktar innan ákveðinnar fjarlægðar frá höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Svo virðist sem menn kjósi fremur að nýta jarðir á þessum svæðum til kúabúskapar, skógræktar og ýmissar annarrar starfsemi. Er eitthvað að því, að markaðslögmál hafi áhrif í landbúnaði eins og öðrum greinum? Ef önnur lögmál eiga að gilda í land- búnaði en öðrum atvinnugreinum legg ég til að húsfreyjum til sveita verði gert að klæðast peysufötum hversdags, svo erlendir ferðamenn, sem heimsækja Ísland fái meira fyrir peninginn. Við höfum fyrirmynd frá Frakklandi í nýjum lögum, sem kveða á um klæðnað kvenna þar í landi, svo varla myndu slík lagafyrirmæli stríða gegn ESB- tilskipunum. Í frumvarpsdrögunum virðast skógrækt og fleiri búgreinum úthýst sem landbúnaði. Hinar eðlu greinar verða framleiðsla á lambakjöti og mjólk. Ef skylda verður að búa með ær eða kýr á öllum lögbýlum landsins, verður að gera annað tveggja: Minnka þau sauðfjár- og kúabú sem fyrir eru, með tilheyr- andi tekjuskerðingu þeirra bænda sem stunda þannig framleiðslu í dag eða hefja upphleðslu kjöt- og smjörfjalls að fyrirmynd ESB – og greiða niður útflutning á þessum afurðum í slumpum með fé skatt- borgaranna. Þannig höfðum við þetta reyndar á árunum frá 1960 og þar til Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi landbúnaðarráðherra, hóf seint á níunda áratugnum að vinda ofan af útflutningsbótunum og gerði ráðstafanir, sem miða skyldu búvöruframleiðslu við innanlands- neyslu. Er repjurækt vænlegur kostur í stað jarðefnaeldsneytis? Einnig getur verið, að tilgangur frumvarpsdraganna sé að tryggja jarðnæði til repjuræktar, en ein- hverjir telja að hún sé góður kostur til framleiðslu eldsneytis á farar- tæki. Menn gætu sem best stundað repjurækt meðfram framleiðslu hefðbundinna landbúnaðarafurða. Aðeins umræðan um repjurækt í stórum stíl getur skýrt afhverju nú er örvænt yfir því að skógrækt sé að taka undir sig ræktanlegt land (þótt meira en 90% af akurlendi jarðar hafi verið skógur, áður en hann var brotinn til akuryrkju). Sú breyting hefur orðið á umhverfi landbúnaðar frá tíð Vísa-Gísla, að nú eru starfandi í landinu tveir landbúnaðarháskólar. Því hlýtur maður að álykta, að stór- felld repjurækt hafi verið undirbúin með víðtækum rannsóknum af hálfu þess fræðasamfélags, sem tveir land- búnaðarháskólar búa yfir. Því spyr ég eftirtalinna spurninga: Hefur verið gerð arðsemiskönnun á repjurækt til framleiðslu eldsneytis? Hvað fást margar kílókaloríur (skammst. kcal.) af lífdísil fyrir hverja kcal af jarðefnaeldsneyti, sem losað er við framleiðslu repjuolíu? Ber þá að taka með í reikninginn, ekki aðeins elds- neyti á dráttarvélarnar heldur líka jarðefnaeldsneyti sem notað er til að framleiða vélar og áhöld, áburð og önnur aðföng og flutning á þeim? Án þess að vinna slíka forvinnu, er hægt að nefna áform um repjurækt skýjaborgir, nýtt „fiskeldisátak“, sem endar með ósköpum. Ég tel mestar líkur á því, að orkujöfnuðurinn í þessari framleiðslu verði neikvæður. Nú hef ég ekki við neinar rannsóknir að styðjast þegar ég held þessu fram. Spurning mín er hvort dæmið hafi einhvers staðar verið reiknað út fyrir repju. En bíðum við: Í útvarpsviðtali þ. 4. apríl sl. við Þórodd Sveinsson, sem er fróðastur íslenskra manna um möguleika repjuræktar á Íslandi, kom fram að í besta falli mætti búast við að repjurækt verði aukabúgrein hjá kúabændum og þá ekki nema á þeim landsvæðum sem búa við hlýjust sumur. Hann áætlar að í mesta lagi 4.000 ha gætu farið undir repjurækt árlega. Þetta er innan við 1% af ræktanlegu landi á Íslandi. Reyndar kom líka fram í máli Þórodds, að repjan sé áburðarfrek. Engir útreikningar á kolefnisjöfnuði ræktunarinnar voru nefndir til sög- unnar. Langur vegur er því frá að land skorti til repjuræktar á Íslandi, jafnvel þótt eitthvað af landi sem var skógivaxið við landnám verði aftur skógi klætt. Ef menn trúa því í alvöru, að hægt verði að knýja fiskveiðiflotann með repjuolíu, hafa þeir hinir sömu lítt kynnt sér málið. Vonandi skjátlast mér. Vonandi búa landbúnaðarhá- skólarnir nú yfir vel grunduðum útreikningum á kolefnisjöfnuði við framleiðslu repjuolíu. Sé svo, finnst mér að birta eigi þá útreikninga, t.d. í Bændablaðinu, svo hægt verði að taka upplýsta afstöðu til málsins. Í þeim löndum, sem við höfum viljað miða okkur við, er talið að afgangsviður úr skógi og frá skógariðnaði sé þess háttar hráefni til framleiðslu lífdísils/etanóls, að talið er verða margfalt hagkvæmari kostur en akuryrkja. Má þá einu gilda, hvort grundvöllur eldsneytis- framleiðslu með akuryrkju er maís eða annað korn. Um repjurækt í þessu skyni hef ég hvergi séð neinar erlendar heimildir. Af hverju telst skógrækt annars ekki lengur landbúnaður skv. þeim frumvarpsdrögum, sem hér eru gerð að umtalsefni? Stórfelldar afskriftir lána, vegna gífurlegs verðfalls á bújörðum? Bankar og aðrar lánastofnanir þurfa væntanlega að lýsa áhyggjum sínum af málinu (frumvarpsdrög- unum). Margar jarðir eru veðsettar uppí rjáfur. Þetta frumvarp, ef að lögum verður, gæti þýtt stóraukið útlánatap, enda ljóst að jarðaverð mun hrynja og þar með líka sá höfuðstóll sem búandfólk hefur safnað upp til efri ára með ævi- starfi sínu. Líklega gætu fallið á lánastofnanir tugir milljarða króna, jafnvel yfir eitt hundrað milljarðar. En það þykja víst smámunir á okkar dögum. Þyrfti samt ekki með fýsi- leikakönnun á slíkri lagasetningu að kanna þær ávirðingar, sem á málatil- búnaðinum kunna að vera, áður en stokkið er til? Lífeyrissjóður bænda er varla svo beysinn að hann geti afstýrt því að eldri kynslóðir flytjist á mölina, slyppar og snauðar, og neyðist til að lifa þar á snöpum ef frumvarpsdrögin á vef sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytisins verða að lögum. Með bestu kveðju, Sigvaldi Ásgeirsson, skógarbóndi, Vilmundarstöðum Frumvarp að nýjum jarðalögum til kynningar Velferð dýra Að undanförnu hefur farið fram mikil og að mörgu leiti þörf umræða um velferð dýra. Þar hafa farið fremst í flokki, eftir því sem ritari hefur náð að fylgjast með, fólk frá samtökunum Velbú og ýmsir aðrir sem hafa inn í umræðuna dregist. Vonandi eru helst allir þeirrar skoðunar að ekki skuli slakað á varðandi dýravernd og að eftirlit með því að vel sé hugsað um þau dýr sem menn hafa sér til nytja eða ánægju sé í góðu lagi. Þó að umræðan að undanförnu hafi bæði verið þörf og góð, verður að segja það eins og er, að þar hefur einnig borið talsvert mikið á öfga- fullum málflutningi og ekki er laust við að firringar hafi að nokkru gætt í framsetningu sumra þeirra sem fremstir hafa farið. Það hlýtur, svo dæmi sé tekið, að teljast firring, þegar því er hald- ið fram að dýrin sem slík séu höfð á ,,boðstóli neytenda”, að fuglar bæði ,,kúki og pissi” (haldið fram af konu sem titlar sig dýralækni) og að kjúklingar sofi fjórar klukku- stundir á sólarhring til að hámarka afköst. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða vanþekkingu á því sem til umfjöllunar er. Væri vafalaust betra að viðkomandi kynntu sér málin betur áður en slíkar full- yrðingar eru settar fram. Þær eru ekki til þess fallnar að vinna þeim málstað sem barist er fyrir gagn. Einnig er æskilegt að raunsæi komi að einhverju leiti við sögu þegar verið er að fjalla um þessi málefni. Er það til að mynda raunhæft að gera því skóna að ali- fuglaungar gangi lausir í íslenskri náttúru og ef menn gefa sér að svo sé: Hvernig á það að koma heim og saman, að fuglarnir tíni upp í sig bakteríur eins og salmonellu og Campylobacter, frjálsir úti í náttúrunni og ætlast svo til þess, að þær sömu bakteríur, gufi síðan á óútskýrðan hátt upp þegar fugl- unum er slátrað. Vissulega má hugsa sér að íslenskum reglu- gerðum verði breitt á þann veg að þessar óværur verði heimilaðar í íslenskum vistvænum og lífrænum matvælum, en ef það er það sem menn vilja, þá er best að það komi skýrt og greinilega fram í umræðunni. Sá sem þetta ritar hefur dálitla reynslu af eldi og ræktun kjúklinga, en hefur auk þess fengist við annan og ,,hefðbundnari” búskap. Var öll sumur í sveit frá sex ára aldri og hefur átt þar heima frá því hann var unglingur. Ekki minnist hann þess að hafa kynnst á þessum tíma bændafólki sem vildi, eða ætlaði sér að fara illa með skepnur, þó auðvitað hafi gerst óhöpp og slys. Ekki hefur það þó verið vegna þess að bændur eða búalið, sem hann hefur kynnst, hafi að yfirlögðu ráði valdið þar um og í þau skipti sem hann man eftir að slíkt hafi gerst hefur viðkomandi venjulega tekið það afar nærri sér. En að því raunhæfa, vistvæna og góða. Það er einlæg skoðun undirritaðs að það sé mannúð- legra, meira í ætt við dýravelferð og almenna skynsemi að sleppa nýklöktum kjúklingum inn í upp- hituð, rúmgóð, björt, loftræst, hrein og trygg hús, til að ala þá upp í, heldur en að sleppa þeim út harð- neskjulega íslenska náttúru þar sem þeir væru berskjaldaðir fyrir nær öllu því sem má hugsa sér að geti orðið þeim að fjörtjóni. Það er ekki velferð, Velbú, né þaðan af síður lífrænt, þar sem ganga má að því vísu, að umrædd dýr, myndu ekki lifa slíka tilraunastarfsemi af. Það er heldur ekki raunhæft að reikna með því að kýr séu ekki hafðar í fjósum, eða a.m.k. við þau og sauðfé verður að reka í réttir að hausti og draga í dilka hvort sem mönnum líkar betur eða ver. Höldum okkur við hið raun- hæfa. Það er ekkert sem bendir til þess að mannskepnan hætti í náinni framtíð að halda búfé sér til nytja. Það hefur verið gert frá örófi alda og verður gert um langa framtíð. Förum vel með þann fénað sem haldinn er í þessum tilgangi og búum sem best að honum. Þau sem vilja ekki leggja sér kjöt til munns verða ekki neydd til þess og ekki er vitað til þess að nokkur hafi áhuga á að þröngva þeim til slíkrar neyslu. Við hin sem viljum neyta afurða sem koma af húsdýrahaldi, vitum það afar vel, að bestu afurðirnar koma af fénaði sem vel hefur verið búið að og munum því með vali okkar að nokkru stuðla að góðri meðferð húsdýranna. Ingimundur Bergmann, vélfræðingur og bóndi. Ingimundur Bergmann „Aðeins umræðan um repjurækt í stórum stíl getur skýrt afhverju nú er Lóðir í Grímsnesi Láttu drauminn rætast ! Sumarhúsalóðir á frábærum gróðurreiti í Grímsnesi eru til sölu. Verð aðeins kr. 375,- pr.m2 Nánari upplýsingar www.kerhraun.is og í síma 896 0587

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.