Fréttablaðið - 05.01.2012, Síða 30

Fréttablaðið - 05.01.2012, Síða 30
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR4 l fréttablaðið l flutningar Munið að tilkynna nýtt heiMilisfang Tilkynna þarf til Þjóðskrár um nýtt lögheimili. Eyðublaðið er að finna á www.hagstofa.is eða farið í Borgartún 24, Reykjavík. l Tilkynna þarf nýtt heimilis- fang til Póstsins. Eyðublöð eru á öllum afgreiðslustöðum. Þú getur líka gert þetta rafrænt á www. postur.is. l Gakktu úr skugga um að atvinnuveitandi þinn viti nýja heimilisfangið. l Tilkynntu til allra blaða eða tímarita sem þú ert áskrifandi að um nýtt heimilisfang. l Byrjið snemma. Það er vel hægt að nota tímann og pakka niður útifötum, rúmfötum og öðru sem er ekki verið að nota þá stundina í einn og einn kassa þótt flutningarnir séu ekki formlega hafnir. l Best er að geyma verðmæti á öruggum stað. Það getur auðveldlega gleymst í hvaða kassa ákveðnir hlutir fara og því er gott að passa upp á að hlutir eins og lyf, passar og mikilvægir pappírar séu í einum og sama kassanum. Þá er gott að koma sér upp góðu merkjakerfi og merkja gróflega hvað er í hverjum kassa. l Við flutninga myndast kjöraðstaða til að losa sig við hluti sem hafa staðið ónotaðir í marga mánuði eða jafnvel ár. Ef tilteknir hlutir hafa ekki verið notaðir í langan tíma ætti að hugleiða það að gefa þá til Rauða krossins, í Góða hirðinn eða selja á bland.is. l Bíðið með að pakka fötum og handklæðum þangað til farið er að pakka brothættum munum og leirtaui. Það er óþarfi að pakka öllu í dagblöð og flytja þau á milli staða. Frekar ætti að nýta plássið og pakka inn í það sem þarf hvort eð er að flytja með. l Pakkið ekki bókum í stóra kassa. Þeir verða of þungir. Það sama gildir um leirtauið. l Pakkið uppáhaldsbókum, leikföngum, teppi, náttfötum og fleiri uppáhaldshlutum niður fyrir börnin og hafið með á nýja staðinn. Það er gott fyrir þau að geta strax haft eitthvað kunnuglegt við höndina. Heilræði við flutninga l flutt Með sátta táninga Stendur til að flytjast búferlum með fjölskylduna? Þá skiptir höfuðmáli að undirbúa ungmenni heimilisins með því að ræða breytingarnar í tíma. Leyfið þeim að fylgjast með frá upphafi og svarið vel öllum spurningum sem kunna að vakna. Unglingar eru líklegri en yngri börn til að setja sig upp á móti flutningum. Þeir eru flestir farnir að taka virkan þátt í félagslífi jafnaldra sinna, eiga jafnvel í ástar sambandi og óttast að missa tengsl við sinn besta vin. Láttu unglinginn þinn vita að þú virðir sjónarmið hans og sért alltaf tilbúinn að hlusta. Sjáðu til þess að hann eigi auðvelt með að heimsækja gamla hverfið og gömlu vinina. Sé flutt á miðju skólaári er fýsilegt að láta unglinga ljúka skólaárinu í sínum gamla skóla. Eftir flutninga er mikilvægt að koma barna- og unglingaherbergjum strax í stand og hafa reglu á matmálstímum og samverustundum fjölskyldunnar. LANDSINS ER Í SKEIFUNNI Ég ætla að spara í ár Opið allan sólarhringinn í Skeifunni

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.