Fréttablaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 46
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR34
Bandaríski leikstjórinn Martin
Scorsese verður heiðraður af
bresku kvikmyndaakademíunni
á Bafta-verðlaununum í næsta
mánuði. Áður hafa leikstjórarnir
Steven Spielberg, Alfred
Hitchcock og Stanley Kubrick
fengið verðlaunin.
Formaður dómnefndarinnar
sagði Scorsese goðsögn í lifanda
lífi sem hafi veitt ungum
leikstjórum mikinn innblástur.
Síðasta mynd Scorsese, Hugo,
hefur fengið mjög góðar við-
tökur. Fleiri myndir á ferilsskrá
hans eru Taxi Driver, Goodfellas
og The Departed sem hann fékk
Óskarinn fyrir 2007.
Heiðraður á
Bafta-hátíð
heiðraður Martin Scorsese fær Bafta-
heiðursverðlaun í næsta mánuði.
Söngkonan Patti Smith hefur
samið lag um Amy Winehouse,
sem lést í júlí á síðasta ári 27 ára
gömul.
Í viðtali við tímaritið Uncut
sagði Smith að lagið yrði á
væntanlegri plötu söngkonunnar.
„Þetta litla lag sem er helgað
Amy blómstraði í hljóðverinu,“
sagði Patti Smith. „Við vorum þar
að vinna í annarri tónlist þegar
Amy lést. Ég skrifaði lítið ljóð
og bassaleikarinn minn, Tony
Shanahan, kom
með smá
laglínu og
þetta tvennt
passaði
fullkomlega
saman.“
Patti samdi
lag um Amy
Minnist winehouse Patti Smith samdi
ljóð sem varð að lagi um söngkonuna
Amy Winehouse, sem lést á síðasta ári.
Auglýsingaherferð nýrrar undirfatalínu Davids
Beckham fyrir Hennes & Mauritz var frumsýnd í
vikunni en þar leikur knattspyrnuhetjan sjálf aðal
hlutverkið. Á myndunum má sjá Beckham klæðast
nærbuxum og hlýrabol úr eigin smiðju. Um er að ræða
herranærfatnað sem kemur í yfir 1.800 verslanir
sænska verslanarisans út um allan heim í febrúar.
Samstarf H&M við Beckham einskorðast ekki við
þessa einu línu en hann á að hanna fleiri nærfatalínur
fyrir verslunina, og jafnvel dömufatnað, í framtíðinni.
„David Beckham er mikill áhrifavaldur innan
íþrótta og tískuheimsins og við hlökkum til að eiga
við hann langt og farsælt samstarf,“ segir AnnSofie
Johansson, yfirhönnuður H&M, við breska blaðið
Telegraph.
Beckhamhjónin hafa því bæði haldið innreið sína inn
í tískuheiminn en eins og flestir vita hannar Victoria
Beckham föt undir sínu nafni við góðan orðstír.
Beckham kastar klæðum fyrir H & M
Dularfullur
David Beckham
tekur sig vel
út í þessum
hlýrabol en
forsvarsmenn
Hennes & Mau-
ritz segja að
nærfatnaðurinn
frá kappanum
verði á við-
ráðanlegu verði.
húðflúr
David
Beckham er
ófeiminn við
að sýna öll
húðflúrin sem
þekja líkama
hans á mynd-
unum. MynD/HM