Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 2
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR2
Þorsteinn, eru ekki allir með
báða fætur á jörðinni þótt
gaman sé?
„Jú, því við viljum skilja spor okkar
eftir í öskunni.“
Dr. Þorsteinn Sæmundsson er formaður
Jarðfræðafélags Íslands. Um 300 jarð-
fræðingar eru nú saman komnir í Hörpu
þar sem þrítugasta vetrarmót norrænna
jarðfræðinga fer fram.
FASTEIGNIR „Það er erfitt að meta
verð á eign eins og þessarar því
það er engin viðmiðun,“ segir
Sigur björn Friðriksson á Fast-
eignasölunni Torgi, sem nú hefur
Svefneyjar á Breiðafirði til sölu.
Óskað er eftir tilboðum í Svefn-
eyjar. Sigurbjörn segir verðhug-
myndina á bilinu 150 til 195 millj-
ónir króna. Auk íbúðarhúsa og
útihúsa fylgir tíu manna, yfir-
byggður hraðbátur og traktor með
í kaupunum. Heimatúnið hefur
verið notað til lendingar fyrir
flugvélar. Engin ábúð er í eyjun-
um sem eru notaðar til sumar-
dvalar.
Svefneyjar komu til sölu nú
eftir áramót. Sigurbjörn segir
ekki marga verðandi kaupendur
hafa gefið sig fram enn enda sé
um dýra eign að ræða. „Þeir sem
sýnt hafa þessu áhuga hafa verið
með eyjarnar í huga fyrir ein-
hvers konar ferðamannaþjónustu
og staðurinn er upplagður í það,“
segir Sigurbjörn.
Það eru þeir Dagbjartur Einars-
son og Gissur Tryggvason sem átt
hafa Svefneyjar í tæp tuttugu ár.
Sigurbjörn segir Dagbjart og Giss-
ur ásamt fjölskyldum sínum hafa
lagt mikla natni í uppbyggingu og
endurnýjun húsakosts á eyjunum.
Auk ýmissa útihúsa séu þar nú tvö
góð íbúðarhús með samtals þrett-
án svefnherbergjum. Húsin geti
einmitt nýst vel í ferðaþjónustu.
Dagbjartur, sem býr í Grinda-
vík, er 75 ára og Gissur, sem býr
í Stykkishólmi, er 67 ára. Sigur-
björn segir þá telja sig vera komna
á aldur og tíma til kominn að aðrir
taki við í Svefneyjum eftir að þeir
hafi átt þar sínar góðu stundir um
árabil.
Svefneyjar, sem áður voru í
Flateyjarhreppi en tilheyra nú
Reykhólahreppi, eru sögufrægar
í meira lagi allt frá landnámsöld.
Þar fæddist skáldið og náttúru-
fræðingurinn Eggert Ólafsson á
átjándu öld. Mikil hlunnindi eru
í Svefneyjum, meðal annars af
um þrjú þúsund æðarhreiðrum,
skarfa- og lundaveiði, eggjatöku
og sel. gar@frettabladid.is
Eyjaklasi á Breiðafirði
boðinn á 195 milljónir
Vinahjón sem átt hafa Svefneyjar á Breiðafirði í tuttugu ár bjóða eyjaklasann
til sölu. Uppsett verð er 150 til 195 milljónir og þá fylgir tíu manna hraðbátur.
Lenda má flugvél í heimatúninu. Hentar í ferðaþjónustu segir fasteignasali.
SVEFNEYJAR Alls eru um sextíu eyjar og hólmar í klasanum sem á sér merka sögu. Stærsta eyjan er hálfur annar kílómetri á
lengd og hálfur á breidd. Helstu eyjarnar heita Litla-Seley, Langey, Urðey, Grasey, Feginsbrekkur, Stóra-Seley, Flatey, Norðureyjar,
Hrafnseyjar, Öxneyjar og Írlönd. MYND/MATS VIBE LUND
Þeir sem sýnt hafa
þessu áhuga hafa
verið með þetta í huga sem
einhvers konar ferðamanna-
þjónustu og eyjarnar eru
upplagðar í það.
SIGURBJÖRN FRIÐRIKSSON
FASTEIGNASALI Á TORGI
UMHVERFISMÁL Sorpsamlag Þingeyinga hefur gripið
til ráðstafana eftir að magn díoxíns og köfnunar-
efnisoxíðs reyndist yfir viðmiðunarmörkum þegar
útblástur frá stöðinni var mældur í september 2011,
en niðurstöður mælinganna bárust 5. janúar síðast-
liðinn.
Ástæða þess að efnin mældust yfir mörkum er
talin vera sú að hærra hlutfall lífræns úrgangs í
sorpinu í sláturtíðinni í haust og breytt eldsneytis-
notkun hafi tímabundið aukið hlutfall efnanna í
útblæstri Sorpsamlagsins.
Daginn sem mælingin var gerð var hlutfall slátur-
úrgangs um 30% sorpsins, en þá stóð sláturtíð sem
hæst. Að auki má reikna með að hlutfall lífræns
úrgangs í almennu sorpi hafi verið um 25%. Þetta
háa hlutfall lífræns úrgangs er talið hafa aukið tíma-
bundið díoxin í útblæstrinum. Stjórnendur samlags-
ins munu nú endurskoða móttöku sína á sláturúr-
gangi og flokkun á lífrænum úrgangi frá almenningi.
Til þess að draga úr rekstrarkostnaði var ákveðið
sumarið 2011 að blanda dísilolíu, sem notuð er í
brennara, með flotaolíu. Talið er að flotaolían hafi
aukið köfnunarefnisoxíð í útblæstrinum og hefur
notkun hennar nú verið hætt. - shá
Sorpsamlag Þingeyinga breytir starfsháttum í kjölfar mengunarmælinga:
Gera ráðstafanir vegna díoxíns
SORPBRENNSLA Sorpsamlag Þingeyinga hefur greint frá nei-
kvæðum mengunarmælingum og brugðist við þeim án tafar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
UMHVERFISMÁL Bæjarstjórn Fljóts-
dalshéraðs skorar á Ríkisútvarpið
að breyta ljósabúnaði í mastri
langbylgjustöðvar á Eiðum svo lýs-
ingin verði ásættanleg fyrir íbúa
svæðisins. Áskorunin er viðbrögð
við bréfi frá Þórhalli Pálssyni,
arkitekti á Eiðum.
Ljósagangurinn í mastrinu hefur
verið íbúum í nágrenninu þyrnir
í augum árum saman. Styrkur og
taktur ljósanna, sem eiga að vara
flugvélar við mastrinu, er stundum
þannig að sveitirnar í kring lýsast
upp í krampakenndum leifturljós-
um um nætur, mönnum og skepn-
um til ama. „Mikilvægt er að end-
urbæturnar verði með þeim hætti
að bilanatíðni búnaðarins verði
lágmarkaður eftir því sem tæknin
leyfir,“ segir bæjarstjórnin. - gar
Truflanir af völdum RÚV:
Lagi leifturljós í
útvarpsmastri
MENNTUN Allir nemendur níunda
bekkjar í Vogaskóla fengu Kindle
lestölvu afhenta á þriðjudaginn.
Tilgangurinn er að kanna hvort
tækið eigi erindi í kennslu í fram-
tíðinni og þá hvort það geti komið
í stað hefðbundinna bóka. Ef svo
reynist vera ætti það að geta leitt
til sparnaðar, nemendur ættu
að hafa aðgang að fjölbreytt-
ara námsefni og skipulagning
skólastarfs yrði auðveldari, að
því er fram kemur í tilkynningu
Skólavefjarins, sem stendur að
verkefninu ásamt Námsgagna-
stofnun og rannsóknaraðilum.
- þeb
Tilraunaverkefni í Vogaskóla:
Allir nemendur
fengu lestölvu
Í VOGASKÓLA Nemendurnir voru
ánægðir með tækin þegar þeir fengu
þau á þriðjudag. MYND/SKÓLAVEFURINN
SAMGÖNGUR Umferð hefur aldrei
dregist meira saman á einu ári
síðan mælingar Vegagerðarinnar
á völdum stöðum hófust árið 2005.
Umferðin dróst saman um 5,3
prósent árið 2011 frá árinu áður,
samkvæmt tölum frá sextán
völdum talningarstöðum á Hring-
veginum. Til samanburðar dróst
umferðin saman um 2,3% árið
2010 og um 1,7% árið 2008 en jókst
um 6,8% árið 2007. Fram til 2008
hafði aksturinn nánast aukist á
hverju ári síðan 1975 og samdrátt-
urinn aldrei orðið þetta mikill. - shá
Mesti samdráttur frá 2005:
Umferð dróst
saman um 5,3%
DANMÖRK Danska lögreglan fann
13,8 kíló af brúnu heróíni á vinnu-
svæði starfsmanns Kaupmanna-
hafnarháskóla eftir að þýskir lög-
reglumenn fundu 483 g af kókaíni
í fórum hans í Dortmund þann 10.
desember síðastliðinn.
Maðurinn, sem verið hefur í
varðhaldi í Þýskalandi, kom fyrir
rétt þar í gær.
Í fréttum danskra fjölmiðla
kemur fram að hinn handtekni
hafi ekki verið við akademísk
störf í Háskólanum í Kaupmanna-
höfn. - ibs
Kaupmannahafnarháskóli:
Fundu 14 kíló
af heróíni
DÓMSMÁL Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri hefur höfðað mál á
hendur Seðlabanka Íslands til að
fá launakjör sín leiðrétt. Hann
telur yfirvöld hafa gengið á bak
orða sinna og svikið samkomulag
sem gert var þegar hann réði sig
til starfa árið 2009.
Sagt var frá þessu í fréttum
Stöðvar 2 í gær. Þar kom einnig
fram að málið hefði verið þingfest
í Héraðsdómi Reykjavíkur í des-
ember.
Við ráðninguna samdi Már við
bankaráð Seðlabankans um að
hann fengi 1.575 þúsund krónur
á mánuði. Í sama mánuði var
lögum breytt á þann veg að emb-
ætti seðlabankastjóra heyrði undir
kjararáð og jafnframt kveðið á
um það í lögum að dagvinnulaun
ríkis starfsmanna mættu ekki vera
hærri en laun forsætisráðherra.
Skömmu síðar voru laun seðla-
bankastjóra lækkuð, dagvinnulaun
hans urðu 862 þúsund krónur og
með fastri yfirvinnu urðu heildar-
launin tæpar 1.266 þúsund krónur
á mánuði.
Már telur að óheimilt hafi verið
að breyta starfskjörum hans eftir
ráðningu og hefur því ákveðið að
sækja rétt sinn á hendur bank-
anum, sem hann samdi við til að
byrja með. - sh
Seðlabankastjóri telur sig eiga heimtingu á hærri launum og höfðar mál:
Már í hart við Seðlabankann
ÓSÁTTUR Már vill fá launin sem hann
samdi um í upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BANDARÍKIN Liðin eru tíu ár síðan
Bandaríkjamenn fluttu fyrstu 20
fangana í Guantanamo fangabúð-
irnar á Kúbu. Þar hefur 779 föng-
um verið haldið án þess að njóta
þeirra mannréttinda að réttað sé
í málum þeirra, þrátt fyrir loforð
sitjandi forseta, Barack Obama,
um að búðunum skyldi lokað.
Mannréttindasamtök, eins og
Amnesty International og Human
Rights Watch, minnast þessara
tímamóta þessa dagana og þeirri
staðreynd að enn situr 171 fangi í
búðunum. Stjórnvöld í BNA hafa
sagt að 47 þeirra bíði ævilöng
fangavist án réttarhalda. - shá
Mannréttindabrot í BNA:
Guantanamo
við líði í tíu ár
Strandveiðar vega þungt
Þorskur veiddur á handfæri sem
seldur var á fiskmörkuðum jókst um
þriðjung í magni frá fyrra ári. Hlutur
þeirra var rúmur fjórðungur alls þorsks
sem þar var seldur. Mest var selt af
þorski sem veiddur var á línu, 37,1%
heildarmagnsins, sem var um 2.800
tonnum minna en á árinu 2010.
SJÁVARÚTVEGUR
SPURNING DAGSINS