Fréttablaðið - 12.01.2012, Page 16
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR16 16
hagur heimilanna
386
Bílvélar geta eyðilagst af
rakamyndun, sóti og kæli-
vökva. Niðurstaða þýskrar
rannsóknar leiddi í ljós að
fjórði hver bíll í umferð var
annaðhvort með of litla eða
of mikla vélarolíu. Olían
var jafnframt oft orðin svo
léleg að stórhætta var á að
vélin eyðilegðist. Stefán
Ásgrímsson, ritstjóri hjá
Félagi íslenskra bifreiða-
eigenda (FÍB), segir ekkert
benda til að ástandið sé
öðruvísi hér.
Í rannsókn á vegum þýsku stofn-
unarinnar Gesellschaft für
Technische Überwachung var
olíustaða og ástand olíunnar mælt
í 700 bílum sem komu inn á skoð-
unarstöðvar til árlegrar öryggis-
skoðunar. Olíusýnin reyndust góð
úr rúmlega öðrum hverjum bíl eða
56,1 prósenti. 38,2 prósent reynd-
ust vera í meðallagi en 5,7 prósent
sýnanna reyndust hættulega léleg.
Eigendum 22 prósenta bílanna
var bent á að skipta þyrfti um olíu
strax, að því er segir á vef FÍB.
Þar segir jafnframt að það sem
mest rýri smureiginleika olíunnar
sé sót, vatn sem kemur frá raka-
myndum sem síðan blandast
olíunni, eldsneyti og frostlögur
sem komist hefur í olíuna.
„Þegar við notum bílana í
snatti í þéttbýli hitnar vélin ekki
almennilega. Loftrakinn þéttist
þá inni í vélinni og fellur saman
við olíuna. Þegar vatnsinnihald-
ið er orðið of hátt rýrnar smur-
gildi olíunnar, slitfletir vélarinn-
ar slitna hraðar og hætta eykst á
ryðmyndun og ryðútfellingum,“
segir Stefán Ásgrímsson, rit-
stjóri hjá FÍB. Hann getur þess að
útfellingar verði einnig vegna sóts
þegar bensín eða dísilolía brenn-
ur. Kælivatn í olíu er merki um að
heddpakkning sé að bila. Þá þarf
að skipta um hana í snatri áður
en verra hlýst af, að því er Stefán
greinir frá.
Hann mælir með því að skipt
sé um olíu á 5 þúsund km fresti sé
bíl ekið í þéttbýli. Þá sé miðað við
hágæðaolíu sem endist betur en
jarðolía.
Á vef FÍB eru bílstjórar varað-
ir við því að aka á fullri ferð út í
vatnsaga sem myndast í asahláku.
Stórhætta sé á að vatn komist inn í
bílvélar og brunahólf þeirra sé það
gert. Slíkt geti valdið mjög miklum
og dýrum skemmdum á vélunum.
Bent er á að komist vatn í bruna-
hólfin þýði það oftast að eitthvað
verði undan að láta. Vatnið „fjaðri“
ekki eins og loftið sem þangað sog-
ast inn. Þess vegna bogni stimpil-
stangir eða brotni. Sérstaklega
mikil hætta er á þessu sé um dísil-
bíl að ræða.
Bílvélar geta eyðilagst
komist vatn inn á þær
HÆTTA Á SKEMMDUM Sé ekið á fullri ferð út í risapolla er hætta á vatn komist inn í bílvélar og brunahólf þeirra. Slíkt getur valdið
miklum skemmdum á vélunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA ætlar að reisa
gististað fyrir starfsmenn og ferðamenn í nágrenni
við höfuðstöðvar sínar í suðurhluta Malmö í Svíþjóð,
að því er kemur fram á vefnum www.turisti.is sem
vitnar í danska miðilinn Berlingske.
Greint er frá því að ekki sé ljóst hvort innanstokks-
munirnir verði eingöngu sóttir í búðina við hliðina.
Jafnframt er þess getið að hótelið í Malmö verði ekki eini gististaður IKEA-
veldisins því í Smálöndunum, í suðurhluta Svíþjóðar, standi enn mótelið sem
byggt var við fyrstu verslunina í Älmhult. - ibs
■ Nýr gististaður í Malmö:
IKEA opnar hótel fyrir ferðamenn
Neytendastofa hefur skoðað yfir 40 merki sem seld hafa verið sem endur-
skinsmerki auk þess sem Vegagerðin hefur kannað endurskin merkjanna. Á vef
Neytendastofu segir að endurskinsmerki sem ekki uppfylli kröfur um endurskin
veiti falskt öryggi.
Bent er á að endurskinsmerki verði meðal annars að vera með CE-merki og
merkt með númerinu EN 13356 eða ÍST EN 13356. Slík merking tákni að fram-
leiðandinn hafi látið prófa vöruna og staðfest að hún sé í lagi.
Einnig verði að fylgja leiðbeiningar á íslensku um hvort merkin þoli þvott og
hvernig eigi að festa þau þannig að þau veiti öryggi. - ibs
■ Könnun Neytendastofu:
Endurskinsmerki eiga að vera CE-merkt
GÓÐ HÚSRÁÐ - Jólaserían
Áður en seríunni er pakkað niður
Þegar seríur eru teknar niður er mikilvægt að taka þær
fyrst úr sambandi og láta þær kólna vel áður en þeim
er pakkað niður í kassa. Gott er því að taka seríuna úr
sambandi deginum áður en henni er pakkað niður
svo hún hafi nægan tíma til að kólna. Þannig geturðu
komið í veg fyrir að serían ofhitni í kassanum og
skemmist.
Einnig er gott að setja hverja seríu fyrir sig í plastpoka,
þá er auðveldara að eiga við þær þar sem seríurnar
flækjast ekki saman.
NEYTENDUR Neytendasamtökunum
bárust alls 8.828 erindi á síðasta
ári. Flest erindanna voru vegna
húsaleigu eða 1.048, þar af 817
eftir að samningur við velferðar-
ráðuneytið tók gildi 1. maí síðast-
liðinn.
Í nóvember bárust að meðal-
tali um átta erindi á dag vegna
húsaleigu. Algengast var að
fyrirspurnir leigjenda snerust um
viðhald og ástand eignar auk upp-
sagnar á leigusamningi.
Heimsóknir á nýja heimasíðu
Neytendasamtakanna, www.leigj-
endur.is, voru hátt í fimm þúsund
frá því að hún var opnuð í október
síðastliðnum.
Næstflest erindi komu vegna
fjármála- og innheimtufyrirtækja,
raftækja og fjarskiptatækja, að því
er segir í tilkynningu frá Neyt-
endasamtökunum.
Hlutfallsleg aukning var mest í
erindum vegna verðlags og verð-
merkinga og einnig húsaleigu.
Samtökin greina frá því að
kvörtunarþjónustan hafi haft
milligöngu í 176 kvörtunarmál-
um á árinu, flest vegna Evrópsku
neytendaaðstoðarinnar, ENA.
Langflest málin sem bárust
ENA sneru að ferðamálum. Hlut-
verk ENA er að aðstoða neytend-
ur sem eiga í deilum við seljendur
vöru eða þjónustu yfir landamæri
innan EES-svæðisins.
- ibs
Neytendasamtökin fengu níu þúsund erindi 2011:
Þúsund erindi bár-
ust vegna húsaleigu
HÚSNÆÐI Flest erindanna sem bárust Neytendasamtökunum voru vegna húsaleigu.
KRÓNUR var meðalverðið á einu kílói af heilhveitibrauði í nóvember
síðastliðnum samkvæmt rannsókn Hagstofu Íslands. Verðið hefur hækkað
um 30 prósent frá árinu 2007 þegar meðalverðið var 296 krónur.
Beint samhengi er á milli hversu mikið magn gosdrykkja
ungmenni drekka og fitumagns í lifur þeirra, vöðvum, blóði
og búk, að því er niðurstöður rannsóknar vísindamanna við
Árósaháskóla sýna.
„Fitan safnast upp á röngum stöðum í líkamanum. Hún
safnast ekki í venjulegum fituvef heldur þar sem fita er almennt
ekki velkomin,“ sagði Bjørn Richelsen prófessor í viðtali við
danska ríkisútvarpið.
Vísindamennirnir rannsökuðu hóp ungra Dana sem drukku
daglega hálfan lítra af kóladrykk í hálft ár. Samanburðarhópur
var látinn drekka vatn, undanrennu og light-gosdrykk. Aukið
fitumagn fannst aðeins hjá þeim sem drukku gosdrykk með
venjulegu sykurmagni. - ibs
■ Rannsókn í Danmörku:
Gosþamb veldur fitu í lifur
„Það er mikil gróska og áhugi á skráningu“, segir Páll Harðar-
son, forstjóri Kauphallarinnar, í nýjasta þættinum af Klinkinu á viðskiptavef
Vísis. Í viðtalinu fer Páll yfir skráningu bankanna í Kauphöllina, skráningu orku-
og sjávarútvegsfyrirtækja, eftirlitshlutverk Kauphallarinnar fyrir hrun, afléttingu
gjald eyrishafta og valkosti Íslands í gjaldmiðilsmálum, svo eitthvað sé nefnt.
Á þriðja tug félaga á leið í Kauphöllina
Nýjasta þáttinn af Klinkinu má nú finna á Visir.is/vidskipti