Fréttablaðið - 12.01.2012, Qupperneq 18
18 12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
Á heimasíðu ÚTÓN birtust í vikunni niðurstöður könnunar um veltu
vegna komu erlendra ferðamanna á Ice-
land Airwaves-hátíðina. Fyrir utan menn-
ingarlegt gildi hátíðarinnar skapast heil-
mikil hagræn og samfélagsleg verðmæti.
Í könnuninni kemur meðal annars fram
að velta erlendra gesta hefur aukist um
55% frá árinu 2010 og nemur upp undir
700 milljónum ef reiknaður er ferða-
kostnaður gestanna og eyðsla.
Árið 2007 þegar ÚTÓN tók til starfa
beitti skrifstofan sér fyrir því að gerður
yrði listi yfir allar tónlistarhátíðir á land-
inu sem starfað höfðu samfleytt í meira
en þrjú ár. Reyndust þær um 30 talsins.
Síðan hefur ÚTÓN átt í samstarfi við
Íslandsstofu og ferðamála geirann um að
bjóða blaðamönnum, listrænum stjórn-
endum og kaupendum á hátíðir og við-
burði. Í starfi þessu kemur í ljós að
tilfinnanlegur skortur er á markvissri
fjárfestingu í kynningar málum og vöru-
þróun á þessu sviði. Iceland Airwaves
byrjaði sem lítið partí árið 1999 og hefur
vaxið jafnt og þétt síðan. Áhugi útlend-
inga á að koma til Íslands og upplifa
tónlistarviðburði er mikill enda hafa
íslenskir tónlistarmenn og tónhöfundar
kveikt í ástríðufullum tónlistarunnendum
um allan heim með sköpunarkrafti sínum
og elju. Það er fyrir þeirra tilstilli að
tengslanet og þekking hefur skapast til að
þróa viðburði sem varið er í. Airwaves er
einungis eitt dæmi um hversu mikil verð-
mæti er hægt að skapa í samstarfi tón-
listar- og ferðamálageirans. Það er hins
vegar mikilvægt að þekking tónlistar-
geirans á vöruþróun í þessum efnum sé
viðurkennd.
Margt hefur áunnist frá því að
Airwaves hóf göngu sína og frá því að
byrjað var að benda á nytsemi hátíða til
að bjóða heim fólki að utan. Ákveðin sýn
á þessum málaflokki var fest í viðamik-
illi stefnumótun skrifstofunnar sem fram
fór sumarið 2010 og hefur verið kynnt
víða.
En betur má ef duga skal. Stjórnvöld og
bæjaryfirvöld víðs vegar þurfa að fjár-
festa markvisst í því að tónlistartengd
ferðaþjónusta fái svigrúm til að þróast
þannig að hún nýtist bæði sem öflugt
tæki til að kynna íslenska tónlist og það
umhverfi sem hún á heima í. Hugmyndir,
tillögur og þekking er til staðar og um
leið mælingar á árangri eins og Iceland
Airwaves könnunin sýnir.
Tónlistartengd ferðamennska
Menning
Anna Hildur
Hildibrands-
dóttir
útgáfustjóri ÚTÓN
Má ég vera memm?
Gunnar Bjarni Sveinsson er sár. Og
móðgaður. Ástæðan er sú að stjórn-
endur þeirra þátta Ríkisútvarpsins
sem fjalla um stjórnmál hafa ekki séð
ástæðu til að bjóða honum í þættina.
„Ekki einn. Þó er ég fyrsti þingmaður
Framsóknarflokksins í NV-kjördæmi og
formaður þingflokks fram-
sóknarmanna!“ segir hann
í grein í Morgunblaðinu.
Um leið og aulahrollurinn
hríslast um mann verður
að dást að Gunnari Braga
fyrir hreinskilnina. Hann er
einfaldlega sár því hann fær
ekki að vera memm.
Helsta baráttumálið
Margir hafa orðið til þess að gagnrýna
borgaryfirvöld sem hafa þurft að grípa
til ýmissa ráðstafana í kreppunni. Því
er athyglisvert að sjá hvað það er sem
Jón Gnarr lýsti á DV sem sínu helsta
baráttumáli. Aðspurður hverju hann
mundi breyta í borginni gæti hann
breytt hverju sem er sagði hann:
„Mitt helsta baráttumál er að
fá Héraðsdóm burt af Lækjar-
torgi.“ Þá er nú varla mikið að í
borginni.
Skrattinn og amman
Jón var í beinni línu hjá DV og einn
þeirra sem baunaði á hann var Þráinn
Bertelsson sem spurði: „Hvort kemur
þú þjóðinni að meira gagni sem heitt-
elskaður leikari og skemmtikraftur eða
sem umdeildur stjórnmálamaður með
einkabílstjóra?“ Jón svaraði: „Ég er ekki
með einkabílstjóra, Þráinn. Hvort
kemur þú þjóðinni meira að gagni
sem heittelskaður leikstjóri eða
vægast sagt umdeildur pólitíkus?“
Þar hitti skrattinn ömmu sína.
kolbeinn@frettabladid.is
www.ru.is
MEISTARAVARNIR
Í TÆKNI- OG
VERKFRÆÐIDEILD
FIMMTUDAGINN 12. JANÚAR:
Kl. 14:00 í stofu V307
Steindór Hjartarson: Utilization of Supercritical Geothermal
Fluid. Nýting jarðgufu frá djúpborunarholu við Kröflu.
Leiðbeinendur:
Guðrún Sævarsdóttir, Kristinn Ingason, Halldór Pálsson,
Bjarni Pálsson. Prófdómari er Geir Þórólfsson.
Kl. 15:00 í stofu V307
Haraldur Sigurðsson: Quantifying Water Saturation in Steel
Pipes using X-Rays. Notkun röntgentækni til að mæla
mettunarhlutfall vatns í stálröri.
Leiðbeinendur:
Haraldur Auðunsson, Guðrún Sævarsdóttir, María S. Guðjónsdóttir.
Prófdómari er Gissur Örlygsson.
F
angabúðir Bandaríkjamanna í bandarísku flotastöðinni
við Gvantanamóflóa á Kúbu hafa nú verið við lýði í ára-
tug. Jafnlengi hafa þar verið framin svívirðileg mannrétt-
indabrot á þeim föngum sem þangað hafa verið hnepptir.
Nokkrir þeirra fanga sem hafa verið í Gvantanamó voru
yngri en átján ára þegar þeir voru sendir þangað, sá yngsti fjórtán
ára.
Frá upphafi hafa nærri 780 fangar verið í búðunum og nú tíu
árum eftir að fyrstu 20 fangarnir voru fluttir þangað er þar 171
fangi. Sumir þeirra hafa verið í varðhaldi frá því skömmu eftir að
búðirnar voru settar á laggirnar og fæstir þeirra hafa verið ákærðir
og óvíst er að réttað verði yfir
þeim nokkru sinni.
Það er erfitt að ímynda sér þá
algeru einangrun sem fangarnir
í Gvantanamó búa við. Þeir munu
eiga rétt á tveimur símtölum á ári
og einungis frá allra nánustu fjöl-
skyldu. Alþjóðlegi Rauði krossinn
eru einu samtökin sem hleypt
hefur verið inn í búðirnar en gegn algerri þagnarskyldu og fáeinir
lögmenn, læknar og sálfræðingar sem hafa játast undir alls kyns
skilyrði hafa einnig komið í búðirnar en vitanlega enginn blaða-
maður.
Aðbúnaður fanga í Gvantanamó er á engan hátt í samræmi við
þau viðmið sem þjóðir heims hafa komið sér saman um að gildi um
meðferð fanga. Grimmilegum pyndingum hefur verið beitt við yfir-
heyrslur í gegnum árin enda lýsti Georg Bush, fyrrum Bandaríkja-
forseti, því yfir strax árið 2002 að Genfarsáttmálinn, sem meðal
annars bannar pyndingar og annars konar niðurlægingu fanga, ætti
ekki við talibana, Alkaída-liða og aðra þá sem teknir væru höndum
í „stríðinu gegn hryðjuverkum“.
Frá upphafi hafa búðirnar í Gvantanamó verið gagnrýndar harð-
lega og eftir því sem dregin hefur verið upp skýrari mynd af því
sem fram fer í flotastöðinni á Kúbu hefur gagnrýnin harðnað.
Lokun fangabúðanna í Gvantanamó var meðal kosningaloforða
Baracks Obama og fyrir tveimur árum gaf hann út tilskipun þess
efnis að loka skyldi búðunum. Sú tilskipun var hins vegar ógilt af
meirihluta þingsins í Washington og þar við situr.
Búðirnar sem í upphafi var litið á sem tilraun hafa öðlast sess sem
ein af táknmyndunum „stríðsins gegn hryðjuverkum“ og margir
óttast að Bandaríkjamenn munu ekki í bráð hætta að halda mönnum
föngnum án allra réttinda í þágu þess stríðs og að Gvantanamó-
búðirnar séu komnar til að vera.
Fangabúðirnar í Gvantanamó eru ekki aðeins skömm Bandaríkja-
manna, þær eru alþjóðasamfélaginu öllu til háborinnar skammar.
Mannréttindasamtök hafa vissulega verið ötul við að minna á
tilvist fanganna í Gvantanamóbúðunum, ekki síst Amnesty Inter-
national. Á heimasíðu Amnesty á Íslandi má nú skrifa undir áskorun
til Bandaríkjaforseta um að binda enda á varðhaldsvist fanganna í
flotastöðinni í Gvantanamó.
Á tíu árum hafa tæplega 780 fangar verið í
fangabúðum við Gvantanamóflóa.
Sekir þar til sak-
leysi er sannað