Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2012, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 12.01.2012, Qupperneq 30
2 • TÓNLEIKAR „ÉG MYNDI FÁ MÉR BJÓR MEÐ STELPUNUM OG LÁTA ORRA TROMMARA SJÁ UM ÞETTA.“ SÍÐA 6 POPP er tónlistarblað og kemur út annan hvern fimmtudag. Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Umsjón: Atli Fannar Bjarkason Forsíðumynd: Stefán Auglýsingar: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is Popp, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 500 ÞÆR ÓVÆNTU FRÉTTIR BÁRUST Í SÍÐUSTU VIKU AÐ RAGNAR SÓLBERG HEFÐI GENGIÐ TIL LIÐS VIÐ SÆNSKU HLJÓM SVEITINA PAIN OF SALVATION, SEM ER NOKKUÐ STÓR Í SÍNUM GEIRA. RAGNAR ER Á LEIÐ- INNI Í TÓNLEIKAFERÐALAG MEÐ HLJÓMSVEITINNI UM EVRÓPU OG ER GRÍÐAR- LEGA SPENNTUR. „Þetta er ekki beinlínis draumur að rætast því að ég hefði aldrei vogað mér að láta mig dreyma um að byrja í þessu bandi,“ segir Ragnar Sólberg, forsprakki hljóm- sveitarinnar Sign og nýráðinn gítarleikari sænsku proggmetalhljómsveitarinnar Pain of Salvation. „Ég hef alltaf litið á þá sem algjört súperband og á miklu æðra plani en allt sem ég geri. En ég hef hins vegar látið mig dreyma og sagt að einn daginn ætli ég að hita upp fyrir þá!“ Ragnar æfir nú að kappi ásamt meðlimum Pain of Salvation fyrir væntanlegt tónleika- ferðalag hljómsveitarinnar um Evrópu. Hljóm- sveitin fór sérstaka leið til að finna gítar- leikara og auglýsti starfið laust. Hátt í hundrað sóttu um, en Ragnar sótti hins vegar ekki sjálfur um starfið. „Sóley, elskulega kærastan mín, sótti um án þess að ég vissi af og sagði mér svo ekkert frá því fyrr en að við fengum svar frá Daniel, söngvara sveitarinnar, um að þeim hafi litist vel á og vildu að ég kæmi í prufu tveimur dögum seinna ef ég gæti,“ segir Ragnar. „Ég átti ekki til orð, hélt fyrst að einhver væri bara að gera rosadýrt prakkarastrik. En ég sat sveittur þessa tvo daga og lærði lögin. Og mætti svo svitnandi og skjálfandi ì prufu- tímann.“ Ragnar er búinn að vera harður aðdáandi Pain of Salvation í áratug og segist hafa verið óþreytandi í að fá vini og kunningja til að hlusta á hljómsveitina. „Það er alveg ótrúleg tilfinning að fá að spila og syngja sum þessara laga sem eru búin að vera í uppáhaldi í mörg ár,“ segir Ragnar. Hann veit ekki hvernig hlutirnir þróast eftir tónleikaferðalagið og lítur á það sem bónus ef hann fær að koma að lagasmíðum á næstu plötu Pain of Salvation. „Ég er mjög spenntur fyrir túrnum, sér- staklega að fara til staðanna sem ég hef ekki heimsótt áður. Á sama tíma er alltaf erfitt að vera í burtu frá fjölskyldunni minni, en það eru allir í bandinu miklir reglumenn og á sömu fjölskyldubylgju- lengd. Þannig að ég held að þetta eigi eftir að fara mjög þægilega fram allt saman.“ - afb RAGNAR SÓLBERG SVITNAÐI OG SKALF ELDAR FJARLÆG NÁLÆGÐ ★★★ Keflvíkingarnir Valdimar Guð- mundsson, sá afbragðsflinki og blæbrigða- ríki söngvari, og Björgvin Ívar Guðmunds- son, úr gæðasveitinni Lifun og fleiri böndum, kynntu dúettinn Elda og þessa fínu plötu sem hliðarverkefni samhliða öðrum störfum fyrir jólin, sem sýnir sig kannski helst í því að hvorki er verið að finna upp hjólið né reyna of mikið á þolgæði þess. Stúdíóseta félaganna (ásamt góðu aðstoðarfólki, meðal annarra söngkvennanna Fríðu Dísar og Védísar Hervarar sem eiga frá- bæra spretti í röddum) á Siglufirði hefur skilað ljúfri og heimilislegri afurð, þar sem þjóðlagakennd kassagítarrólegheit eru í fyrirrúmi og yfir fáu sem engu er að kvarta varðandi allan flutning. Nokkur laganna eru gullfalleg (t.d. Ófæri vegur og Dropi í hafi) þar sem söngurinn ræður ríkjum, meðan fáar aðrar (Saga og Elskaðu mig) ná tæplega blindflugi, virðast líða vegna hugmyndaskorts og draga plötuna örlítið niður. Heilt yfir leyna textarnir, fullir af sársauka, á sér og verða betri við hverja hlustun. Sem sagt: Ljúf og falleg rólyndis- plata frá miklu hæfileikafólki. - kg Á morgun: Gruggveislu verður slegið upp á Gauki á Stöng. Hljómsveit leikur lög eftir hljóm- sveitirnar Pearl Jam, Alice In Chains, Nirvana, Smashing Pumpkins og Stone Temple Pilots. Húsið opnar klukkan 22. Nýir hljómsveitar- félagar Ragnars Sólbergs eru reglu- menn eins og hann. Ragnar Sólberg er nýr gítarleikari Pain of Salvation DREKINN WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR (KUNG FU) S k e i f a n 3 j | S í m i 5 5 3 8 2 8 2 | w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s Kínversk hugræn teygjleikfimi -WU SHU ARTKUNG FU Tai Chi Qi Gong FYRIR BÖRN OG UNGLINGA fyrir líkama og sál 15% afsláttur af heilsumeðferð þegar þú kaupir leikfimikort
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.