Fréttablaðið - 12.01.2012, Page 57
FIMMTUDAGUR 12. janúar 2012 41
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 12. janúar 2012
➜ Tónleikar
19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands
heldur tónleika með sigurvegurum úr
einleikarakeppni þeirra og Listaháskóla
Íslands. Fjórir nemendur stóðu uppi
sem sigurvegarar keppninnar og koma
hér fram með Sinfóníuhljómsveitinni.
Tónleikarnir verða haldnir í Eldborgarsal
Hörpu undir yfirskriftinni Ungir einleik-
arar. Miðaverð er kr. 3.500.
➜ Fundir
12.00 Hádegisfundur um Íslam, stjórn-
mál og framtíð Mið-Austurlanda verður
haldinn í Lögbergi, stofu 101. Magnús
Þorkell Bernharðsson prófessor við
Williams háskóla í Bandaríkjunum held-
ur erindið á vegum Alþjóðamálastofn-
unar Háskóla Íslands. Allir velkomnir.
13.30 Bókmenntaklúbbur kennara
á eftirlaunum heldur fund í Kennara-
húsinu við Laufásveg. Guðrún Frið-
geirsdóttir kynnir bókina Á rauðum
sokkum, en hún er einn af höfundum
bókarinnar.
➜ Uppákomur
21.00 Corona kvöld með lifandi fönk
tónlist, Beer-Pong og fleiri spilum á
Glaumbar. Aldurstakmark er 20 ára og
aðgangur ókeypis.
➜ Kynningar
17.00 Félagið Ísland-Palestína heldur
kynningarfund á sjálfboðastarfi sínu í
Palestínu 2012. Fundurinn fer fram í
fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar,
Hringbraut 121.
➜ Tónlist
21.00 GJG Trio heldur tónleika á Café
Rosenberg. Aðallega verða leikin lög
sem Django Reinhardt spilaði í kringum
seinna stríð. Tríóið skipa þeir Gunnar
Hilmarsson á gítar, Jóhann Guðmunds-
son á gítar og Gunnar Hrafnsson á
kontrabassa. Aðgangur er
ókeypis.
22.00 Bítladreng-
irnir blíðu halda
tónleika á Ob-La-Dí
Frakkastíg 8. Aðgang-
ur er ókeypis.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.
is.
GLEÐILEGT NÝTT DANSÁR!
DANSSTJARNA úr SO YOU THINK YOU CAN DANCE?
kemur í heimsókn á önninni! ÁRSKORTSHAFAR njóta sérkjara!
VIÐ ÞÖKKUM VELUNNURUM SKÓLANS FYRIR VIÐBURÐA- &
KÆRLEIKSRÍKT ÁR!
GLÆSILEG SÝNING Í HÖRPUNNI Í LOKIN!
ÞÖKKUM:
Nemendum – Foreldrum – Kennurum
ÍTR – Þrótti – HK – Sjálandsskóla – Hörpu
STÖÐ 2 – Ölgerðinni - Panartica Pegasus
Bláa Lóninu – JÁ.is – Smáralind & Rolf Johansen
Erlendum samstarfsaðilum
Fáðu útrás fyrir DansGleðinni og
skráðu þig strax á dancecenter.is!
Aldur: 3-4 ára, 5-6 ára, 7-9 ára,
10-12 ára, 13-15 ára, 16-19 ára,
20-24 ára, 25-34 ára, 35+
DÖNSUM svo lengi sem lifum!
Jazzfunk Street Hip hop Break
Sér tímar að hætti MEISTARA Michael Jacksson!
Barnadansar & Ballett
REYKJAVÍK – ÞRÓTTI, Þróttur, Engjavegi 7
KÓPAVOGUR – HK, Digranesvegi
GARÐABÆ – SJÁLANDSSKÓLA, 2. HÆÐ Löngulínu 8.
REYKJAVÍK - KÓPAVOGUR - GARÐABÆR
Í glæsilegri aðstöðu:
SKRÁÐU
ÞIG NÚNA
dancecenter.
is
dancecenter.is
dancecenter@dancecenter.is
777 3658
Nánari upplýsingar fást á
og á facebookgrúbbu DanceCenter RVK.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á
eða hringja
í síma hjá DanceCenter Reykjavík.
DansLið þáttanna
kemur sérstaklega
á vegum:
Júlí Heiðar
Steinunn
Anný
Inga Rún
Jóhanna Margrét
Rai
Lelita
Guðrún Kara
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Ný plata tónlistarmannsins Black
Valentine, Polygamy Is Alright
By Me, verður fáanleg ókeypis
til niðurhals á heimasíðu hans
blackvalentine.bandcamp.com í
eina viku.
Fyrstu tvær plötur hans,
Sex on the Beach og Rehab
is for Quitters, verða einnig
fáanlegar ókeypis á síðunni.
Black Valentine er „lo-fi, syntha-
skotið“ brimbrettapopp, fram-
reitt af Pétri Úlfi Einarssyni sem
hefur einnig spilað með Pornopop
og IKEA SATAN. Lagið I Don´t
Want To Go Out With You Again
af nýju plötunni hefur hljómað
nokkuð í útvarpi að undanförnu.
Ókeypis í eina viku
ÓKEYPIS Ný plata Black Valentine er
fáanleg ókeypis á síðu hans.
Hin goðsagnakennda hljómsveit Blur, með fyrrum
Kaffibarseigandann Damon Albarn fremstan í flokki,
mun væntanlega koma fram á Brit-verðlaununum í
næsta mánuði. Talið er líklegt að hljómsveitin muni í
kjölfarið bregða sér í hljóðver.
Blur hefur ekki verið starfandi síðan 2003 fyrir
utan litla tónleikaröð 2009. Þeir munu hins vegar
taka við heiðursverðlaunum Brit og í kjölfarið leika
nokkra gamla og góða Blur-slagara. „Það verður
mjög skondið að spila þessi lög á ný,“ hefur tónlistar-
tímaritið NME eftir gítarleikaranum Graham Coxon.
Hann bætti því við að meðlimir hljómsveitarinnar
hafi verið að hittast af og til en ef þeir ætluðu sér
að gera eitthvað þá yrðu þeir að taka hlutina fastari
tökum. „Ef Blur gerir eitthvað í hljóðveri þá verður
það að vera flott og metnaðarfullt. Annað sæmir ekki
þessari hljómsveit,“ segir Coxon.
Alex James, sem plokkar bassann í Blur, sagði að
þeir myndu mögulega fara í hljóðver. En hugsanlega
yrði það ekki meira en bara smáskífa. „Er breiðskífa
ennþá til? Og þarf hún alltaf að koma út með tólf
lögum?“
Blur í hljóðver eftir Brits
HEITIR Blur-liðar ætla að leika nokkur gömul lög þegar þeir
verða heiðraðir á Brits. Hugsanlega fer hljómsveitin í hljóðver
skömmu eftir það. NORDICPHOTOS/GETTY