Fréttablaðið - 12.01.2012, Page 62
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR46
BESTI BITINN Í BÆNUM
Alls bárust 98 verk til Eddunnar, íslensku sjónvarps-
og kvikmyndaverðlaunanna. Þetta eru ögn fleiri verk
en bárust í fyrra að sögn Brynhildar Ólafsdóttur,
nýráðins framkvæmdastjóra Eddunnar. Brynhildur
var um árabil fréttamaður á Stöð 2, var síðan upplýs-
ingafulltrúi hjá Saga Capital en hefur að undanförnu
unnið fyrir framleiðslufyrirtækið Saga Film og verið
leiðsögumaður.
Brynhildur, sem tók við starfinu í síðustu viku,
segir þar mestu muna um sjónvarpsverk. Í fyrra
bárust 36 verk í þeim flokki en í ár eru þau 63 eða um
75 prósentum fleiri. „Þarna er auðvitað um að ræða
bæði leikið efni og svo alla aðra sjónvarpsþætti, lífs-
stílsþætti, frétta- og viðtalsþætti, skemmtiþætti og
annað í þeim dúr,“ segir Brynhildur en nú taka fjórar
valnefndir til starfa sem velja það besta úr hverjum
flokki fyrir sig. Þær skila sínum tilnefningum 3.
febrúar en verðlaunin sjálf verða afhent rúmum
hálfum mánuði síðar, laugardaginn 18. febrúar í
Gamla bíói í beinni útsendingu Stöðvar 2.
Að sögn Brynhildar berjast níu kvikmyndir um
hylli valnefndarinnar. Aðeins þrjár hljóta hins vegar
náð fyrir augum nefndarinnar og því ljóst að barátt-
an um þá tilnefningu verður ansi hörð. „Reglurnar
eru þær að ef myndirnar eru fleiri en tíu þá eru
fimm tilnefndar. Ef þær eru hins vegar færri þá eru
þrjár tilnefndar,“ útskýrir Brynhildur. - fgg
Brynhildur stýrir Eddunni
Tökur á nýju tónlistarmyndbandi
með norsku poppstjörnunni Atle
Pettersen og hinum upprennandi
Rex hefjast í Reykjanesbæ á
morgun.
„Umboðsmaðurinn hans Rex er
hálfíslenskur. Hann hafði lengi
langað að vinna á Íslandi,“ segir
Elísabet Thoroddsen, deildar-
stjóri kvikmyndadeildar Pipar/
TBWA, sem annast framleiðsl-
una. Umboðsmaðurinn sem um
ræðir heitir Daniel Hamnes.
Atle Pettersen er sjóðheitur í
Noregi um þessar mundir. Hann
hefur átt mörg lög á vinsælda-
listum og varð hlutskarpastur í
sjónvarpsþættinum Dancing with
the Stars. Áður hafði hann lent í
öðru sæti í X-Factor þar í landi.
Lagið sem þeir Rex syngja í
myndbandinu heitir Amazing og
leikstjóri verður Gus Ólafsson,
sem hefur starfað mikið úti í Los
Angeles. Listrænn stjórnandi verð-
ur popparinn Haffi Haff. Upp-
tökurnar fara fram í Atlantic
Studios á Ásbrú í Keflavík, sem
er kvikmyndaver í gömlum húsa-
kynnum herflugvéla bandaríska
hersins.
Að sögn Elísabetar er
umboðsskrifstofan sem Daniel
vinnur hjá á meðal þeirra fimm
stærstu í Noregi. „Það er mikill
áhugi fyrir Íslandi úti. Þeim
finnst þetta dálítið framandi að
koma hingað og vinna. Það er fullt
af listamönnum sem hafa áhuga á
að koma hingað og þetta myndband
gæti orðið farvegur fyrir einhver
fleiri skemmtileg og stór verkefni.“
- fb
Norskar poppstjörnur á Íslandi
TIL ÍSLANDS Norska poppstjarnan Atle
Pettersen tekur upp sitt nýjasta mynd-
band á Íslandi.
Í NÝRRI STÖÐU Brynhildur Ólafsdóttir er nýr framkvæmda-
stjóri Eddunnar en alls bárust 98 verk til íslensku sjónvarps-og
kvikmyndaakademíunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
REX Rex er upprenn-
andi stjarna í Noregi
um þessar mundir.
LA BOHÈME
GIACOMO PUCCINI
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR
GISSUR PÁLL GISSURARSON
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON
HRÓLFUR SÆMUNDSSON
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR
BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON
LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN
BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR
LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
MIÐASALAN HEFST Í DAG KL. 12
Í SÍMA 528 5050 OG Á HARPA.IS
FRUMSÝNING 16. MARS KL. 20
ÚTSALA
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
Kr
in
gl
an
s
ím
i:
53
3
17
40
//
S
m
ár
al
in
d
sí
m
i:
53
4
17
40
//
w
w
w
.k
ar
en
m
ill
en
.c
om
50 70%
afsláttur
„Ég fer á alla sveittustu staðina
þegar ég kem heim. Efstir á
blaði eru yfirleitt Bæjarins bestu
og svo Skýlisloka hjá Skýlinu.“
Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður
í handbolta.
„Það eru ansi margir umsækj-
endur í ár en við höfum svo sem
séð álíka háar tölur áður. Þetta
er hins vegar góð þróun og gott
að aðsóknin í listina fari hækk-
andi með hverju ári,“ segir Stefán
Jónsson, leikari og fagstjóri leik-
listardeildar Listaháskóla Íslands,
en í ár bárust um 173 umsóknir í
leiklistardeild skólans.
Þónokkur handagangur er í
öskjunni innan skólans þessa dag-
ana en nú fara fram hin margum-
töluðu inntökupróf í leiklistar-
deild Listaháskólans og vongóðir
umsækjendur bíða í röðum. Inn-
tökuprófin fara fram á tveggja
ára fresti og eru umsækjendur á
aldursbilinu 19-25 ára.
Fyrsta þrepi umsóknarferlisins
lauk í gær og í gærkvöldi fengu
umsækjendur að vita hverjir færu
áfram á annað þrepið en inntöku-
prófunum í skólann er skipt niður
í þrjú þrep. Um 60 komast áfram
í annað þrep og að lokum eru 20
manns í síðasta þrepinu en 8-10
manns fá að lokum inngöngu í
skólann.
Inntökuprófið samanstendur af
líkams-, radd- og dansæfingum,
viðtölum, einleikjum og hópverk-
efnum. Einnig fær hver og einn
umsækjandi viðtal með dóm-
nefndinni.
„Þetta gengur sinn vanagang
og inntökuferlið er ávallt í föst-
um skorðum,“ segir Stefán en
hann situr ekki í dómnefnd að
þessu sinni. „Ég er búinn að vera í
þessu svo mörgum sinnum og svo
dregur maður sig í hlé ef maður
hefur einhverjar nánar tengingar
inn í umsækjendahópinn,“ segir
Stefán en vill ekki fara nánar út
í þau mál.
Dómnefndina að þessu sinni
skipa Steinunn Knútsdóttir, deild-
arforseti leiklistardeildar, Una
Þorleifsdóttir aðjúnkt sviðslistar,
Guðjón Pedersen, fyrrum leikhús-
STEFÁN JÓNSSON: UNGA FÓLKIÐ TEKUR LISTIR FRAM YFIR FJÁRMÁL
Hátt í tvö hundruð keppa
um tíu sæti í leiklistarnámi
GLEÐST YFIR GÓÐRI
AÐSÓKN
Hátt í 200 umsóknir bárust í leik-
listardeild Listaháskólans en þessa
dagana fara fram inntökupróf. Stefán
Jónsson, fagstjóri deildarinnar, gleðst
yfir miklum áhuga. Umsóknarferlið
skiptist í þrjú þrep og lýkur í lok
mánaðarins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
stjóri í Borgarleikhúsinu, Snorri
Engilbertsson, fulltrúi nemenda,
og Ragnar Bragason kvikmynda-
leikstjóri.
Umsóknarferlinu lýkur í lok
mánaðarins og verður þá ljóst
hvaða einstaklingar komast inn
í þetta eftirsótta nám. Há tala
umsækjenda í ár viðist vera í
takt við þá þróun sem hefur verið
undan farið en árið 2010 voru
umsækjendur 164 talsins. „Ég vil
meina að þessi tala sé í takt við
það sem hefur verið að gerast í
kjölfar kreppunnar, fólk sækir
frekar á náðir háskólanna. Einnig
vona ég að þetta sé kannski
ávísun um að gildismatið í sam-
félaginu sé að breytast, að unga
fólkið sé nú að taka listirnar fram
yfir fjármálamenntunina.“
alfrun@frettabladid.is