Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 6
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR6 hófsamlega með þessar heimildir.“ Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir starfsmenn þar ávallt telja sig vera að vinna eftir lögum og reglum hverju sinni. „Og þetta er okkar skoðun, en auðvitað er þetta í einhverjum tilfellum matsatriði,“ segir hún. Sigrún segir að valinn hópur starfsmanna ÁTVR hafi það með höndum að taka afstöðu til umsókna um reynslusölu, en ákvörðunin sé alltaf á ábyrgð for- stjóra. Ekki sé víst að þetta sé heppilegt kerfi, enda taki ákvarð- anir ÁTVR ekki til innflutnings og geti veitingastaðir boðið upp á vín sem ÁTVR hafnar. „Það má alveg velta því fyrir sér hvort það væri ekki heppilegra að það væri einhver sem almennt tæki afstöðu til þess hvað ætti að vera á markaðnum,“ segir Sigrún, til dæmis stjórnvaldsnefnd sem heyrði beint undir ráðuneytið. stigur@frettabladid.is Úr lögum um verslun með áfengi og tóbak STJÓRNSÝSLA „Það er langt seilst í rökstuðningi fyrir þessari ákvörð- un ÁTVR,“ segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skatta- nefndar Alþingis, um þá ákvörðun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis- ins að heimila ekki sölu rauðvíns- ins Motörhead Shiraz, sem greint var frá í Fréttablaðinu í gær. Hann hvetur ÁTVR að gæta hófs þegar vörur eru útilokaðar þaðan. Víninu var hafnað þar sem hljómsveitin Motörhead, sem vínið er nefnt eftir, kemur ekki nálægt framleiðslu þess sjálf, auk þess sem nafnið er talið skírskota til óheilbrigðra lifnaðarhátta. Þannig sé enska orðið ‚motorhead‘ slang- uryrði yfir amfetamínneytanda og textar sveitarinnar fjalli „iðulega um stríð, misnotkun valds, óábyrgt kynlíf og misnotkun vímuefna“. Reglur um vöruval ÁTVR voru lögfestar í fyrsta sinn í fyrra á grundvelli innkaupareglna sem notast hafði verið við um nokkra hríð. „Lagaákvæðið var ekki hugsað til þess að vörum væri hafnað með tilvísun til tónlistarsmekks,“ segir Helgi, sem hafði lagafrumvarpið til meðferðar í efnahags- og skatta- nefnd. „ÁTVR hefur verið að vinna með vöruvalsreglur um árabil og þing- ið samþykkti tillögur fjármálaráð- herra um að skjóta lagastoð undir þær reglur og það eru málefnaleg- ar ástæður til þess að ÁTVR hafi slíkar heimildir,“ segir hann. „Það á ekki síst við þegar verið er að markaðssetja áfengi sérstak- lega á börn og ungmenni undir áfengiskaupaaldri í formi sælgæt- is eða íss eða umbúða af ýmsu tagi, en það er mikilvægt að ÁTVR fari LÖGREGLUMÁL Lögregla stefnir að því að ljúka í næstu viku rann- sókn tveggja nauðgunarmála gegn skemmtikraftinum Agli Einars- syni, að sögn Björgvins Björgvins- sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Áður en hægt er að ljúka rann- sókn vegna síðari kærunnar sem barst seinni part janúar þarf að taka skýrslur af vitnum sem nú eru stödd erlendis en eru væntan- leg til landsins í næstu viku. Átján ára stúlka kærði Egil og unnustu hans fyrir nauðgun í nóvemberlok og þegar málið hafði verið til rannsóknar um nokkurt skeið barst kæra vegna annarr- ar nauðgunar sem Egill á að hafa gerst sekur um fyrir átta árum. Stúlkan í því tilfelli var þá fimm- tán ára. Egill hefur opinberlega borið af sér sakir í báðum mál- unum. Lögregla lauk rannsókn vegna fyrri kærunnar um miðjan janúar og sendi það í kjölfarið til Ríkis- saksóknara. Ríkissaksóknari vís- aði málinu hins vegar aftur til lögreglu og taldi að skerpa þyrfti á ákveðnum þáttum rannsóknar- innar. Hún er nú á lokastigi á ný. - sh Lögregla stefnir að því að ljúka tveimur nauðgunarrannsóknum í næstu viku: Bíða vitna að utan í máli Egils EGILL EINARSSON Hefur staðfastlega neitað því að hafa gerst sekur um nauðgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SKAGAFJÖRÐUR „Ekki er hægt að una slíkum samskiptum á milli stjórnsýslustiga og ámælisvert að æðstu ráðmenn landsins skuli koma þannig fram við heilu landshlutana,“ segir byggða- ráð Skagafjarð- ar sem kveður stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undanfarna mánuði árangurslaust reynt að ná fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Samtökin vilja ræða við Jóhönnu um „mjög erfiða stöðu byggða á Norðurlandi vestra og leggja fram tillögur til lausna á þeim vanda“. Á skömmum tíma hafi 45 opinber störf horfið úr Skagafirði. - gar Ósáttir sveitarstjórnarmenn: Norðlendingar álasa Jóhönnu JÓHANNA SIG- URÐARDÓTTIR Tónlistarsmekkur ráði ekki úrvalinu í ÁTVR Formaður efnahags- og skattanefndar segir ÁTVR seilast langt eftir rökum fyrir því að banna rauðvín merkt Motörhead og hvetur til hófs. Löggjöf um vöruval hafi ekki haft þennan tilgang. Talsmaður ÁTVR stingur upp á breyttu verklagi. SÝRLAND, AP Sýrlenskir hermenn skutu sprengjum á borgina Homs í gær, sjötta daginn í röð. Sprengjuárásirnar á borgina hafa kostað hundruð manna lífið síðan þær hófust fyrir tæpri viku. Enn hefur Sýrlandsher þó ekki tekist að ná þessari milljón manna borg á sitt vald. Ban Ki-moon, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að Arababandalagið ætli að senda eftirlitsmenn aftur til Sýrlands. Meðal annars sé í bígerð sam- starf eftirlitsmanna Arababanda- lagsins við Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna, en enn eigi eftir að útfæra slíkt samstarf. - gb Sýrlandsher sprengir áfram: Umsátur kostar hundruð lífið SPRENGJUM RIGNIR Á HOMS Þykkan reyk má sjá skammt frá mosku í hverf- inu Baba Amro. NORDICPHOTOS/AFP SJÁVARÚTVEGUR Blikur eru á lofti með norsk-íslenska síldarstofninn að mati norskra fiskifræðinga. Óttast þeir að nýliðun stofns- ins verði léleg næstu fimm árin, en um málið er fjallað í nýjustu Fiskifréttum. Gangi spár eftir dragast veiðar Íslendinga saman um 57 prósent miðað við meðalveiði og um 75 prósent miðað við aflann þegar hann var mestur árið 2009. Samkvæmt samkomulagi er hlutur Íslands í aflanum 14,51 prósent, en hlutur Íslands í ár er um 120 þúsund tonn af 833 þús- und tonna heildarkvóta. - shá Norsk-íslenski síldarstofninn: Óttast lélega nýliðun stofns Á Ísland að draga sig úr Eurovision-keppninni í Aserbaídsjan? JÁ 57,9% NEI 42,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú selt gamla gullskart- gripi fyrir reiðufé? Segðu þína skoðun á visir.is HELGI HJÖRVAR SIGRÚN ÓSK SIGURÐARDÓTTIR SAMGÖNGUR Ríflega helming- ur íbúa á höfuðborgarsvæðinu ferðast aldrei með strætisvögn- um, en um 14 prósent íbúanna fara með strætó einu til tvisvar í viku, aðrir sjaldnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri ferðavenjukönnun sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu. Rúm 12 prósent hjóla að stað- aldri og nærri 49 prósent hluta úr ári. En 39 prósent hjóla aldrei, færri en þeir sem aldrei fara í strætó. Jafnmargir fara í strætó og 2002 en mun fleiri ferðast nú hjólandi eða 3,8 prósent miðað við 0,3 prósent árið 2002. - shá Ferðavenjur kannaðar: Helmingur fer aldrei í strætó Í STRÆTÓ Fleiri og fleiri fara ferða sinna hjólandi. „ÁTVR er heimilt að hafna vörum sem innihalda gildishlaðnar eða ómálefnalegar upplýsingar eða gefa til kynna að áfengi auki líkamlega, andlega, félagslega eða kynferðis- lega getu, særa blygðunarkennd eða brjóta á annan hátt í bága við almennt velsæmi, m.a. með skír- skotun til ofbeldis, trúar, ólöglegra fíkniefna, stjórnmálaskoðana, mis- mununar og refsiverðrar háttsemi.“ UMHVERFISMÁL Grand Hótel Reykjavík hyggst fyrst hótela í borginni taka upp þriggja þátta sorpflokkunarkerfi á herbergj- um. Kerfið er hluti af markvissri flokkun úrgangsefna sem nær til allrar starfsemi hótelsins: eld- húss, veitingastaða, skrifstofa og herbergja. Þetta er liður í þeirri vinnu að gera hótelið og starfsemi þess umhverfisvænni og að verða leið- andi á sviði umhverfismála. Starfsmenn hótelsins vilja leita leiða til að minnka umhverfisspor hótelsins og að stuðla að bjartri framtíð ferðaþjónustunnar á Íslandi, segir í frétt á vef Sam- taka ferðaþjónustunnar. - shá Vistvænt Grand Hótel: Sorp flokkað á herbergjum GRAND HÓTEL Nú er sorp flokkað á her- bergjum hótelsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GRIKKLAND, AP Leiðtogar grísku stjórnarflokkanna náðu í gær samkomulagi um sparnaðaraðgerðir eftir að erfiðar samningaviðræður höfðu dregist á langinn dag eftir dag í meira en viku. Daginn áður höfðu fulltrúar Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gefið stjórninni hálfs mánaðar frest til að finna hvar í ríkisrekstrinum finna megi þá 300 milljarða evra, sem Grikkjum var gert að skera niður til þess að fá frekari fjár- hagsaðstoð. Niðurstaðan fékkst loks í gær, nokkrum klukku- stundum fyrir fund fjármálaráðherra evruríkjanna, sem haldinn var í Brussel í gærkvöld. Það sem síðast strandaði á voru kröfur um að eftir laun ríkisstarfsmanna yrðu lækkuð. Í nýja aðgerðapakkanum eru meðal annars skattahækkanir, launalækkanir og fækkun ríkis- starfsmanna, en allt þetta bætist ofan á erfiðan niður skurð sem bitnað hefur illa á almenningi. Til þessa hefur niðurskurðurinn þó ekki dugað til að koma ríkisfjármálum Grikklands í betra horf. Þvert á móti virðist ástandið versna með hverjum mánuðinum. Grísk stjórnvöld þurfa fjárhagsaðstoð til þess að geta greitt næstu stóru afborganirnar af ríkis- skuldum, hinn 20. næsta mánaðar. - gb Gríska stjórnin afgreiddi ný aðhaldsáform stuttu fyrir ráðherrafund evruríkjanna: Samkomulag á síðustu stundu MÓTMÆLI Í GRIKKLANDI Fólk hefur fjölmennt út á götur til að mótmæla frekari niðurskurði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NOREGUR Lögregluna í Hörðalandi í Noregi grunar að tíu bílar kunni að vera í sjónum fyrir utan Knar- vik norður af Bergen. Síðdegis í gær var búið að hífa að minnsta kosti nokkra bíla upp með sér- stökum kranabát. Að sögn lögreglunnar var það við leit að öðru á svæðinu sem bílhræin fundust í sjónum. Grunur leikur á að um trygg- ingasvik sé að ræða. Fulltrúar tryggingafélaga munu rannsaka málið og kanna hvort tryggingar hafi verið greiddar fyrir bílana, að því er greint er frá á fréttavef Aftenposten. - ibs Grunur um tryggingasvik: Bílarnir í hafið KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.