Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 26
6 • LÍFIÐ 10. FEBRÚAR 2012 ALDUR: 41 árs MAKI: Paul Weil BÖRN: Indía Salvör Menuez, 18 ára og Lóla Salvör Weil, 5 ára. STARF/MENNTUN: Skartgripahönnuður/ Listakona að mestu sjálfmenntuð BÚSETA: Brooklyn, New York ÁHUGAMÁL: Fólk LÍFSMOTTÓ: Lead by example SÍÐASTA SMS SEM ÞÚ FÉKKST: It really worked! It put a smile on my face. Thank you for the necklace, I love it! – frá tannlækninum mínum, Julian. HEIMASÍÐAN ÞÍN: WWW.KRIAJEWELRY.COM Jóhanna Methúsalemsdóttir skartgripa- hönnuður, sem búsett er í stórborginni New York, stendur fyrir merkinu Kría Jewelry sem hefur vaxið hratt undanfarið. Jóhanna fær allan sinn innblástur úr íslenskri náttúru og er von á nýrri línu á næstunni þar sem þorskbein leika aðalhlutverkið. Hvenær og hvernig varð Kría Jewelry að veruleika? Kría fæddist árið 2007, sama ár og dóttir mín Lóla Salvör en það má rekja upphaf hennar beint til strandgöngu minnar á Íslandi árið 2006 þegar ég fann kríubein. Ég heillaðist mikið af formum beinanna og ákvað að hirða þau, sjóða og taka með mér heim. Þegar heim var svo komið byrjaði ég að púsla þeim saman og þannig varð Kría til. Hvernig hefur gengið síðan? Kría hefur dafnað vel og vaxið úr því að vera fimmtán til tuttugu stykkja lína í að verða í kringum níutíu og fimm stykkja lína. Kría er seld í ell- efu búðum í New York, á Íslandi og í Noregi. Kría tók þátt í sýningunni Náttúra í hönnun árið 2010 sem var sett upp í Landsvirkjun, einnig tók hún þátt í Hönnunarmars sama ár og var tilnefnd til menningarverðlauna árið 2011 svo fátt eitt sé nefnt. Hvernig færðu hugmyndirnar að því sem þú skapar? Ég finn mér einhver falleg form úr náttúrunni til að vinna með og byrja svo að setja þau saman eða hengja þau á mig á einn eða annan hátt og sé svo hvernig hlut- irnir hanga á eða sitja á líkamanum og held svo áfram þaðan. Stundum þegar maður tekur formin úr umhverfi sínu líta þau út fyrir að vera eitthvað allt annað en þau eru og það heillar mig hvað mest við að vinna með form beint úr náttúrunni. Hvaða efni notar þú í hönnun þína? Ég vinn helst með silfur, 14 karata gull og er nýbyrjuð að vinna aðeins með brass líka. Nú býrðu ekki á Íslandi en virðist engu að síður fá innblásturinn héðan, hvernig ferðu að því? Innblásturinn fæ ég sérstak- lega úr Íslenskri náttúru þegar ég kem til landsins og frá fólkinu í kringum mig. Næsta lína er eingöngu búin til úr þorskbeinum sem voru send til mín frá Íslandi. Þar er ég að tengja beint við mínar íslensku rætur. Hver er markhópurinn? Ég hanna fyrir fólk sem er forvitið. Hvar selur þú vöruna þína? Á Íslandi fást vörurnar í verslununum Aurum, Mýrinni og ICELANDICMARKET.COM. Í New York fást þær í Eva, Love Adorned, Albertine Gene- ral, Project no 8, Beautiful Dreamers, Vpl, og í Noregi í Cintamani Butikken. Hvar hannar þú? Ég hanna á heimili mínu í Brooklyn þar sem ég og maðurinn minn erum með sameiginlegt stúdíó en hann er málari. Er eitthvað spennandi á döfinni sem þú vilt deila með Lífinu? Ég mun koma til landsins fyrir Hönnunarmars sem fram fer 22. mars til 25. mars í boði Tanqueray, í þeirri ferð mun ég kynna nýju línuna mína í Aurum í Bankastræti 4. Einnig mun Kría taka þátt í sýningu í Hafnarborg sem ber nafn- ið Rætur og er um íslenska samtíma skart- gripahönnun. Svo er það Pop Up-búð, gall- erísýning í Berlín og viðræður við fleiri sölu- staði svo að það eru annasamir tímar fram undan. Viltu gefa ungum og efnilegum hönnuðum sem eru að stíga fyrstu skrefin góð ráð? Treystu sjálfum þér en vertu alltaf opinn fyrir hugmyndum og ráðum frá öðrum og ekki láta egóið þvælast fyrir þér. HEILLAÐIST AF KRÍUBEINUM Jóhanna Methúsalemsdóttir fær allan sinn innblástur frá Íslandi. Íþróttabrjóstahaldarar Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Verð: 9.950 kr. Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Verð: 9.750 kr. Nálastungudýnan Bætir svefn og dregur úr verkjum FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP TAKTU VÍSI Á HVERJUM MORGNI! KRÍA JEWELRY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.