Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 10. febrúar 2012 17
landsbankinn.is 410 4040Landsbankinn
jl
.i
s
*Nafnávöxtun 30.12.2010–30.12.2011. Nánari upplýsingar
um ávöxtun sjóðsins er að fi nna á landsvaki.is.
Fyrirvari: Sparibréf verðtryggð er verðbréfasjóður sam-
kvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur e irliti Fjármála-
e irlitsins. Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og
Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt
árfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði
hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vís-
bendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um
sjóðinn má fi nna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á
landsvaki. is eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að
kynna sér útboðslýsinguna áður en árfest er í sjóðnum,
en þar er meðal annars ítarleg um öllun um árfestingar-
stefnu sjóðsins og áhættu sem felst í árfestingu í honum.
Landsbankinn býður upp á öl-
breytt úrval ríkis skulda bréfa sjóða.
Sparibréf verðtryggð er sjóður sem
árfestir í verðtryggðum skuldabréf-
um íslenska ríkisins og hefur það
markmið að endurspegla ávöxtun
verðtryggðra ríkisskuldabréfa.
Reglubundinn sparnaður
Með reglubundnum sparnaði í
sjóðum getur þú byggt upp eigna-
safn með áskri frá 5.000 kr. á
mánuði. Enginn munur er á kaup-
og sölugengi í áskri . Sparnað
í sjóðum má alltaf innleysa.
Komdu við í næsta útibúi, hringdu
í 410 4040 eða sendu okkur póst
á armalaradgjof@landsbankinn.is.
Framúrskarandi
ávöxtun Sparibréfa
verðtryggðra á
árinu 2011
16,3%
Ársávöxtun
2011*
– Lifið heil
Fyrir
börnin
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
81
01
0
1/
12
Gildir 1.-15. febrúar 2012.
20%
afsláttur
af allri Biomega línunni.
Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem
fer í sundlaugar hér og þar um
landið. „Mikið mætti spara
með því að fækka þeim og nýta
heita vatnið í aðra og uppbyggi-
legri hluti,“ gætu menn sagt.
Nú er til dæmis flott sundað-
staða í Reykjanesbæ. Þegar
búið er að flytja flugvöllinn
til Keflavíkur blasir
við að hægt verði að
fækka sundlaugum um
landið töluvert. Menn
munu þá geta hoppað
í flugvél eftir vinnu,
farið í sund í „Lands-
háskólasundlauginni“
í Reykjanesbæ og
komið heim fyrir
tíufréttir.
Samlíkingin sem hér
er sett upp, í tengslum
við Landspítalann –
Háskólasjúkrahús er
kannski hvorki hnytt-
in né góð. Helsti galli
hennar er að sjúkra-
hús eru sérhæfðar
stofnanir, en sundlaugar varla.
Sameining sjúkrahúsa hefur því
kosti sem sameining sundlauga
hefur ekki. En ókostirnir eru
samt svipaðir.
Lego-kubba-draumar
Mörg okkar, og þá sérstaklega
þau sem láta sig þjóðfélagsmál
varða, heillast gjarnan af hug-
myndum um einhverjar stórar
byggingar sem hýsa ástríður
þeirra og ævistörf. Og auðvitað
teljum við hugmyndirnar
undantekningarlítið verðskulda
opinbert fjármagn. Einn vill
risasjúkrahús, annar óperuhöll,
sá þriðji yfirbyggða sundlaug í
ólympíulengd. Það er oft gaman
þegar þessar byggingar eru
risnar, en við sjáum aldrei það
sem ekki varð til fyrir þá pen-
inga sem þær kostuðu.
Harpan kostar hvern Íslend-
ing 3.000 kr. á ári næstu 35
árin. Kannski finnst mörgum
það þess virði. En eitt þarf að
hafa í huga: Allt í kringum land-
ið sitja sveitarfélög uppi með
nýkláruð risagóðærisverkefni
sem kjósendur næstu áratuga
munu þurfa að borga, hvort
sem þeim líkar það vel eða illa.
Sveitarfélögin féllu þannig í
sömu gryfjuna og mörg heim-
ili sem skuldbundu sig til að
greiða ógrynni fjár í steypu og
málm og þurfa nú að láta öllu
skemmtilegri útgjöld mæta
afgangi. Það er fljótlegra að
segja upp líkamsræktarkortinu
en að selja húsið.
All-in
Menn byggja risatónlistarhús.
Allir glaðir. Nasa lokar. Allir fúlir.
„Björgum Nasa,“ segja allir. Það
er kannski bjartsýni að ætla að
almenningur hætti að krefjast
útgjalda í hluti sem hljóma vel.
En auðvitað er það samt þannig
að hver einasta yfirtaka borgar-
innar á óarðbærum rekstri kostar
pening og skekkir auk þess sam-
keppnisstöðu annarra slíkra staða.
Borgin rekur Hörpuna, Tjarnar-
bíó, Paradís og Austurbæjarbíó.
Það er gott í bili.
Reyndar skal viðurkenna að upp-
kaup á þegar byggðu húsnæði, eins
og Austurbæjarbíói, eru að mörgu
leyti heppilegri en margra áratuga
skuldbindingar í nýjum risaverk-
efnum. Borgarstjórnir
framtíðar geta selt Aust-
urbæjarbíó ef þau vilja.
Næstu tíu kjörtímabil
munu borgarstjórnir
Reykjavíkur hins vegar
greiða vextina af Hörpu,
sama hvað þeim finnst.
Einkaaðilar geta
alveg rekið skemmti-
staði. Maður eiginlega
óttast þá þróun að sjálf
yfirlýsing eiganda um
að hann hyggist byggja
hótel eða íbúðir í mið-
bænum skuli oft duga
til að setja af stað
atburðarás sem endar
með því að eigandinn
fær borgað fullt án þess að
þurfa að að byggja nokkuð. Ef
hefð kemst á að nota skattfé til
að kaupa menn úr óarðbærum
rekstri, þá munum við vart gera
annað.
Alveg viss?
Loks aftur að nýrri byggingu
Landspítala – Háskólasjúkra-
húss. Áttum okkur á nokkrum
afleiðingum þessa verkefnis. Í
fyrsta lagi munu menn ólíklega
færa flugvöllinn, ef miklum
fjármunum er varið í uppbygg-
ingu sjúkrahúss á þessum stað.
Í öðru lagi mun sjúkraþjónusta
utan höfuðborgarsvæðis ólík-
lega batna, enda mun ávallt vera
hagkvæmast að hagræða með
því að færa alla starfsemi til
Reykjavíkur.
Sú vinna sem lögð hefur verið í
hönnun sjúkrahússins að undan-
förnu hefur skilað margfalt betri
og borgarvænni tillögum en lagt
var af stað með. En þetta er engu
að síður mjög mikið fé sem við
skuldbindum okkur til að greiða
í mjög langan tíma. Við þurfum
því að vera mjög viss um að
þetta sé það sem við viljum. Við
þurfum líka að vera undir það
búin að uppbygging heilbrigðis-
þjónustu muni á næstu árum ein-
skorðast við nýja sjúkrahúsið
því við munum þurfa að klára
það. Auðvitað er heilmargt unnið
með byggingunni. Fátt er svo
með öllu illt sem kostar hundrað
milljarða. Vonum bara að það sé
þess virði.
Fátt er svo
með öllu illt
sem kostar
hundrað
milljarða.
Vonum bara
að það sé
þess virði.
Ást á stórum
byggingum
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
AF NETINU
Gúmmíbirnir og „sæt brjóst“
Í fljótu bragði skyldi maður halda að þetta tvennt ætti ekkert sameigin-
legt. Tengslin eru hins vegar þau að þetta er leið framleiðenda til að
markaðssetja gervibrjóst í konur sem breyta mætti lögun að vild og gera
þau um leið „sætari“ eftir tilefni og klæðnaði hverju sinni. Að minnsta
kosti ef marka má auglýsingu framleiðenda sem kalla nýju brjóstapúð-
ana Gummy breast implants. Unnið er að markaðssetningunni og fá þá
samþykkta, meðal annars í Bandaríkjunum. Framleiðendur lofa að þeir
leki minna en aðrar gerðir og mikið hefur verið fjallað um að undan-
förnu. Í allt að fjórðungi tilfella með tímanum og þá þúsundir tilfella hér
á landi að öllu óbreyttu. Að minni hætta sé á að innihald gúmmíbjarn-
anna fari þá á flakk um líkama kvennanna. Sykursjúk þjóð á að öllum
líkindum eftir að falla fyrir þessum sykurpúðum, ekkert síður en öðru
sælgæti og púðum, ef satt reynist.
http://blog.eyjan.is/vilhjalmurari
Vilhjálmur Ari Arason