Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Ofnbakað rótar-
grænmeti
(meðlæti f. 4-5 m.)
2 gulrófur ( meðal-
stórar),
5 gulrætur,
3 steinseljurætur,
5 kartöflur
6 geirar hvítlaukur gróft
skorinn
2 msk. matarolía
1 grein ferskt rósmarín
rifið af
2 msk. hunang
Maldon salt
Svartur pipar úr kvörn
Rótargrænmetið flysjað
og skorið í bita. Sett í
ofnskúffu með hvít-
lauk, olíu, rósmaríni,
hunangi, salti og pipar.
Veltið öllu vel saman
og bakið við 200°C í 30
mínútur.
Rófusalat með
bláberjum og radísum
(meðlæti f. 4-5 m.)
2 gulrófur flysjaðar og
rifnar niður
5 radísur, skornar í
þunnar sneiðar
2 dl bláber, má nota
frosin
2 msk. agavesíróp
1 dl eplasafi eða
annar ávaxtasafi
safi úr 1 límónu
(lime)
Fersk salatblöð til
að skreyta
Öllu blandað vel
saman og skreytt
með blöðum af
fersku salati og radísu-
sneiðum.
Rófusúpa úr Flóanum
(f. 4-5 m.)
½ kg gulrófur, flysjaðar,
skornar í bita
½ kg gulrætur, flysjaðar,
skornar í bita
2 laukar, skrældir og
saxaðir
5 hvítlauksgeirar,
skrældir og saxaðir
Biti engifer, ( 3 cm.)
skrældur og rifinn
½ l vatn
¼ l appelsínusafi
1 dós kókosmjólk (2-3
dl)
Grænmetiskraftur, salt
og pipar,
sýrður rjómi, brauðten-
ingar, ferskar krydd-
jurtir til að skreyta (má
sleppa).
Allt sett í stóran pott
og látið sjóða í ca.
40 mín. til 1 klst. eða
þar til grænmeti er
orðið meyrt. Maukið
í blandara eða með
sprota og kryddið til
með grænmetiskrafti,
salti og pipar. Súpan er
borin fram með sýrðum
rjóma, brauðteningum
og ferskum krydd-
jurtum.
MEÐLÆTI, SALAT OG SÚPA
Nokkrar góðar uppskriftir úr gulrófumG
ulrófan hefur oft verið
kölluð sítróna Norður-
Evrópu því hún er svo
C-vítamínrík en í henni
er líka A-vítamín,“ segir Þorkell
Garðarsson matreiðslumaður.
Hann gefur uppskriftir að nokkr-
um gulrófuréttum í tilefni af
opnun síðunnar rofa.is sem Félag
gulrófnabænda opnaði nýverið.
Á síðunni er að finna hinar ýmsu
upplýsingar um rófur, næringar-
gildi þeirra auk uppskrifta.
Markmiðið með síðunni er að
auka neyslu rófunnar sem hefur
að mati margra ekki notið sann-
mælis í matargerð landans.
Þorkell notaði gulrófuna nokk-
uð í matargerð þegar hann starf-
aði hjá NLFÍ í Hveragerði og hjá
Manni lifandi á sínum tíma og
hefur fullan hug á að bæta henni
inn á matseðil Laundromat á
næstunni en þar starfar hann í
dag. „Ég ætla til dæmis að nota
hana ofnbakaða sem meðlæti með
lambaskönkum,“ segir hann.
Þorkell segir íslenska kokka
hafa tekið ástfóstri við norrænt
grænmeti undanfarið og er rófan
þar ekki undanskilin. „Rófan er
klassísk í rófustöppu og kjötsúpu
en hana má þó einnig nota í ýmsa
aðra rétti,“ segir hann og bendir
á meðfylgjandi uppskriftir því til
staðfestingar. solveig@frettabladid.is
Félag gulrófnabænda hefur opnað vefsíðuna rofa.is en gulrófuna má nota í hina fjölbreyttustu rétti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sítróna Norður-Evrópu
Tónlistarkonan Hafdís Huld og gítarleik-
arinn Alisdair Wright ætla að frumflytja
nýtt efni af væntanlegum plötum á tón-
leikum á Gljúfrasteini á Safnanótt í kvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og eru allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Þú velur 2 aðalrétti af 14 á
matseðli og greiðir eingöngu
fyrir báða réttina
2FYRIR
2500
Nú gerum við okkur glaðan dag
Gril lhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, www.gri l lhusid.is
GRRRillandi gott
í allan vetur