Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 46
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR26
folk@frettabladid.is
? Hæ Sigga Dögg og takk fyrir hressileg skrif í síðustu viku.
Að lesa um fólk sem vill fá annað
fólk í kynlífið sitt finnst mér ansi
framandi og frekar hrollvekjandi.
Ég er samt engin nunna og stunda
alveg mitt kynlíf, þrátt fyrir
að vera ekki í sambandi. Ég fór
aðeins að velta fyrir mér ábyrgu
og óábyrgu kynlífi. Ég gæti
fyllsta öryggis í kynlífi mínu þó
að rekkjunautarnir séu nokkrir,
er ég þá að stunda ábyrgt kynlíf?
Hvað er annars óábyrgt kynlíf,
er það bara án getnaðarvarna eða
er skilningur minn á hugtakinu
lítill?
SVAR: Minn skilningur á ábyrgu
kynlífi felur bæði í sér líkamlega
ábyrgð og tilfinningalega. Það er
ábyrgt af þér, fyrir þig sjálfa og
rekkjunautinn, að nota getnaðar-
varnir en nú velti ég því fyrir mér
hvaða tegund af getnaðarvörn
þú notir. Mér finnst ég alltof oft
heyra af stúlkum sem signa sig
af þakklæti fyrir að vera á pill-
unni, en þungun er alls ekki það
eina sem þarf að hafa áhyggjur
af. Kynsjúkdómar eru algengir
og þeir smitast tiltölulega auð-
veldlega, sér í lagi eftir því sem
rekkjunautar verð fleiri. Smokk-
urinn er eina getnaðarvörnin
sem ver gegn kynsjúkdómum og
þungun. Ef þú notar smokkinn, þá
ertu ábyrgur rekkjunautur. Svo er
það tilfinningalega ábyrgðin. Það
er mikilvægt að kynlíf sé stundað
með samþykki beggja aðila. Það
er ágætis venja að biðja rekkju-
nautinn reglulega um leyfi og
þannig ganga úr skugga um hvort
allt sé í lagi. Einstaklingar eru
ólíkir og það er ekkert eitt kynlíf
sem virkar á alla, líkt og spyrj-
andi seinustu viku benti á. Takir
þú tillit til þess þá ertu ábyrg. Þá
finnst mér einnig mikilvægt að
forsendur fyrir kynlífinu séu þær
sömu. Það er leiðigjarnt að vera
sá sem er táldreginn á asnaeyr-
um með von um að kynlíf þróist í
ást. Ef þig langar í stundargam-
an hafðu það þá á hreinu. Eins ef
þig langar í samband. Kynlíf er
vettvangur þar sem hjarta, heili
og kynfæri eiga það til að lenda í
hnút og því gott að segja það sem
maður meinar og meina það sem
maður segir.
Hjarta, heili og kynfæri í hnút
PILLAN EKKI NÓG Smokkurinn er eina getnaðarvörnin sem ver gegn kynsjúkdómum
og þungun.
KYNLÍF: ÞARFTU HJÁLP?
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Félagarnir Eyþór Ingi
Gunnlaugsson og Þór Breið-
fjörð standa í ströngu við
undirbúning Vesalinganna í
Þjóðleikhúsinu en samhliða
því láta þeir til sín taka í
líkamsræktarsalnum þar
sem markmiðið er allsherj-
ar lífsstílsbreyting. Eyþóri
finnst erfiðast að vakna en
hann svaf einmitt yfir sig
þegar myndatakan átti að
eiga sér stað í World Class.
„Ég er búin að missa átta kíló síðan í
september og bumban er að hverfa,“
segir Eyþór Ingi Gunnlaugsson,
leikari og söngvari, um sameigin-
legt líkamsræktarátak sitt og Þórs
Breiðfjörð.
Eyþór og Þór leika báðir stór
hlutverk í komandi uppfærslu Þjóð-
leikhússins á leikritinu Vesaling-
arnir og voru hálfpartinn reknir í
ræktina í haust. „Það er gríðarlegt
álag að taka þátt í svona sýningu og
mikilvægt að vera í góðu formi. Til
dæmis á Þór að bera mig á öxlunum
í sýningunni svo ég er að reyna að
létta mig og Þór að reyna að styrkja
sig,“ segir Eyþór og bætir við að það
sé góð samvinna þar á milli.
Eyþór og Þór fengu félaga sína
Magna Ásgeirsson og Pétur Örn
Guðmundsson til að vera með sér.
Þeir hittast alltaf um átta á morgn-
ana, þrisvar í viku, ásamt ÍAK-
einkaþjálfaranum Ásthildi Björns-
dóttur sem sér um að halda þeim við
efnið. „Hún er aðallega að láta okkur
vinna með okkar eigin líkamsþyngd
og gerir mikið af skemmtilegum
æfingum. Hún er með mikinn aga
á okkur og sendir okkur sms til að
hvetja okkur áfram í aðhaldinu. Það
er mikið fjör á æfingum og það má
segja að magavöðvarnir hafi aukist
vegna hláturskasta. Ég hafði aldrei
hreyft mig en ég finn mikinn mun
á mér núna.“
Félagarnir hafa einnig þurft að
taka mataræði sitt í gegn og það
Erfiðast að byrja að vakna snemma
Gamalt fegrunarráð - í nútímalegum búningi
Dreifingaraðili Danson ehf :: Sími 588 6886
Agúrku roll on
www.bbkeflavik.com
Bed And Breakfast (Gistihús Keflavíkur) · Keflavíkurflugvelli
Valhallarbraut 761 · 235 Reykjanesbæ · Sími 426 5000
FRÍTT- við geymum bílinn þinn.
FRÍTT- ferðir til og frá flugvellinum.
FRÍTT- uppfærsla í DeLuxe herbergi í febrúar-apríl.
Frábært verð!
100 KÍLÓKALÓRÍUR (KKAL) eru í einni gúrku. Sama
magn er í tveimur djúsglösum, einum banana, tíu tómötum og
tveimur eplum.
TÆKNI Samkvæmt nýlegri rann-
sókn hefur app-iðnaðurinn svo-
kallaði búið til 466 þúsund störf
í Bandaríkjunum, eða hátt í hálfa
milljón. Þetta er afar merkilegt,
sérstaklega fyrir þær sakir að
þessi iðnaður var ekki einu sinni
til fyrir fimm árum.
Það var Michael Mandel frá
skólanum South Mountain Eco-
nomic sem framkvæmdi rann-
sóknina og fjallað er um niður-
stöðurnar á síðunni TGdaily.com.
Ekki er þó hægt að treysta niður-
stöðunum algjörlega því vinnu-
markaðurinn í kringum öppin er
mjög breytilegur.
Hálf milljón
app-starfa
TÍSKA Í gær hófst formlega tísku-
vikan í New York og þar með er
tískuveislan komin í gang fyrir
árið 2012. New York ríður á vaðið
en allar hinar tískuborgirnar
fylgja í kjölfarið. Tískuvikan í
London fer af stað 12. febrúar,
Mílanó 22. febrúar og í París hefst
tískuvikan 28. febrúar. Það er því
mikil veisla í vændum fyrir tísku-
unnendur úti um allan heim en nú
fer að verða ljóst hvernig stærstu
hönnuðir í heiminum vilja að við
klæðumst næsta haust og vetur.
Tískuveislan
hafin
Á SÍNUM STAÐ Anna Wintour, ritstjóri
bandaríska Vogue, verður á ferð og
flugi í febrúar meðan á tískuveislunni
stendur. Hér er hún ásamt dóttur sinni,
Katherine Shaffer, á tískuvikunni í fyrra.
NORDICPHOTOS/GETTY
ÍAK einkaþjálfarinn og
hjúkrunarfræðingurinn
Ásthildur Björnsdóttir
gefur hér smá sýnishorn
af æfingum félaganna en
þeir vinna mest með sína
eigin líkamsþyngd.
■ Dónó
Mjaðmarétta á bolta.
Höfuð og axlir á bolta
og hnén beygð beint
fyrir ofan ökkla, tærnar
vísa beint fram, hendur
krosslagðar yfir brjóst.
Rass látinn síga niður
og svo spenntur aftur
upp, stöðunni haldið í
augnablik og svo endur-
tekið aftur. Mikilvægt að
gera æfinguna rólega.
■ T-armbeygjuplanki:
Byrjunarstaða eins og fyrir
armbeygju. Nema í stað
þess að taka armbeygju
þá er öðrum hand-
leggnum lyft til hliðar,
þannig að það snúist upp
á búk og handleggirnir
mynda þá stafinn T. Farið
aftur í byrjunarstöðu og
endurtekið með hinn
handlegginn. Æfingin gerð
til skiptis.
■ Plankinn:
Við gerum hinar ýmsu
útfærslur af plönkum.
Venjulegan, hliðar- og
hreyfanlegan planka.
Venjulegur planki er fram-
kvæmdur þannig að legið
er með á kvið á gólfi. Oln-
bogar beint undir öxlum
og hendur fyrir framan
þig t.d. með spenntar
greipar. Forðast að fetta
mjóbakið og trixið er að
halda rassinum þannig að
líkaminn sé í beinni línu.
Annaðhvort er plankinn
tekinn á hnjánum eða á
tánum. Strákarnir taka
allar gerðir af plönkum
á tánum. Plankinn er oft
tekinn í 30 sek til 60 sek.
Þeir geta bráðum verið
í plankanum í heilar 5
mínutur.
■ Reptile:
Upphífingar: Eigin líkams-
þyngd lyft lóðrétt upp.
ÆFINGAR VESALINGANNA FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
hefur gengið misvel. „Mér fannst
erfitt að kveðja hamborgarann. Ég
er þó enn þá með laugardaga og held
fast í þann heilaga dag en þá leyfi ég
mér að svindla smá.“
Eyþór viðurkennir að það sé erf-
iðast fyrir hann að vakna á morgn-
ana, meira að segja svo erfitt að
hann svaf yfir sig þegar ljósmynd-
ari Fréttablaðsins ætlaði að mynda
æfingu félaganna. „Við listamenn
erum yfirleitt miklar leðurblökur
í okkur og vinnum best á nóttunni.
Það er því ekki auðvelt fyrir mig
að koma mér af stað en þegar ég er
kominn niður í World Class er þreyt-
an yfirleitt farin.“
alfrun@frettablaðið.is
lifsstill@frettabladid.is
26