Fréttablaðið - 10.02.2012, Blaðsíða 30
10 • LÍFIÐ 10. FEBRÚAR 2012
STEINI /PÉSI
&GAUR Á TROMMU
Miðasala á gamlabio.is og midi.is. Sími 563 4000.
Opið mán.-mið. 14:00-18:00 og fim.-sun. 14:00-20:00.
Föstudagur 10.02.2012 22:30
Laugardagur 11.02.2012 22:30
Ö
Það stendur meira að segja í
reglum keppninnar að keppendur
mega ekki vera með neinar póli-
tískar yfirlýsingar í viðtölum. Það
er ekki mælt með því að keppandi
ruggi bátnum á neinn hátt.
Ég er þeirrar skoðunar að svona
misrétti og valdníðsla sé bara hrein
og klár illska og hún þrífst best í
þögninni. Einræðisherrar hlusta
ekki fyrr en þeim er stillt upp við
vegg. Breyttist Kína eitthvað eftir
Ólympíuleikana í Peking árið 2009?
Svarið er nei. Breyttist réttarstaða
samkynhneigðra eitthvað í Rúss-
landi eftir Eurovision-keppnina
þar? Svarið er nei. Ef eitthvað er
þá er réttarstaða samkynhneigðra
orðin verri í dag en hún var.
Það er til alveg yndislegt spak-
mæli sem hljómar einhvern veginn
svona: Það eina sem illska þarf til
þess að þrífast er að góðir menn
geri ekki neitt. Það er nákvæmlega
það sem mér finnst EBU vera að
gera núna. Þeir ákveða að aðhafast
ekki neitt og leyfa yfirganginum og
frekjunni í þessum borgaryfirvöld-
um í Bakú fram að ganga.
Með þessu er allur glamúrinn
farinn úr söngvakeppninni og allur
glæsileikinn sem á að einkenna Ól-
ympíuleika er löngu kominn út úr
kortinu. Glæsileikinn verður verð-
laus. Listamenn og íþróttamenn
þurfa líka að gera upp við sig sjálfa
hvort þeim finnist það siðferðislega
rétt að mæta til leiks í íþrótta- og
tónlistarhöllum sem hafa svona for-
sögu að baki.
Úr einu baráttumáli í annað,
nafn þitt hefur ítrekað borið á
góma þegar talið berst að næsta
forseta Íslands. Er það eitthvað
sem þú hefur hugsað af alvöru?
Ég hef engan áhuga á því að vera
forseti Íslands. Þetta kom fyrst upp
fyrir þremur árum. Þá var einhver
maður út í bæ sem bjó til heima-
síðu á Facebook sem hét held ég
„Pál Óskar á Bessastaði“. Í kjöl-
farið þá fór ég á stúfana og svona
tékkaði á því hvað fælist í þessu
starfi. Ég var svo heppinn að ég
hitti Ólaf Ragnar Grímsson þegar
ég var að syngja við verðlaunaaf-
hendingu þar sem hann var stadd-
ur og ég náði tali af Ólafi baksviðs.
Ég bað hann að gefa mér starfs-
lýsingu og í stuttu máli sagt var ég
ekki hrifinn af henni. Ég fékk það
strax á tilfinninguna að ég væri í
miklu skemmtilegra starfi nú þegar.
Ég held ég komi þjóðinni að meira
gagni í þessu starfi sem ég er í
akkúrat núna en að vera á Bessa-
stöðum að taka á móti gestum
allan daginn.
Hvernig forseta vilt þú? For-
setinn minn er og hefur alltaf verið
Vigdís Finnbogadóttir en það sem
ég er hrifinn af í fari Ólafs Ragnars
Grímssonar er að hann fór að setja
mörk í jafn viðkvæmum málum eins
og Icesave og ég tek ofan hattinn
fyrir honum að hafa nýtt sér þetta
neitunarvald á þessari ögurstundu
sem hann gerði. Það sem mér þykir
ekki spennandi við starfslýsinguna
er að forsetinn þarf að vera dipló.
Það get ég einfaldlega ekki. Ég
get ekki setið á mér eins og núna
þegar svona gróf mannréttinda-
brot eru framin í beinni tengingu
við keppni sem ég tengist beint.
Þá sit ég ekki heima hjá mér og
geri ekki neitt. Ég gæti ekki hugsað
mér það. Ég held að fullkominn for-
seti sé 70% Vigdís Finnbogadóttir
og 30% Ólafur Ragnar Grímsson.
En að ástinni. Hvernig er þitt til-
hugalíf? Ég er enn þá á lausu og nú
er ég orðinn svolítið leiður á því. Ekki
það að mér líði ekki mjög vel einum,
ég finn það hins vegar mjög sterkt að
hjartað í mér hefur aldrei verið jafn
opið. Ég hef aldrei verið jafn tilbúinn
að eignast kærasta.
Er erfitt að vera þekktur í leit
að ást? Ég finn það að sumir setja
það fyrir sig, skiljanlega og þá er það
bara allt í lagi. Ég þarf að taka ábyrgð
á minni eigin athyglissýki.
Hefur þú leyft þér að fara á
stefnumót? Nei, það hefur ekki
verið mikið um það en mikið rosa-
lega væri ég nú til í gott stefnumót.
Ég er með augun opin og það er
nú annað heldur en hérna áður fyrr.
Ég kom ofsalega særður út úr síð-
ustu reynslu minni í ástamálunum og
skellti bara í lás eftir það. Í heil tíu ár
var sjoppan lokuð hjá mér af hræðslu
við að upplifa sársaukann aftur. Ég
þurfti líka að spyrja sjálfan mig að
því hvort ég væri góður mannkostur
í þessu ástandi. Ég vildi ekki bjóða
kærasta upp á einhverjar brunarúst-
ir. Ég þurfti fyrst að taka til heima hjá
mér og laga allar brunarústirnar. Þú
verður að taka til heima hjá þér áður
en þú býður fólki í heimsókn.
Hvernig á draumaprinsinn að
vera? Veistu, ég á enga fantasíu um
draumaprins. Krafan er sú að hann
verður að vera kominn út úr skápn-
um. Það er mjög mikilvægt. Ég get
ekki deitað eitthvað skápakeis af
því að þar með er sambandið orðið
leyndarmál. Þá getum við ekki farið
í bíó eða leikhús og þar með get ég
ekki kynnt hann fyrir fjölskyldunni.
Hann verður að vera á lausu takk
fyrir. Ég vil ekki að hann sé nýhætt-
ur í einhverju sambandi því ég vil
ekki hafa hans fyrrverandi svífandi
yfir sambandinu eins og móðuharð-
indin. Það er svo slítandi og ljótt. Ef
gaurinn myndi byrja með mér tveim-
ur vikum eftir skilnað þá er hann
bara að nota mig sem plástur. Mig
langar ekki að vera plástur.
Kostir við að vera á lausu? Í dag
finnst mér kostirnir vera fleiri heldur
en gallarnir. Ég er ekki rétti maður-
inn til að svara spurningunni af því
ég hef ekki reynsluna af því að vera
í sambandi. Ég hef ekki reynsluna af
því að deila sama húsi með einverri
annarri manneskju. Ekki nema þegar
vinir mínir koma að gista hjá mér og
eitthvað svona. Þá finn ég fyrir því
að mér finnst skrítið þegar það eru
tveir tannburstar á baðherberginu
og ef ekki er búið að slökkva ljósin
eða hengja rétt upp á þvottasnúruna
– þá finn ég fyrir því. Ég er svo vanur
því að vera einhleypur og búa einn.
En gallarnir við að vera á lausu
– eins og að vera án nándar við
þann sem þú elskar? Ég upplifi
þessa nánd svo sterkt í gegnum
fólkið mitt. Líka í gegnum fólkið sem
kemur á tónleikana með mér. Ég
mynda ofsalega skýr og skilyrðis-
laus tengsl við áhorfendur mína. Það
gildir það sama um þá og börnin,
það er allt á jafningjagrundvelli.
Barneignir. Langar þig að verða
pabbi? Ekki núna, nei. Ég hef hugs-
að mjög mikið um þetta en ég er
alveg rólegur í þessu. Kannski
vegna þess að ég er yngstur af
mínum systkinum og öll mín systk-
ini eiga fullt af börnum þannig að
það kom í minn verkahring þegar
ég var yngri og unglingur að passa
öll þessi börn. Ég og mamma mín
vorum oftar en ekki heima að passa.
Mamma rak í rauninni dagvistar-
heimili.
En ertu hrifinn af börnum? Já.
Aftur á móti skil ég ekki hvað börn
sjá við mig því mér finnst ég vera
svo rígfullorðinn. Ég hef alltaf pass-
að mig á því að umgangast börn
sem jafningja. Ég breyti ekki rödd-
inni þegar ég ræði við börn, ég nota
sama orðaforða eins og núna þegar
ég er að tala við þig.
Langar þig að stofna fjölskyldu
í framtíðinni? Nei, ég á nógu stóra
fjölskyldu fyrir. Ég er að reka heim-
ili fyrir það fyrsta og ég á blóðfjöl-
skyldu sem er mjög stór og í öðru
lagi á ég „valda fjölskyldu“ sem eru
vinir og félagar sem ég hef eign-
ast í gegnum tíðina. Mjög margir
hommar upplifa þetta sama og það
er að við eignumst sterkan vina-
hóp. Kjarna af fólki sem er samferða
okkur í gegnum lífið. Sú fjölskylda
er alveg jafn mikilvæg og blóðfjöl-
skyldan.
Framhald af síðu 9
Uppáhalds íslensku Eurovisonlögin? „All out of
Luck“ og „Eitt lag enn“ eru alveg ofsalega vel
heppnuð popplög sem virka enn þann dag í
dag. Allur gjörningurinn hjá Silvíu Nótt var eitt
stórt gott listaverk.
Hvenær ætlar þú að snúa aftur í Eurovision fyrir Ís-
lands hönd? Þegar rétta lagið kemur. Ef ég færi
aftur út færi ég til að vinna með keppnislag.
Góð ráð til keppenda annað kvöld? Elskaðu þig,
elskaðu míkrafóninn og elskaðu myndavél-
ina. Ekki gleyma því að þú ert í sjónvarps-
þætti. Þar skiptir mestu máli sjálfstraustið þitt,
röddin þín og augun.
LÍFSSTÍLLINN EUROVISION
Jafnvægið? Ég er í mun betra jafnvægi en ég var fyrir 10
árum síðan.
Heilsan? Ég gef mér tíma til að fara út að skokka. Ég
passa mig hvað ég borða og leyfi mér smá hreyfingu
á hverjum degi.
Heimasíðan? Ebay. Ég kaupi mjög mikið af gömlum
súper 8 mm kvikmyndaspólum þar. Ég safna þeim.
Tímaritið? Attitude, breska hommablaðið, langbest.
Útlitið? Ég get farið inn í Body Shop og keypt alla búð-
ina. Ég geri það stundum og ég leyfi mér það. Ég á
bara einn líkama og eitt andlit og ég splæsi á líkam-
ann öllum þeim sápum og skrúbbum og snyrtivörum
sem hægt er að baða sig upp úr.
Ég kom ofsa-
lega særður
út úr síðustu
reynslu minni
í ástamálunum
og skellti bara
í lás eftir það.