Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 17

Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 17
FÖSTUDAGUR 10. febrúar 2012 17 landsbankinn.is 410 4040Landsbankinn jl .i s *Nafnávöxtun 30.12.2010–30.12.2011. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að fi nna á landsvaki.is. Fyrirvari: Sparibréf verðtryggð er verðbréfasjóður sam- kvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur e irliti Fjármála- e irlitsins. Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt  árfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vís- bendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má fi nna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á landsvaki. is eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér útboðslýsinguna áður en  árfest er í sjóðnum, en þar er meðal annars ítarleg um öllun um  árfestingar- stefnu sjóðsins og áhættu sem felst í  árfestingu í honum. Landsbankinn býður upp á  öl- breytt úrval ríkis skulda bréfa sjóða. Sparibréf verðtryggð er sjóður sem  árfestir í verðtryggðum skuldabréf- um íslenska ríkisins og hefur það markmið að endurspegla ávöxtun verðtryggðra ríkisskuldabréfa. Reglubundinn sparnaður Með reglubundnum sparnaði í sjóðum getur þú byggt upp eigna- safn með áskri frá 5.000 kr. á mánuði. Enginn munur er á kaup- og sölugengi í áskri . Sparnað í sjóðum má alltaf innleysa. Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4040 eða sendu okkur póst á  armalaradgjof@landsbankinn.is. Framúrskarandi ávöxtun Sparibréfa verðtryggðra á árinu 2011 16,3% Ársávöxtun 2011* – Lifið heil Fyrir börnin í Lyfju www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 81 01 0 1/ 12 Gildir 1.-15. febrúar 2012. 20% afsláttur af allri Biomega línunni. Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið. „Mikið mætti spara með því að fækka þeim og nýta heita vatnið í aðra og uppbyggi- legri hluti,“ gætu menn sagt. Nú er til dæmis flott sundað- staða í Reykjanesbæ. Þegar búið er að flytja flugvöllinn til Keflavíkur blasir við að hægt verði að fækka sundlaugum um landið töluvert. Menn munu þá geta hoppað í flugvél eftir vinnu, farið í sund í „Lands- háskólasundlauginni“ í Reykjanesbæ og komið heim fyrir tíufréttir. Samlíkingin sem hér er sett upp, í tengslum við Landspítalann – Háskólasjúkrahús er kannski hvorki hnytt- in né góð. Helsti galli hennar er að sjúkra- hús eru sérhæfðar stofnanir, en sundlaugar varla. Sameining sjúkrahúsa hefur því kosti sem sameining sundlauga hefur ekki. En ókostirnir eru samt svipaðir. Lego-kubba-draumar Mörg okkar, og þá sérstaklega þau sem láta sig þjóðfélagsmál varða, heillast gjarnan af hug- myndum um einhverjar stórar byggingar sem hýsa ástríður þeirra og ævistörf. Og auðvitað teljum við hugmyndirnar undantekningarlítið verðskulda opinbert fjármagn. Einn vill risasjúkrahús, annar óperuhöll, sá þriðji yfirbyggða sundlaug í ólympíulengd. Það er oft gaman þegar þessar byggingar eru risnar, en við sjáum aldrei það sem ekki varð til fyrir þá pen- inga sem þær kostuðu. Harpan kostar hvern Íslend- ing 3.000 kr. á ári næstu 35 árin. Kannski finnst mörgum það þess virði. En eitt þarf að hafa í huga: Allt í kringum land- ið sitja sveitarfélög uppi með nýkláruð risagóðærisverkefni sem kjósendur næstu áratuga munu þurfa að borga, hvort sem þeim líkar það vel eða illa. Sveitarfélögin féllu þannig í sömu gryfjuna og mörg heim- ili sem skuldbundu sig til að greiða ógrynni fjár í steypu og málm og þurfa nú að láta öllu skemmtilegri útgjöld mæta afgangi. Það er fljótlegra að segja upp líkamsræktarkortinu en að selja húsið. All-in Menn byggja risatónlistarhús. Allir glaðir. Nasa lokar. Allir fúlir. „Björgum Nasa,“ segja allir. Það er kannski bjartsýni að ætla að almenningur hætti að krefjast útgjalda í hluti sem hljóma vel. En auðvitað er það samt þannig að hver einasta yfirtaka borgar- innar á óarðbærum rekstri kostar pening og skekkir auk þess sam- keppnisstöðu annarra slíkra staða. Borgin rekur Hörpuna, Tjarnar- bíó, Paradís og Austurbæjarbíó. Það er gott í bili. Reyndar skal viðurkenna að upp- kaup á þegar byggðu húsnæði, eins og Austurbæjarbíói, eru að mörgu leyti heppilegri en margra áratuga skuldbindingar í nýjum risaverk- efnum. Borgarstjórnir framtíðar geta selt Aust- urbæjarbíó ef þau vilja. Næstu tíu kjörtímabil munu borgarstjórnir Reykjavíkur hins vegar greiða vextina af Hörpu, sama hvað þeim finnst. Einkaaðilar geta alveg rekið skemmti- staði. Maður eiginlega óttast þá þróun að sjálf yfirlýsing eiganda um að hann hyggist byggja hótel eða íbúðir í mið- bænum skuli oft duga til að setja af stað atburðarás sem endar með því að eigandinn fær borgað fullt án þess að þurfa að að byggja nokkuð. Ef hefð kemst á að nota skattfé til að kaupa menn úr óarðbærum rekstri, þá munum við vart gera annað. Alveg viss? Loks aftur að nýrri byggingu Landspítala – Háskólasjúkra- húss. Áttum okkur á nokkrum afleiðingum þessa verkefnis. Í fyrsta lagi munu menn ólíklega færa flugvöllinn, ef miklum fjármunum er varið í uppbygg- ingu sjúkrahúss á þessum stað. Í öðru lagi mun sjúkraþjónusta utan höfuðborgarsvæðis ólík- lega batna, enda mun ávallt vera hagkvæmast að hagræða með því að færa alla starfsemi til Reykjavíkur. Sú vinna sem lögð hefur verið í hönnun sjúkrahússins að undan- förnu hefur skilað margfalt betri og borgarvænni tillögum en lagt var af stað með. En þetta er engu að síður mjög mikið fé sem við skuldbindum okkur til að greiða í mjög langan tíma. Við þurfum því að vera mjög viss um að þetta sé það sem við viljum. Við þurfum líka að vera undir það búin að uppbygging heilbrigðis- þjónustu muni á næstu árum ein- skorðast við nýja sjúkrahúsið því við munum þurfa að klára það. Auðvitað er heilmargt unnið með byggingunni. Fátt er svo með öllu illt sem kostar hundrað milljarða. Vonum bara að það sé þess virði. Fátt er svo með öllu illt sem kostar hundrað milljarða. Vonum bara að það sé þess virði. Ást á stórum byggingum Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG AF NETINU Gúmmíbirnir og „sæt brjóst“ Í fljótu bragði skyldi maður halda að þetta tvennt ætti ekkert sameigin- legt. Tengslin eru hins vegar þau að þetta er leið framleiðenda til að markaðssetja gervibrjóst í konur sem breyta mætti lögun að vild og gera þau um leið „sætari“ eftir tilefni og klæðnaði hverju sinni. Að minnsta kosti ef marka má auglýsingu framleiðenda sem kalla nýju brjóstapúð- ana Gummy breast implants. Unnið er að markaðssetningunni og fá þá samþykkta, meðal annars í Bandaríkjunum. Framleiðendur lofa að þeir leki minna en aðrar gerðir og mikið hefur verið fjallað um að undan- förnu. Í allt að fjórðungi tilfella með tímanum og þá þúsundir tilfella hér á landi að öllu óbreyttu. Að minni hætta sé á að innihald gúmmíbjarn- anna fari þá á flakk um líkama kvennanna. Sykursjúk þjóð á að öllum líkindum eftir að falla fyrir þessum sykurpúðum, ekkert síður en öðru sælgæti og púðum, ef satt reynist. http://blog.eyjan.is/vilhjalmurari Vilhjálmur Ari Arason

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.