Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 26
6 • LÍFIÐ 10. FEBRÚAR 2012
ALDUR: 41 árs
MAKI: Paul Weil
BÖRN: Indía Salvör Menuez, 18 ára og Lóla
Salvör Weil, 5 ára.
STARF/MENNTUN: Skartgripahönnuður/ Listakona
að mestu sjálfmenntuð
BÚSETA: Brooklyn, New York
ÁHUGAMÁL: Fólk
LÍFSMOTTÓ: Lead by example
SÍÐASTA SMS SEM ÞÚ FÉKKST: It really worked!
It put a smile on my face. Thank you for the
necklace, I love it! – frá tannlækninum mínum,
Julian.
HEIMASÍÐAN ÞÍN:
WWW.KRIAJEWELRY.COM
Jóhanna Methúsalemsdóttir skartgripa-
hönnuður, sem búsett er í stórborginni New
York, stendur fyrir merkinu Kría Jewelry
sem hefur vaxið hratt undanfarið. Jóhanna
fær allan sinn innblástur úr íslenskri náttúru
og er von á nýrri línu á næstunni þar sem
þorskbein leika aðalhlutverkið.
Hvenær og hvernig varð Kría Jewelry að
veruleika? Kría fæddist árið 2007, sama ár
og dóttir mín Lóla Salvör en það má rekja
upphaf hennar beint til strandgöngu minnar
á Íslandi árið 2006 þegar ég fann kríubein.
Ég heillaðist mikið af formum beinanna og
ákvað að hirða þau, sjóða og taka með mér
heim. Þegar heim var svo komið byrjaði ég
að púsla þeim saman og þannig varð Kría til.
Hvernig hefur gengið síðan? Kría hefur
dafnað vel og vaxið úr því að vera fimmtán
til tuttugu stykkja lína í að verða í kringum
níutíu og fimm stykkja lína. Kría er seld í ell-
efu búðum í New York, á Íslandi og í Noregi.
Kría tók þátt í sýningunni Náttúra í hönnun
árið 2010 sem var sett upp í Landsvirkjun,
einnig tók hún þátt í Hönnunarmars sama ár
og var tilnefnd til menningarverðlauna árið
2011 svo fátt eitt sé nefnt.
Hvernig færðu hugmyndirnar að því sem
þú skapar? Ég finn mér einhver falleg form
úr náttúrunni til að vinna með og byrja svo
að setja þau saman eða hengja þau á mig á
einn eða annan hátt og sé svo hvernig hlut-
irnir hanga á eða sitja á líkamanum og held
svo áfram þaðan. Stundum þegar maður
tekur formin úr umhverfi sínu líta þau út fyrir
að vera eitthvað allt annað en þau eru og
það heillar mig hvað mest við að vinna með
form beint úr náttúrunni.
Hvaða efni notar þú í hönnun þína? Ég
vinn helst með silfur, 14 karata gull og er
nýbyrjuð að vinna aðeins með brass líka.
Nú býrðu ekki á Íslandi en virðist engu
að síður fá innblásturinn héðan, hvernig
ferðu að því? Innblásturinn fæ ég sérstak-
lega úr Íslenskri náttúru þegar ég kem til
landsins og frá fólkinu í kringum mig. Næsta
lína er eingöngu búin til úr þorskbeinum sem
voru send til mín frá Íslandi. Þar er ég að
tengja beint við mínar íslensku rætur.
Hver er markhópurinn? Ég hanna fyrir fólk
sem er forvitið.
Hvar selur þú vöruna þína? Á Íslandi fást
vörurnar í verslununum Aurum, Mýrinni og
ICELANDICMARKET.COM. Í New York fást
þær í Eva, Love Adorned, Albertine Gene-
ral, Project no 8, Beautiful Dreamers, Vpl,
og í Noregi í Cintamani Butikken.
Hvar hannar þú? Ég hanna á heimili mínu
í Brooklyn þar sem ég og maðurinn minn
erum með sameiginlegt stúdíó en hann er
málari.
Er eitthvað spennandi á döfinni sem þú
vilt deila með Lífinu? Ég mun koma til
landsins fyrir Hönnunarmars sem fram fer
22. mars til 25. mars í boði Tanqueray, í
þeirri ferð mun ég kynna nýju línuna mína í
Aurum í Bankastræti 4. Einnig mun Kría taka
þátt í sýningu í Hafnarborg sem ber nafn-
ið Rætur og er um íslenska samtíma skart-
gripahönnun. Svo er það Pop Up-búð, gall-
erísýning í Berlín og viðræður við fleiri sölu-
staði svo að það eru annasamir tímar fram
undan.
Viltu gefa ungum og efnilegum hönnuðum
sem eru að stíga fyrstu skrefin góð ráð?
Treystu sjálfum þér en vertu alltaf opinn fyrir
hugmyndum og ráðum frá öðrum og ekki
láta egóið þvælast fyrir þér.
HEILLAÐIST AF KRÍUBEINUM
Jóhanna Methúsalemsdóttir fær allan sinn innblástur frá Íslandi.
Íþróttabrjóstahaldarar
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Verð: 9.950 kr.
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Verð: 9.750 kr.
Nálastungudýnan
Bætir svefn og dregur úr verkjum
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI Á
HVERJUM MORGNI!
KRÍA JEWELRY