Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 44

Fréttablaðið - 10.02.2012, Síða 44
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR24 24 menning@frettabladid.is Helstu lykilverk Jóhannesar S. Kjarval eru nú til sýnis í austur- sal Kjarvalsstaða. Fyrir skömmu bættist einn dýrgripurinn við en um er að ræða eitt kunnasta verk Kjarvals, Fjallamjólk frá árinu 1941, sem er í eigu Listasafns ASÍ. Næstkomandi sunnudag, 12. febrúar, mun myndlistarmaður- inn Einar Garibaldi Eiríksson taka þátt í spjalli um Kjarval en sýningin myndar einstakt yfirlit yfir feril eins ástsælasta lista- málara íslensku þjóðarinnar. Á Kjarvalsstöðum getur einnig að líta nýjan tímaás um ævi og lífs- feril listamannsins og í veitinga- sölu prýða nú veggina einstakar ljósmyndir Jóns Kaldal af Kjar- val frá ólíkum æviskeiðum hans. Jóhannes Sveinsson Kjar- val (1885-1972), eða meistarinn – eins og snemma var farið að kalla hann, skipar sérstakan sess í íslenskri menningar- og lista- sögu. Hann var einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar og goðsögn í lifandi lífi. Einar Garibaldi mun taka þátt í umræðu um verk Kjarvals en hann hefur áður sett upp sýning- ar á verkum listamannsins þar sem tekið var á goðsögninni um Kjarval og sambandi þjóðarinnar við þennan sérvitra snilling. Einar Garibaldi spjallar um Kjarval JÓHANNES KJARVAL EINAR GARIBALDI EIRÍKSSON tekur þátt í umræðum um Jóhannes Kjarval á Kjarvalsstöðum á sunnudag. HJALTI PARELIUS opnar sína fimmtu einkasýningu í Galleríi Fold við Rauðarárstíg laugardaginn 11. febrúar klukkan 15. Á sýningunni eru rúmlega þrjátíu ný olíumálverk þar sem teiknimyndamótífið er í forgrunni. Verkin eru öll máluð sumar og haust 2011. Hjalti Parelius er fæddur 1979 í Reykjavík. Hann stundaði nám á listnámsbraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og síðar við Danmarks Designskole. Hann hefur unnið sem grafískur hönnuður auk þess að leggja stund á málaralistina. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 10. febrúar 2012 ➜ Sýningar 16.00 Iðunn Thors opnar sýningu á verkum sínum í Kaolin gallerí. Allir velkomnir. ➜ Uppákomur 10.00 Vetrarhátíð Reykjavíkur heldur áfram. Fjölbreytt og skemmtileg dag- skrá í boði í allan dag. Sjá nánar á vetrarhatid.is. 19.00 Í Hafnarborg verður litrík og fjöl- breytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri á Safnanótt í ár. Dagskráin stendur fram til miðnættis. Nánari upplýsingar á hafnarborg.is ➜ Málþing 13.00 Námsgreinin Íslenska sem annað mál við Háskóla Íslands stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Íslenska sem annað líf. Átta útskrifaðir nemendur frá mismunandi löndum og á ólíkum aldri halda fyrirlestra. Ráð- stefnan fer fram í stofu 101 í Lögbergi og er öllum opin að kostnaðarlausu. ➜ Dans 19.30 Nemendur Klassíska listdans- skólans munu sýna dansverk í Ásmund- arsafni. Um er að ræða túlkun á verkum Ásmundar Sveinssonar á sýningunni Frá hugmynd til höggmynda, sem stendur yfir í safninu núna. Aðgangur er ókeypis. ➜ Tónlist 17.00 Hljómsveitin Boogie Trouble þreytir frumraun sína í tónleikahaldi í verslun 12 Tóna, Skólavörðustíg. Hljóm- sveitin samanstendur af meðlimum víðs vegar úr íslensku tónlistarlífi og sækir innblástur sinn í diskótónlist áttunda áratugs síðustu aldar. 22.00 David Bowie tribute tónleikar verða haldnir á Græna Hattinum, Akur- eyri. Kalli Örvars og Kóngulærnar frá Mars flytja helstu lög Bowie, ásamt góðum gestum. Miðaverð er kr. 2.000. 23.00 Gunnar Þórðarson verður heiðursgestur Bítladrengjanna blíðu á tónleikum þeirra á Ob-La-Dí, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Fyrirlestrar 12.00 Jordi Vaquer i Fanés forstöðu- maður alþjóðamálastofnunarinnar í Barcelona heldur erindi um Evrópusam- bandið og afleiðingar arabíska vorsins á fundaröð Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn verður í stofu 101 í Lögbergi. Í dag fagnar hópur upp- rennandi rithöfunda útgáfu bókarinnar III. Þetta er þriðja bók ritlistarnema á BA-stigi við Háskóla Íslands og jafnframt sú síð- asta, því námið er nú kennt á meistarastigi. Bókin hefur að geyma 29 verk eftir 21 höfund. Höfundarnir sem eiga verk í bók- inni III eru 21 talsins. Trausti Dagsson er þeirra á meðal, en hann sá jafnframt um umbrot hennar. Hann segir hópinn ánægð- an með afraksturinn. „Það er fjöl- breytt efni í bókinni og mjög skemmtileg flóra. Meðal annars er þarna stuttmyndahandrit, mikið af ljóðum og smásögum. Námið var mjög fjölbreytilegt hjá okkur og verkin endurspegla það.“ Undir þetta tekur Rúnar Helgi Vignisson, lektor í ritlist við íslensku- og menningardeild HÍ. „Nemendurnir sýndu mikið frum- kvæði og dugnað við gerð bókar- innar. Þeir sáu að mestu leyti sjálf- ir um að búa hana til prentunar. Margt af þeim verkum sem þarna eru varð til á námskeiðum hjá mér en hefur tekið breytingum í þeirra ritstjórnarferli. Það eru allmargir efnilegir pennar þarna á ferðinni,“ segir Rúnar Helgi. Hann bætir við að það sé dýr- mætt hversu góður andi hafi myndast innan hópsins og hversu vel nemendurnir styðji hver við annan. „Það er mikils virði, þetta afl sem varð til í hópnum og það hefur leitt margt gott af sér. Þau stofnuðu til að mynda tímarit og litla bókaútgáfu á síðasta ári.“ Hann segir framfarir nemend- anna sýna að vel sé hægt að kenna fólki listina að skrifa. „Hún er líf- seig þessi klisja um að annaðhvort fæðist menn rithöfundar eða ekki. Engum þykir neitt athugavert við að fólk læri leiklist, dans eða tón- list. Við vorum með þeim síðustu til að taka upp formlegt nám í þessari listgrein. Ég vonast til að þetta nám verði innspýting í íslenskt bókmenntalíf, eins og tón- listarskólarnir eru fyrir íslenskt tónlistarlíf. Maður sér á árangri sem fólk nær á skömmum tíma að það er hægt að kenna þetta.“ Ágóði af tveimur fyrri bókum ritlistarnema, Hestar eru tvö ár að gleyma og Beðið eftir Sigurði, stóð undir útgáfu III. Ágóðans af sölu hennar ætla nemendurnir einnig að leyfa öðrum að njóta, líkt og forverar þeirra í námi gerðu. „Við ætlum að láta ágóðann renna í styrktarsjóð fyrir unga höf- unda, svo við erum ekki að fara að drekka bjór og vodka fyrir pen- ingana,“ segir Trausti að lokum og hvetur alla til að næla sér í eintak. Útgáfufögnuðurinn hefst klukk- an 17 í Artíma Galleríi, Smiðjustíg 10. holmfridur@frettabladid.is Ritlistarnemar fagna III RITHÖFUNDAR Bjarnheiður, Trausti, Hertha, Hlín, Kristján, Halla og Katrín eiga öll verk í III, bók ritlistarnema við HÍ. Fremst á myndinni situr tíkin Skytta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Halla Mía Ólafsdóttir Sigursteinn J. Gunnarsson Trausti Dagsson Anna Steinunn Ágústsdóttir Gunnhildur Helga Steinþórsdóttir Brynja Huld Óskarsdóttir Jón Bjarki Magnússon Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir Hirt Daníel Geir Moritz Esther Ýr Þorvaldsdóttir Gunnar Jónsson Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir Halla Margrét Jóhannesdóttir Jónas Reynir Gunnarsson Birna Dís Eiðsdóttir Bjarnheiður Erlendsdóttir Dagbjört Vésteinsdóttir Tumi Ferrer Kristján Már Gunnarsson Hertha María Richardt Úlfarsdóttir Hlín Ólafsdóttir Pálmi Freyr Hauksson Steinunn María Halldórsdóttir HÖFUNDAR III ERU: krakkar@frettabladid.is Krakkasíðan er í helgarblaði Fréttablaðsins Hvað veistu um Star Wars? „Einhvern tíma hafði ég lofað Peter Máté því í gamni að ég skyldi semja fyrir hann konsert. Ég var þá á tónleikum hjá honum og fannst hann spila svo vel. Þannig að ég er að efna loforð,“ segir tónskáldið Jón Ásgeirsson. Píanókon sert eftir hann verður frumfluttur í aðalsal Hofs nú á sunnudaginn, 12. febrúar klukkan 16 af Peter Máté og Sinfóníuhljóm- sveit Norður lands. Jón kveðst nýlega hafa lokið við konsertinn. „Ég er búinn að vera nokkuð lengi að semja hann, fikta við hljóðfærið og spila hugmynd- irnar en svo setti ég þær niður og sameinaði í eitt verk.“ Þótt Jón sé orðinn áttatíu og þriggja ára kveðst hann enn sitja við píanóið á hverjum degi og semja. „Svo nota ég tölvu eins og ritvél og læt hana skrifa nóturnar í forritinu Finale. Sonur minn er arkitekt og teiknar á tölvu, hann eitraði mig allan og kom mér á sporið með tölvutæknina fyrir mörgum árum.“ Konsertinn tekur 20-30 mínút- ur í flutningi, giskar Jón á. „Fyrsti kaflinn er rapsódía, annar kafl- inn er nostalgía, þar nota ég part úr stefi eftir Bach og spila nafn- ið hans – nóturnar b-a-c og h – og þriðji og síðasti kaflinn er mjög hraður,“ lýsir Jón sem ætlar að vera viðstaddur frumflutninginn. „Ég fer norður með alla fjölskyld- una,“ segir hann hress. - gun Ég er að efna gamalt loforð TÓNSKÁLDIÐ Jón Ásgeirsson fæst við að semja tónlist á hverjum degi þó kominn sé á níræðisaldur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.