Fréttablaðið - 10.02.2012, Page 50

Fréttablaðið - 10.02.2012, Page 50
10. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR30 sport@frettabladid.is RÓBERT GUNNARSSON fær ekki nýjan samning hjá Rhein-Neckar Löwen í sumar þegar núgildandi samningur rennur út. Guðmundur Guðmundssson, þjálfari liðsins, staðfesti þetta í gær. „Það þarf að skera niður kostnað og þetta er hluti af því. Róbert hefur reynst okkur mjög vel og vinnusemi hans hefur verið til fyrirmyndar,” sagði Guðmundur. Þetta hefur verið meira að segja svo slæmt að ég hef sjálfur þurft að standa vörn á æfingum. GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON ÞJÁLFARI RHEIN-NECKAR LÖWEN HANDBOLTI Þýska úrvalsdeild- in er komin aftur af stað eftir að Evrópumeistaramótinu í Serbíu lauk. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er því kominn aftur í sitt daglega starf – að þjálfa Rhein-Neckar Löwen. Þar hefur gengið á ýmsu en meiðsli leik- manna hafa sett strik í reikning- inn auk þess sem miklar breyting- ar eru fyrirhugaðar hjá félaginu, bæði hjá yfirstjórn þess og í leik- mannahópi. Guðmundur gat aðeins teflt fram níu útileikmönnum þegar Rhein-Neckar Löwen vann sigur á Balingen, 30-24, í þýsku úrvals- deildinni á miðvikudag. Fékk smápening í augað „Börge Lund er til að mynda meidd- ur og Zarko Sesum fékk smápening í augað á EM sem var mjög alvar- legur áverki,“ segir Guðmundur en báðir eru þeir leikstjórnendur. „Zarko þarf að fara í uppskurð en hann er nú aðeins með tíu prósenta sjón á auganu.“ Atvikið átti sér stað eftir leik Serbíu og Króatíu í undanúrslitum keppninnar. Áhorfandi ætlaði sér að grýta myntinni í leikmann Króa- tíu en hæfði Sesum á versta stað. Guðmundur segir ágætar horfur á að Sesum geti byrjað að spila á ný. „Augað er enn bólgið og uppskurð- urinn getur ekki farið fram fyrr en það er búið að jafna sig. Menn eru þó vongóðir um að hann fái 50 pró- senta sjón á auganu og geti spilað á ný.“ Hornamaðurinn Patrick Grötzki er einnig frá vegna meiðsla og þá er Krzysztof Lijewski tæpur. Má ekkert út af bregða „Þetta er því grafalvarleg staða. Ég hef í raun bara einn leikstjór- nanda, eina skyttu vinstra megin og tvær hægra megin. Meira er það ekki í þessum stöðum og má því varla neitt út af bregða.“ Þetta hefur líka haft sitt að segja á æfingum. „Þetta hefur verið meira að segja svo slæmt að ég hef sjálfur þurft að standa vörn á æfingum,“ segir hann í létt- um dúr. „Við erum að skoða hvaða möguleikar standa okkur til boða, til að mynda með því að fá leik- menn að láni.“ Á dögunum bárust svo þær fregnir að Pólverjarnir Lijewski og Karol Bielecki væru báðir á leið frá félaginu í sumar. Þar að auki myndi Jesper Nielsen, aðal- styrktaraðili félagsins og stjórn- arformaður, hætta afskiptum af félaginu. Guðmundur segir að verið sé að hugsa upp á nýtt hvernig beri að byggja upp félagið og koma upp sterku liði. „Það á að yngja liðið upp og vera með 8-9 toppleikmenn. Þó svo að við séum að missa leikmenn fáum við líka afar spennandi leikmenn í staðinn, til að mynda Alexand- er Petersson (hægri skytta), Kim Ekdahl du Rietz (vinstri skytta) og Niklas Landin (markvörður). Það er líka verið að skoða að bæta við hægri skyttu og línumanni fyrir næsta tímabil.“ Hann segir að brotthvarf Niel- sens þýði meira aðhald í fjár- málum. „Það þarf að skera niður kostnað en engu að síður teljum við að við verðum með mjög öflugt lið. Pólverjarnir eru dýrustu leik- menn liðsins og brotthvarf þeirra er hluti af niðurskurðinum.“ Hann segir að það hafi lengi staðið til að Nielsen myndi hætta afskiptum af félaginu. „Jesper hefur önnur plön í dag og við verðum að taka þessum breytingum. Ég hef átt mjög gott samstarf við hann í gegnum tíð- ina en þó svo að hann sé nú farinn breytir það engu um mína stöðu hjá félaginu. Ég er með samning hér til 2015 og þó að maður viti aldrei í þessum bransa hvern- ig framtíðin verður veit ég ekki annað en að menn hér séu ánægðir með mín störf,“ sagði Guðmundur Guðmundsson. eirikur@frettabladid.is Verðum áfram ljónsterkir Það gengur á ýmsu hjá Guðmundi Guðmundssyni, þjálfara Rhein-Neckar Löwen, þessa dagana. Margir eru frá vegna meiðsla og róttækar breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn félagsins. Hann lítur þó björtum augum til framtíðar. GUÐMUNDUR Stendur í ströngu með bæði íslenska landsliðinu og Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. NORDIC PHOTOS/GETTY N1-deild karla: Haukar-FH 20-26 (10-10) Haukar - örk (skot): Tjörvi Þorgeirsson 7 (13), Gylfi Gylfason 4 (8/1), Freyr Brynjarsson 3 (3), Stefán Rafn Sigurmannsson 3 (9), Heimir Óli Heimisson 2 (2), Sveinn Þorgeirsson 1 (2)., Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 12/2 (30/4, 40%), Aron Rafn Eðvarðsson 6 (14/1, 43%), Hraðaupphlaup: 6 (Freyr 3, Gylfi 2, Tjörvi) Fiskuð víti: 1 (Tjörvi ) Utan vallar: 8 mínútur. FH - mörk (skot): Hjalti Þór Pálmason 6/3 (6/3), Baldvin Þorsteinsson 5 (11/1), Ari Magnús Þor- geirsson 4 (6), Ólafur Gústafsson 4 (10), Andri Berg Haraldsson 3 (4), Örn Ingi Bjarkason 3 (6), Atli Rúnar Steinþórsson 1 (2). Varin skot: Daníel Andrésson 16/1 (36/1, 44%), Hraðaupphlaup: 6 (Baldvin 2, Ari 2, Ólafur, Hjalti) Fiskuð víti: 5 ( Örn 3, Baldvin, Atli ) Utan vallar: 6 mínútur. Grótta-Akureyri 19-28 (9-13) Grótta - mörk (skot): Jóhann Gísli Jóhannsson 5 (7), Benedikt R. Kristinsson 3 (6), Ólafur Ægir Ólafsson 2/1 (3/2), Þórir Jökull Finnbogason 2/2 (3/2), Árni Benedikt Árnason 2 (5), Davíð Örn Hlöðversson 2 (6), Þorgrímur Smári Ólafsson 2 (10), Kristján Orri Jóhannsson 1 (3). Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 16 (40/4, 40%), Kristján Ingi Kristjánsson 2 (6/1, 33%), Hraðaupphlaup: 5 (Jóhann 3, Benedikt, Kristján) Fiskuð víti: 4 ( Benedikt 2, Ólafur, Árni, Davíð) Utan vallar: 6 mínútur. Akureyri - mörk (skot): Bjarni Fritzsson 12/5 (16/5), Hörður Fannar Sigþórsson 4 (6), Bergvin Þór Gíslason 3 (4), Oddur Gretarsson 3 (6), Geir Guðmundsson 3 (9), Daníel Einarsson 2 (2), Guðmundur H. Helgason 1 (5). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 17/1 (33/3, 52%), Stefán Guðnason 1 (4/1, 25%), Hraðaupphlaup: 8 (Bjarni 3, Hörður 3, Oddur 2) Fiskuð víti: 6 (Bjarni 2, Hörður 2, Bergvin, Geir ) Utan vallar: 4 mínútur. HK-Valur 28-26 (12-14) HK - mörk (skot): Ólafur Bjarki Ragnarsson 10 (15), Atli Ævar Ingólfsson 6 (8), Leó Snær Péturs- son 4 (4), Ólafur Víðir Ólafsson 3 (4), Bjarki Már Elísson 3 (9), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1 (1), Tandri Már Konráðsson 1 (4). Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 12 (36/1, 33%), Arnór Freyr Stefánsson (2/1, 0%), Hraðaupphlaup: 2 ( Bjarki 2) Fiskuð víti: 0 Utan vallar: 4 mínútur. Valur - mörk (skot): Anton Rúnarsson 8/1 (13/1), Orri Freyr Gíslason 4 (4), Sturla Ásgeirsson 4/1 (5/2), Finnur Stefánsson 4 (7), Valdimar Fannar Þórsson 3 (5), Sigfús Sigurðsson 1 (2), Einar Guðmundsson 1 (2), Magnús Einarsson 1 (3). Varin skot: Hlynur Morthens 11 (33, 33%), Ingvar K. Guðmundsson 2 (7, 29%), (1, 0%), Hraðaupphlaup: 6 (Finnur 2, Orri 2, Sturla, Einar) Fiskuð víti: 3 ( Orri 2, Valdimar) Utan vallar: 6 mínútur. Afturelding-Fram 23-23 (12-10) Afturelding: Sverrir Hermannsson 6, Hilmar Stefánsson 4, Jóhann Jóhannsson 4, Jón Andri Helgason 4, Helgi Héðinsson 2, Hrafn Ingvarsson 1, Böðvar Páll Ásgeirsson 1, Einar Héðinsson 1. Fram: Stefán B. Stefánsson 6, Jóhann K. Reynis- son 4, Sigurður Eggertsson 4, Jón Jónsson 3, Arnar Hálfdánsson 3, Halldór Sigfússon 2. STAÐAN: Haukar 14 10 0 4 344-310 20 FH 14 8 3 3 372-347 19 HK 14 9 1 4 384-353 19 Fram 14 8 1 5 358-364 17 Akureyri 14 7 2 5 381-343 16 Valur 14 5 3 6 370-356 13 Afturelding 14 3 1 10 323-378 6 Grótta 14 0 1 13 311-402 1 ÚRSLIT Hilton stóll kr. 49.000,- SVARTUR & BRÚNN Hilton 3ja sæta kr. 89.000,- SVARTUR & BRÚNN Hilton 2ja sæta kr. 69.000,- SVARTUR & BRÚNN ReLax 3ja sæta kr. 159.000,- SVARTUR & BRÚNN ReLax stóll kr. 89.000,- SVARTUR & BRÚNN Hallanlegt bak og fótskemill báðum megin Ótrúlega þægilegt ! Allir sitja vel ! IE-deild karla: Þór Þorlákshöfn-Njarðvik 84-66 Þór Þorlákshöfn: Blagoj Janev 23/9 fráköst, Darrin Govens 22/7 fráköst/6 stoðsendingar, Matthew James Hairston 17/14 fráköst/3 varin skot, Guðmundur Jónsson 7, Emil Karel Einarsson 6, Þorsteinn Már Ragnarsson 5, Darri Hilmarsson 4/7 stoðsendingar/5 stolnir. Njarðvík: Travis Holmes 16, Cameron Echols 13/9 fráköst, Páll Kristinsson 9, Elvar Már Friðriksson 9, Styrmir Gauti Fjeldsted 7, Hjörtur Hrafn Einarsson 4, Ólafur Jónsson 3, Oddur Pétursson 2, Óli Alexandersson 2, Maciej Stanislav Baginski 1. Valur-Fjölnir 73-83 Valur: Alexander Dungal 18, Hlynur Logi Víkingsson 17/15 fráköst, Hamid Dicko 14, Benedikt Blöndal 11, Ragnar Gylfason 8, Snorri Þorvaldsson 5. Fjölnir: Arnþór Freyr Guðmundsson 27, Calvin O’Neal 21, Nathan Walkup 14/8 fráköst, Gunnar Ólafsson 12, Jón Sverrisson 6/12 fráköst, Daði Berg Grétarsson 2, Hjalti Vilhjálmsson 1. Tindastóll-Grindavík 96-105 Tindastóll: Curtis Allen 23, Maurice Miller 17/8 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 16/10 fráköst, Igor Tratnik 14/9 fráköst/5 stoðsendingar, Hreinn Gunnar Birgisson 9, Svavar Atli Birgisson 7/8 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 6, Þröstur Leó Jóhannsson 2, Friðrik Hreinsson 2. Grindavík: Giordan Watson 40/7 stoðsendingar, J’Nathan Bullock 22/7 fráköst/5 stolnir, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 15, Þorleifur Ólafsson 10, Páll Axel Vilbergsson 10, Jóhann Árni Ólafsson 2, Ómar Örn Sævarsson 2, Ólafur Ólafsson 2, Ryan Pettinella 2/6 fráköst. Snæfell-ÍR 97-74 Snæfell: Quincy Hankins-Cole 19/16 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 18, Marquis Sheldon Hall 18, Sveinn Arnar Davidsson 15, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 13, Ólafur Torfason 5/11 fráköst, Þorbergur Helgi Sæþórsson 4, Hafþór Ingi Gunn- arsson 3, Óskar Hjartarson 2. ÍR: Hjalti Friðriksson 18, Robert Jarvis 13, Nemanja Sovic 12/4 , Níels Dungal 8, Eiríkur Önundarson 7, Kristinn Jónasson 6, Ellert Arnar- son 5, Húni Húnfjörð 3, Þorvaldur Hauksson 2. STAÐAN: Grindavík 15 14 1 1341-1160 28 Stjarnan 14 10 4 1248-1159 20 Keflavík 14 10 4 1291-1177 20 Snæfell 15 9 6 1434-1336 18 KR 14 9 5 1232-1190 18 Þór Þ. 15 9 6 1277-1216 18 Fjölnir 15 7 8 1298-1348 14 ÍR 15 6 9 1294-1367 12 Tindastóll 15 6 9 1274-1351 12 Njarðvík 15 6 9 1257-1284 12 Haukar 14 2 12 1077-1192 4 Valur 15 0 15 1133-1376 0 ÚRSLIT FH MEÐ MONTRÉTTINN FH vann uppgjör Hafnarfjarðarliðanna í gær og er aðeins stigi á eftir Haukum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.