Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 10

Fréttablaðið - 11.02.2012, Page 10
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR Styrkja Landsbjörgu Fasteignasalan Eignatorg og Slysa- varnafélagið Landsbjörg hafa gert með sér samkomulag um stuðning Eignatorgs við Landsbjörgu. Eignatorg lætur 15 þúsund krónur af hverjum frágengnum kaupsamningi sem gerður er næstu þrjú árin renna til Landsbjargar. SLYSAVARNIR VIÐSKIPTI Reykjavíkurborg vill kaupa 0,7 prósenta eignarhlut í Faxaflóahöfnum sf. af Borgar- byggð og greiða fyrir það 75 millj- ónir króna. Samkvæmt tilboðinu eru Faxaflóahafnir í heild metnar á um 10,7 milljarða. Gangi kaupin eftir minnkar hlut- ur Borgarbyggðar í Faxaflóahöfn- um í 4,14 prósent og hlutur Reykja- víkurborgar eykst í 75,7 prósent. Eins og kunnugt er vilja Borgfirð- ingar selja úr hlut sínum til að afla fjár til að lána Orkuveitu Reykja- víkur í samræmi við eignarhlut sinn þar. Tilboð Reykvíkinga gildir þar til næsta föstudag. - gar Borgarbyggð gert tilboð: Faxaflóahafnir milljarða virði REYKJAVÍKURHÖFN Faxaflóahafnir eru metnar á 10,7 milljarða.ESBJERG SØNDERBORG Nánari uppl. www.easv.dk Mikilvægt skref í átt að þínum frama S T U D Y I N D E N M A R K AP Degree Fashion Design Marketing Management Multimedia Design & Communication Computer Science Management Technology BACHELOR Degree Engin skólagjöld! meet us! Kynningarfundur! Hótel Hilton Nordica: 16/02 kl. 18:00 Háskóladagurinn! Háskólabíó: 18/02 12:00 – 16:00 International sales & Marketing Business & Design Web Development Software Development Technical Manager FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP TAKTU VÍSI Á HVERJUM MORGNI! GRIKKLAND, AP Átök mótmælenda við lögreglu brutust út í Aþenu í gær, þegar tveggja daga mót- mælaaðgerðir gegn nýjum niður- skurðaráformum stjórnvalda hóf- ust. Gríska stjórnin samþykkti niðurskurðaráformin í vikunni, að kröfu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Enn er þó langur vegur frá því að þessi áform séu í höfn, og óvissa ríkir þar með einnig um fjár- hagsaðstoðina frá ESB og AGS sem á að koma í veg fyrir að gríska ríkið fari í greiðsluþrot í næsta mánuði. Evangelous Venizelos fjár- málaráðherra segir að nú sé komið að því að gríska þing- ið taki úrslitaákvörðun um það hvort Grikkland verði áfram á evrusvæðinu. Niðurskurðaráformin verða líklega borin undir atkvæði á þinginu á morgun, en í gær reyndu leiðtogar stjórnarflokk- anna að tryggja stuðning þing- flokka sinna við áformin. Þingmenn eru tregir til að sam- þykkja áformin, sem leggja enn frekari byrðar á grísku þjóðina í viðbót við þann niðurskurð sem þegar er búið að samþykkja. Georgios Karatzaferis, leiðtogi eins af stjórnarflokkunum þrem- ur, hefur þegar sagt að hann ætli ekki að samþykkja nýju niður- skurðaráformin. Það eitt mun þó ekki verða stjórninni að falli því Karatzaferis er leiðtogi LAOS, sem er litli flokkurinn í stjórn- inni. LAOS er flokkur hægri þjóð- ernissinna, en aðrir flokkar í stjórninni eru sósíalistaflokk- urinn PASOK og íhaldsflokkur- inn Nýtt lýðræði, flokkar sem löngum hafa verið höfuðandstæð- ingar í grískri pólitík en hafa samtals 236 þingsæti af 300. Stjórnin samþykkti á fimmtu- dag að skera verulega niður í heilbrigðismálum, varnarmál- um og sveitarstjórnarmálum, en að auki verður 15 þúsund ríkis- starfsmönnum sagt upp störfum. Einnig verða lögbundin lág- markslaun lækkuð um 20 til 30 prósent og eftirlaun ríkisstarfs- manna lækkuð um 15 prósent. Að auki þurfa Grikkir að finna leið til að spara 325 milljarða evra í viðbót áður en ESB og AGS fall- ast á að veita þeim 130 milljarða evra í fjárhagsaðstoð. Á leiðtogafundi Evrópusam- bandsins í byrjun næsta mánaðar verður svo tekin afstaða til þess hvort Grikkir teljist hafa uppfyllt þau skilyrði sem þeim eru sett. gudsteinn@frettabladid.is Lögregla í átökum við mótmælendur Þótt þjóðstjórnin í Grikklandi hafi samþykkt ný niðurskurðaráform er enn eftir að tryggja stuðning þingsins. Fjármálaráðherrann segir að nú sé komið að því að þingið taki ákvörðun um hvort Grikkland verði áfram með evru. ÁTÖK Í AÞENU Íbúar Grikklands eru ævareiðir vegna nýrra niðurskurðar- áforma ofan á allan þann niðurskurð sem skert hefur lífsgæði almennings verulega. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.