Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 18

Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 18
18 11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR Það er haustið 2016 og Alþjóða-gjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sinn var það íslenska ríkið sem ekki gat staðið við skuldbindingar sínar í erlendri mynt og banka- kerfið er aftur komið í ógöngur eftir snarpa gengisfellingu og brostna eignabólu eins og í fyrra hruninu árið 2008. Eftir hrunið árið 2008 hafði hagkerfið smám saman jafn- að sig undir gjaldeyrishöftum. Bankarnir höfðu breyst úr því að vera innheimtustofnanir, líkt og árin 2009 og 2010, í að verða aftur útlánsstofnanir 2012. Innlend- ir og erlendir kröfuhafar höfðu fengið hundruð milljarða greidd út í krónum. Lífeyrissjóðirnir þurftu einnig að fjárfesta miklu magni af krónum sem skapaði töluverða samkeppni um þær traustu eignir sem voru innan hagkerfisins og gerði það að verk- um að eignaverð var í engu sam- ræmi við sambærilegar eignir í nágrannalöndum. Fjármagnshöft- in, sem Seðlabankinn hafði hald- ið fast við, gerðu það þannig að verkum að öll verð hagkerfisins voru bjöguð. Verðbólgan var mikil, sökum þess að enginn treysti krónunni og hún gaf hægt og sígandi eftir, en hækkun eignaverðs var ennþá meiri. Almenningur reyndi að forða eignum sínum frá verð- bólgubálinu með fjárfestingum í alls konar fastafjármunum, ekki síst húsnæði. Fasteignaverð hafði til dæmis hækkað um 50% á 3 árum og lán til framkvæmda höfðu margfaldast. Á hápunkti bólunnar seldust einbýlishús á verði sem aldrei hafði sést áður, ekki einu sinni fyrir síðustu myntbreytingu 1981 þegar tvö núll voru tekin aftan af gjaldmiðl- inum. Meðalverð einbýlishúsa var vel yfir 100 milljónum og Seðla- bankinn kórónaði óstjórnina í peningamálum með því að gefa út nýja 10.000 og 20.000 króna seðla. Eitt einbýli við Tjörnina hafði farið á 400 milljónir króna. Íslenskt eignafólk hafði einn- ig beitt ýmsum ráðum til þess að flýja mikla skattlagningu og koma eignum úr landi og marg- ir fluttu sjálfir úr landi. Þar sem ekki mátti selja krónur fyrir alþjóðlega gjaldmiðla reyndu menn allt til þess að nálgast alþjóðleg verðmæti með öðrum hætti. Verk allra íslenskra málara sem höfðu alþjóðlegt verðgildi voru löngu uppseld. Öll rauðvín sem höfðu geymslugildi einn- ig. Það gekk svo langt að menn keyptu skartgripi, fornmuni, húsgögn og styttur, sem lítil not voru af, til þess eins að losa sig við krónurnar. Ennfremur veikti það hagkerf- ið að íslensk útflutningsfyrirtæki höfðu verið keypt af erlendum kröfuhöfum fyrir krónur sem ein leið til þess að koma peningum úr landi. Arðinum af fyrirtækja- rekstri var heldur ekki endur- fjárfest á Íslandi heldur án und- antekninga reynt að halda honum í erlendri mynt. Hrunið 2016 vakti upp vondar minningar frá því 8 árum fyrr. Ríkið hafði vissulega verið með stífari reglur á fjármagnsmark- aði, meira eftirlit og mun meiri umsvif, en allt kom fyrir ekki. Þegar hagvöxturinn hafði tekið við sér vildi enginn skemma þann efnahagsbata sem vonast hafði verið eftir svo lengi. Þegar loks kom að skuldadögum var ljóst að kerfið hafði brugðist, sama kerfi og brást árið 2008 og hafði verið endurreist í lítið breyttri mynd, nema hvað að skattar voru hærri, eftirlit meira og fjármagnshöft sem gerðu það að verkum að útlendingar töpuðu nær engu í þetta skiptið og íslenskur almenn- ingur tók á sig allt tapið. Fyrir hrunið árið 2008 hafði Seðlabankinn að miklu leyti sloppið við umræðu um ábyrgð sína á því að leyfa peningamagni í umferð, frá 2003 og fram að hruni, að vaxa um fjörutíu pró- sent að meðaltali á ári og búa til aðstæður þar sem erlendir spá- kaupmenn höfðu ýkt styrk krón- unnar með gríðarlegum vaxta- munsviðskiptum. Í hruninu 2016 var Seðlabankinn aftur í aðalhlut- verki þar sem hann hafði haldið fast við gjaldeyrishöft og mynt sem hafði engan trúverðugleika, sem leiddi til þess að innstreymi erlends gjaldeyris hvarf og því engin leið að standa við erlendar skuldbindingar. Við greiðslufallið og eigna- hrunið 2016 tapaði almenningur aftur öllum sínum sparnaði, en öfugt við hrunið 2008 hafði ríkið líka gengið á lífeyrissjóði lands- manna. Auk þess að setja á ýmsa skatta árin 2009-2011 ákvað ríkið í samráði við Seðlabankann árið 2012 að neyða lífeyrissjóðina til að afhenda erlendar eignir sínar í skiptum fyrir ríkisskuldabréf í krónum, sem ekki mátti selja. Þessi skipti voru til þess að geta endurgreitt erlendum kröfu- höfum að fullu, sem höfðu lánað glannalega til íslensku bankanna, orkufyrirtækja og sveitarfélaga árin 2005-2008. Seðlabankinn hafði í sama tilgangi fengið ríkið til þess að taka öll lán sem það gat til þess að byggja upp gjaldeyris- forða. Flestir erlendu kröfuhaf- arnir sem borið höfðu sína ábyrgð á fyrra hruninu komust á tíma- bilinu með sitt úr landi en eftir stóð ríkisskuldin í erlendri mynt sem íslenska ríkið gat á endanum ekki staðið við. Íslenskur almenn- ingur sat eftir með tapið, skatt- píndur og lokaður inni í höftum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom aftur til landsins haustið 2016, afnam höftin, sem skapað höfðu eignabóluna og sagði að það væri fullreynt með að Ísland hefði forræði yfir sínum peninga- málum. Ísland þyrfti að afsala sér stjórn peningamála, taka upp alþjóðlegan gjaldmiðil, líkt og hvert einasta ríki heims sem telur færri en milljón íbúa hefur gert. Gjaldeyrishöftin höfðu einangrað Ísland frá umheim- inum með tilliti til viðskipta og fjárfestinga. Margir óskuðu að Íslendingar hefðu horfst í augu við staðreyndir árið 2012 í stað þess að leyfa ójafnvæginu enn og aftur að grafa um sig í hagkerf- inu með skelfilegum afleiðingum. Starfstímabil sérstaks saksókn- ara var framlengt en í þetta sinn var ekki hjá því komist að stofna rannsóknarnefnd til að fara yfir starfsemi Seðlabanka Íslands. Ofangreind lýsing er ein af þeim sviðsmyndum sem Ísland getur stefnt inn í við núver- andi kerfi, stefnu ríkisstjórn- ar og Seðlabanka. Það er því miður óskhyggja að treysta á að innganga í Evrópusambandið bjargi Íslendingum. Óháð þeirri umsókn verður að breyta frá rangri stefnu er getur enn á ný byggt upp ójafnvægi sem á end- anum leiðir til skelfilegra afleið- inga fyrir hagkerfið eins og við höfum því miður áður reynt. Til þess að koma í veg fyrir að sú sviðsmynd sem hér er lýst gangi eftir þurfum við að horfast í augu við staðreyndir og marka nýja stefnu. Í næstu grein minni legg ég fram hugmynd að annarri stefnu fyrir Ísland sem er til þess fallin að koma í veg fyrir ofangreinda sviðsmynd. Stefnu sem gerir Íslandi kleift að byggja hagkerfið upp að nýju á eigin forsendum og án utanaðkomandi hjálpar. Við greiðslufallið og eignahrunið 2016 tapaði almenningur aftur öllum sínum sparnaði, en öfugt við hrunið 2008 hafði ríkið líka gengið á lífeyrissjóði landsmanna. Hrunið 2016 Fjármál Heiðar Guðjónsson hagfræðingur 1 króna fyrir barnið flugfelag.is | 570 3030 aðra leiðina + 1.400 kr. 14. – 29. febrúar 2012 (flugvallarskattur) Þetta einstaka tilboðsfargjald er bókanlegt frá kl. 10:00, 13. febrúar 2012 gildir til allra áfangastaða Flugfélags Íslands innanlands er fyrir börn, 2 –11 ára, í fylgd með fullorðnum og í sömu bókun býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is ferðatímabil 14. – 29. febrúar 2012 ÍS LE N SK A S IA .I S F LU 5 81 61 0 1. 20 12 AF NETINU Lítið fylgi fjórflokksins Þegar búið er að draga frá hina óákveðnu, er fylgi flokkanna helmingi minna en af er látið í skoðanakönnunum. Sjálfstæðis- flokkurinn er aðeins með 20% fylgi, Lilja með 12%, Framsókn með 7%, Samfylkingin með 6%, Vinstri grænir með 5% og Guð- mundur með 4%. Ótalin eru þá 47% spurðra, sem neita að svara, hafa ekki gert upp hug sinn. Að einhverju leyti munu þau atkvæði falla á fjórflokkinn. Komi fleiri bitastæð framboð til skjalanna, má þó búast við, að þau taki meira af hinum óákveðnu en fjórflokkurinn tekur. Enn er til dæmis pláss fyrir flokk fólks úr stjórnlagaráði, sem mundi gera mest rusk. Jónas Kristjánsson www.jonas.is Skemmtileg rökleysa Ég hef svo sem ekki miklar skoð- anir á hver verður biskup, vona samt að sá sem nær kjöri verði viðræðugóður og sýni öðrum lífs- skoðunum skilning. En ég get ekki gert að því að hafa gaman af skrýtnum ummælum í kosningabaráttu biskupsefnanna. Ég heyrði viðtal við fram- bjóðanda um daginn sem sagði að kirkjan ætti ekki að sætta sig við hjónaband samkynhneigðra vegna þess að Jesú hafi ekki sagt að þau væru í lagi. Þetta eru nokkuð skemmtileg rök. Með sömu rökum má halda fram að allt sem Jesú tilgreindi ekki sérstaklega sé þar af leiðandi ekki í lagi. Kirkjan þarf þá að leggjast gegn skilnaði (ef minnið svíkur mig ekki), jafnrétti kynjanna (aftur með fyrirvara um minni og Google-leti), það hlýtur að vera rangt að keyra bíl og það er væntanlega bannað að fara í annað bað en fótabað. Valgarður Guðjónsson http://blog.eyjan.is/valgardur/
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.