Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 42
KYNNING − AUGLÝSINGBílasölur LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 20122
AÐGÁT SKAL HÖFÐ VIÐ AKSTUR Í HÁLKU
Hálka er á vegum víða um land
þessa dagana. Eftirfarandi atriði
er gott að hafa í huga við akstur
í hálku:
Akið rólega og eftir aðstæðum en
ekki á leyfilegum hámarkshraða. Ef
ekið er hægt gefst meiri tími til að
sveigja frá hindrunum í stað þess
að þurfa að klossbremsa. Ekki grípa
snöggt í stýrið eða stíga snögglega
á bremsuna, þannig getið þið misst
stjórn á bílnum í hálku. Ef bíllinn er
að missa veggrip sleppið þá bensín-
gjöfinni, stígið á kúplinguna og stýrið bílnum mjúklega á beina braut.
Athugið að hreinsa snjó af öllum bílrúðum, ljósum og speglum bílsins
áður en lagt er af stað. Munið alltaf eftir öryggisbeltunum.
Víða um land er hálka á vegum þessa
dagana. Ökumenn þurfa því að sýna
aðgát.
Hjá Jobba er elsta starfandi bónstöð landsins. Hana hefur Jósef Kristjánsson
rekið í aldarfjórðung við góðan
orðstír en sjálfur hefur hann starf-
að við bón og bílaþvott í þrjá ára-
tugi.
Hann er spurður út í galdurinn
að baki góðum bílaþvotti. „Gald-
urinn er þríþættur: Vandvirkni,
vandvirkni og vandvirkni,“ svar-
ar Jósef glaðlega en Hjá Jobba eru
allir bílar handþvegnir. „Ekkert
tæki hefur enn verið fundið upp
sem leysir af hólmi hendur, tusku
og auga,“ segir hann.
Jósef segir afar nauðsynlegt
að þrífa og bóna bíla reglulega.
„Allir nýir bílar sem hafa komið til
landsins síðustu fimmtán ár eða
svo eru með umhverfisvænt, eða
svokallað vatnsþynnanlegt lakk
sem er mun þynnra og harðara en
olíuakrýllakkið á gömlu bílunum.
Það þýðir að auðveldlega brotnar
upp úr lakkinu. Auk þess upplit-
ast það hraðar vegna sólarljóss
og tekur í sig lit af óhreinindum,“
segir Jósef. Hann tekur sem dæmi
að nýlegir bílar séu farnir að ryðga
á toppnum þar sem sólar ljósið
skín mest á. „Sterk sólin hitar
lakkið sem þýðir að þurr efnin
í lakkinu smjúga út um smáar
sprungurnar í lakkinu og bíllinn
upplitast. Bónið hins vegar fyll-
ir í sprungurnar og varnar þessu
ferli,“ útskýrir Jósef.
Hann segir afar misjafnt hve oft
þurfi að bóna bíla. Það fari mjög
eftir almennu viðhaldi bílsins.
„Bónhúðin endist lengur þegar
bíllinn er þveginn oft.“
Hjá Jobba er boðið upp á fjöl-
breytta þjónustu. Þar má nefna
þrif að innan og utan, bón, teflon-
bón, djúphreinsun teppa og sæta,
tjöruþvott, vélaþvott, lakkmössun,
ryksugun, blettun og lakkviðgerð-
ir. Þá hefur Jobbi einnig tekið að
sér að þrífa laus teppi, tjaldvagna,
fellihýsi, hjólhýsi, reiðhjól, vél-
hjól, flutningabíla, rútur, vinnu-
vélar og báta. „Það eina sem ekki
hefur komið hér inn á gólf er flug-
vél,“ segir hann og hlær.
Panta þarf tíma á stöðinni en
fólk getur valið milli þess að koma
sjálft með bílinn og sækja hann
eða látið sækja til sín bílinn og
skila honum aftur.
Allar nánari upplýsingar um
þjónustu og verð má nálgast á vef-
síðunni www.hjajobba.is
Vandvirkni galdurinn
Nauðsynlegt er að þrífa og bóna bíla reglulega til að varna upplitun á lakki og ryði. Jósef
Kristjánsson Hjá Jobba í Skeifunni 17 hefur þrjátíu ára reynslu af þvotti og bóni.
Jósef og starfsmenn Hjá Jobba þrífa ekki aðeins bíla heldur einnig mótorhjól, hjólhýsi og
allt þar á milli. MYND/GVA
OPIÐ
mán. – fös kl. 10–18
laugard. kl. 12–15
lokað á sun.
Nú getur þú
fjármagnað allt að
10 ára gamla bíla hjá
Sími 567 2277 | www.nyja.is
PORSCHE Boxster. Árgerð 2004, ekinn
68 Þ.KM, bensín, 5 gírar. Verð 4.890.
Umboðsbíll sem bíður spenntur eftir sumrinu
sem kemur snemma í ár segir hann og er á
staðnum Rnr. 217419.
BMW Z4 2.5i. Árgerð 2005, ekinn 112 Þ.KM,
bensín, 5 gírar. Verð 2.790. Tilbúinn út að
leika og Bílinn er á staðnum Rnr.217723.
BMW M6. Árgerð 2006, ekinn aðeins
10 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. Verð 11.900.
umboðsbíll einn glæsilegasti sportbíll
landsins bíður spenntur eftir nýjum eiganda
og er á staðnum Rnr. 231229.
SUMARIÐ KEMUR SNEMMA Í ÁR