Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 56
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR10
Helstu verkefni og ábyrgð
» Þjálfun í geðlækningum með þátttöku í klínísku starfi
» Þátttaka í kennslu- og fræðsluprógrammi
» Þátttaka í reglubundinni handleiðslu og þjálfun í samtalsmeðferð, m.a. í
hugrænni atferlismeðferð, psychodynamiskri meðferð og áhugahvetjandi
samtölum, eru hluti af sérnámi í geðlæknisfræði
Þátttaka í rannsóknum og í hópmeðferð stendur áhugasömum umsækjendum
til boða. Unnið hefur verið ötullega að því að byggja upp prógrammið í
samvinnu við námslækna á síðustu árum.
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
» Vilji til þátttöku í áframhaldandi þróun sérnámsins
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2012. Sótt er um rafrænt á
heimasíðu Landspítala þar sem fram koma nánari upplýsingar.
» Upplýsingar veita Engilbert Sigurðsson, yfirlæknir, engilbs@landspitali.is
og Nanna Briem, sérfræðilæknir, nannabri@landspitali.is, sími 543 1000.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Engilberti
Sigurðssyni, yfirlækni, LSH 34D geðsviði við Hringbraut.
» Með umsókn skal leggja fram ferilskrá ásamt gögnum um rannsóknir
og ritsmíðar. Jafnframt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og
lækningaleyfi. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun
um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Læknar í starfsnámi á geðsviði
Laus eru til umsóknar störf lækna í starfsnámi á geðsviði. Starfshlutfall
er 80-100% og veitast störfin frá tímabilinu 1. júní til 15. október 2012, í
6-12 mánuði. Störf til 6 mánaða geta nýst sem hluti af sérnámi í öðrum
sérgreinum en geðlæknisfræði svo sem heimilis-, endurhæfingar- og
öldrunarlækningum. Einnig er þetta gott tækifæri fyrir heimilislækna sem
vilja auka þekkingu sína á greiningu og meðferð geðsjúkdóma.
Sótt er um starf rafrænt á heimasíðu Landspítala, www.landspitali.is, undir „laus störf“. Ef ekki eru
tök á að sækja um rafrænt má nálgast umsóknareyðublöð hjá LSH mannauðssviði, Eiríksgötu 5.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður
Tölvunarfræðingur – forritari
Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða tölvunar-
fræðing, eða einstakling með sambærilega mennt-
un, í hálft starf nú þegar. Viðkomandi þarf að hafa
haldgóða kunnáttu í vefsmíði og forritun. Reynsla af
forritun flókinna verkefna er nauðsynleg. Reynsla af
kennslu í grunnskólum, námsefnisgerð eða skóla-
starfi almennt er æskileg.
Um er að ræða starf við gerð og útgáfu stafræns
námsefnis á vef Námsgagnastofnunar í samstarfi og
samráði við ritstjóra stofnunarinnar.
Námsgagnastofnun er leiðandi á sviði námsefnis-
útgáfu á Íslandi og leggur metnað sinn í að gefa
út fjölbreytt og vandað námsefni fyrir grunnskóla.
Útgáfa námsefnis á stafrænu formi er vaxandi þáttur
í starfsemi stofnunarinnar.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu á reyklausum
vinnustað. Laun eru samkvæmt kjarasamningum
BHM og stofnanasamningi.
Allar nánari upplýsingar um starfið veita Ingibjörg
Ásgeirsdóttir forstjóri og Tryggvi Jakobsson útgáfu-
stjóri í síma 535 0400 eða í tölvupósti ingibjorg@
nams.is og tryggvi@nams.is
Umsóknum ásamt öllum nauðsynlegum upplýsing-
um skal koma til Námsgagnastofnunar, Víkurhvarfi
3, 203 Kópavogi, í síðasta lagi 27. febrúar. Með allar
upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
Heildverslun á sviði kælitækni,
verslunartækja og pípulagna óskar
eftir tveimur starfsmönnum til
sölustarfa ásamt öðrum verkefnum.
Viðkomandi þurfa að hafa reynslu í sölumennsku auk
almennrar tækniþekkingar.
Umsóknir skulu sendar á vorukaup@vorukaup.is og
verður farið með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Laxframleiðslustöð okkar í Hammerfest hefur eftirtalda stöðu lausa til umsóknar:
Yfirmaður tæknisviðs
Starfsábyrgð:
• Stjórnun og þróun tækniliðs
• Uppbygging fyrirbyggjandi viðhalds
• Þáttaka í þróun og fjárfestingu í verksmiðjunni
• Þáttaka í deildarstjórnun
Mainstream óskar eftir að ráða manneskju með:
• Verkfræðiréttindi
• Góða stjórnunarhæfileika
• Góð innsýn, sveigjanleika og hæfni til að vinna kerfisbundið, nákvæmni, sjálfstæði og samstarfshæfileka
• Góða heilsu og góða kimnigáfu
Frekari upplýsingar á Ensku eru að finna hjá yfirmanni pökunarstöðvar okkar, Knut Larsen, í síma +47 23 68 56 10,
farsíma +47 97 53 02 50, eða hjá framleiðslustjóra í Finnmörk Dagfinn Eliassen, mobile +47 41 22 22 93.
Umsóknir má senda í tölvupósti til: knut.larsen@mainstream.no ekki seinna en 20. febrúar 2012.
Mainstream Norway A/S er fiskeldisfyrirtæki í norður Noregi, með starfsemi í Nordland of Finnmörk.
Árið 2010 var velta Mainstream Norway A/S 1.4 milljarð NOK. Fyrirtækið hefur um 350 starfsmenn.
Mainstream Norway er 100% í eigu Cermaq ASA. The Cermaq Group, sem er alþjóðlegt fyrirtæki, er
annar stærsti framleiðandi heims af fiskafóðri (Ewos), og lax og sílung (Mainstream). Cermaq ASA
er skráð á hlutabréfamarkaði í Oslo.
Laxframleiðslustöð okkar í Hammerfest hefur eftirtalda stöðu lausa til umsóknar:
Tæknimaður / Tæknimaður við sjálfvirkan búnað
Starfslýsing:
• Þróa og byggja upp sjálfvirkan búnað
• Fyrirbyggjandi viðhald
• Framleiðsluþjónusta, viðhald, ísetning búnaðs, uppsetningavinna, troubleshooting og viðgerð tækja, kerfa og framleiðslubúnaðs
• Góð kunátta á velknúnum verkfærum
• Taka þátt í tæknideild
Mainstream óskar eftir að ráða manneskju með:
• Réttindi á sjálfvir tæki eða iðnaðarvélar
• Góð innsýn, sveigjanleika og hæfni til að vinna kerfisbundið, nákvæmni, sjálfstæði og samstarfshæfileka
• Góða heilsu og góða kimnigáfu
Frekari upplýsingar á Ensku eru að finna hjá yfirmanni pökunarstöðvar okkar, Knut Larsen, í síma +47 23 68 56 10,
farsíma +47 97 53 02 50, eða hjá framleiðslustjóra í Finnmörk Dagfinn Eliassen, mobile +47 41 22 22 93.
Umsóknir má senda í tölvupósti til: knut.larsen@mainstream.no ekki seinna en 20. febrúar 2012.
Mainstream Norway A/S er fiskeldisfyrirtæki í norður Noregi, með starfsemi í Nordland of Finnmörk.
Árið 2010 var velta Mainstream Norway A/S 1.4 milljarð NOK. Fyrirtækið hefur um 350 starfsmenn.
Mainstream Norway er 100% í eigu Cermaq ASA. The Cermaq Group, sem er alþjóðlegt fyrirtæki, er
annar stærsti framleiðandi heims af fiskafóðri (Ewos), og lax og sílung (Mainstream). Cermaq ASA
er skráð á hlutabréfamarkaði í Oslo.
Íþrótta og tómstundaráðgjafi
Velferðarsvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Vesturgarður, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, auglýsir lausa stöðu íþrótta- og tómstundaráðgjafa.
Íþrótta og tómstundaráðgjafi vinnur að uppbyggingu félagsauðs, eflingu frístundastarfs og valdeflingu í þverfaglegu samstarfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Umsækjendur er vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf.
Umsóknarfrestur er til 24. febrúar 2012.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður E. Arnardóttir í síma 411-1700, netfang sigthrudur.erla.arnardottir@reykjavik.is
Helstu verkefni eru:
• Hafa yfirsýn yfir félags- og frístundastarf í hverfinu og stuðla að
eflingu þess
• Þátttaka í stefnumörkun um félags- og frístundamál hverfisins
• Tekur þátt í framkvæmd forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar
• Starfar með hverfisráði að eflingu félagsauðs í hverfinu
• Samstarf við notendaráð um félagasstarf á félagsmiðstöðinni
• Leiðir samstarf á milli stofnanna, félagasamtaka og einstaklinga í
hverfinu um þau verkefni sem fyrir liggja
• Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga, s.s. á heimasíðu hverfisins
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af samfélagsvinnu, frístunda- og félagsstarfi
og valdeflingu
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt
viðmót og samstarfshæfni.
• Þekking og reynsla af margmiðlun æskileg
• Þekking og reynsla af því að stýra verkefnum