Fréttablaðið - 11.02.2012, Síða 72
KYNNING − AUGLÝSINGBílasölur LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 20124
Hér seljum við allt mögulegt og höfum meira að segja núna í febrú-ar auk bifreiðar selt buggy-bíl,
ferðavagna og mótorhjól,“ segir Árni Ágúst
Brynjólfsson, sölustjóri hjá Höfðahöllinni.
Bílasalan er yfir 20 ára gömul en nýr eig-
andi, Indriði Jónsson sem einnig á Bíla-
lind, tók við rekstrinum nú um áramótin.
Hann segir sölu á notuðum bifreiðum
almennt mjög góða og hafi glæðst mikið
eftir smá lægð í kringum hrunið á sínum
tíma. „Við erum með bifreiðar og ökutæki
af öllum stærðum og gerðum og af öllum
tegundum. Þá er verðbilið mjög mikið og
allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ segir hann og er afar bjartsýnn á
áframhaldandi velgengni.
Aðstaða Höfðahallarinnar að Tanga-
bryggju 14-16 er mjög góð að sögn Árna.
„Við erum með bjartan og flottan 500 fer-
metra sýningarsal og síðan afar stórt úti-
svæði sem er stútfullt af bílum,“ segir Árni
enda vill hann meina að bílar sem standi á
sölunni seljist langbest.
En eru einhverjir bílar sem seljast
betur en aðrir? „Í raun er allt að seljast og
merkilegt að þrátt fyrir hátt bensínverð er
fólk enn að skoða átta sílindra jeppa. Þó
eru auðvitað ákveðnar týpur sem selja
sig nánast sjálfar,“ svarar hann og nefn-
ir sem dæmi sparneytna fólksbíla á borð
við Toyota Yaris og Skoda Oktavíu. „Þessir
vísitölubílar sem eyða litlu og eru á verð-
bilinu ein til tvær milljónir króna eru mjög
vinsælir,“ segir hann. Inntur eftir því hvort
gamlir bílar seljist að einhverju ráði segir
Árni: „Það er orðin meiri eftirspurn eftir
gömlum bílum núna enda eru bílar á
markaði almennt orðnir eldri þar sem lítið
hefur selst af nýjum bílum undanfarin tvö
ár.“
Hvernig er best að fólk beri sig að ef það
vill koma bíl sínum í sölu hjá Höfðahöll-
inni? „Það er einfalt, það mætir með bíl-
inn niður á sölu til okkar, við skráum hann,
tökum myndir og auglýsum hann síðan
bæði á netinu og í blöðunum,“ upplýsir
Árni en skráning bílsins hjá Höfðahöllinni
er ókeypis. „Þá getur fólk líka farið á heima-
síðuna okkar, www.hofdahollin.is, og skráð
þar bílinn sjálft og hlaðið inn myndum,“
bætir Árni við. Vefsíðan er mjög vel upp sett
en þar er hægt að fá yfirlit yfir alla bíla og
annað sem Höfðahöllin hefur til sölu. Árni
segir vefinn spila mjög stórt hlutverk í sölu
á bílum í dag. „Netið er mikið notað af kaup-
endum,“ segir hann og tekur fram að miklu
máli skipti að settar séu inn myndir af bílun-
um. „Bílar með myndum seljast alltaf mun
betur en bílar án mynda.“ Til að auka enn
sölumöguleikana mælir Árni með að selj-
endur láti þrífa bílana og bóna þá auk þess
að láta skoða þá.
Inntur eftir því hvaða borgunarmöguleik-
ar séu fyrir hendi svarar Árni: „Flestir stað-
greiða bílana sína í dag en þó eru nokkrir
fjármögnunarmöguleikar í boði. Hægt er að
fá bílalán bæði hjá Landsbankanum og Ergo
auk þess sem við bjóðum allt að 650 þúsund
króna kortalán til 36 mánaða.“
Þeir sem vilja kynna sér nánar úrval
Höfðahallarinnar eða hafa hug á að skrá bíl-
inn sinn á söluna er bent á www.hofdaholl-
in.is en einnig er hægt að hafa samband á
hofdahollin@hofdahollin.is.
Bílasalan Bílalind að Funa-höfða 1 býður fjölbreytt úrval bifreiða á hagstæðum
kjörum. Þar heldur Indriði Jóns-
son utan um taumana en eigand-
inn segir bílasölu fara vel af stað
á nýju ári.
„Svo sannarlega. Um þessar
mundir er mikið af ódýrum bílum
að seljast, bílar sem kosta yfirleitt
svona á bilinu frá hálfri og upp í
eina milljón. Annars er heldur
ekki langt síðan við gerðum afsal
að bifreið upp á um tíu milljónir.
Þannig að salan er almennt góð,“
upplýsir hann léttur í lund.
Bílalind segir Indriði leggja
mesta áherslu á umboðsölu á not-
uðum bílum fyrir einstaklinga og
fyrirtæki en nýir bílar og tengdar
vörur, mótorhjól, ferðavagnar og
fleira séu líka á boðstólum. „Við
leggjum okkur í líma við að upp-
fylla óskir viðskiptavina okkar og
getum við það ekki sjálfir beinum
við þeim á rétta braut,“ segir hann
og getur þess að hjá Bílalind vinni
vaskir starfsmenn með þjónustu-
lund og margra ára reynslu af bíla-
sölu.
„Við rekum einnig litla dekur-
bónstöð sem við köllum Lúxus-
bón þannig að við getum til dæmis
gert bílinn mun sölulegri á stutt-
um tíma, en við þrífum einnig
fyrir fjölmarga sem koma aftur og
aftur vegna góðrar reynslu.“
Indriði starfaði sjálfur í mörg ár
við bílafjármögnun hjá Íslands-
banka sem í dag kallast Ergo áður
en hann festi kaup á Bíland árið
2009. „Já, ég er fyrrum banka-
maður sem þótti fínt heiti í eina
tíð þótt það hafi kannski rýrnað,“
segir hann og hlær. „En svona í al-
vöru talað þá kem ég inn í brans-
ann með yfirgripsmikla þekkingu
á lánum, veðsetningum, yfirtök-
um og á öllum þessum snúningi
sem tengist skuldsettum bifreið-
um.“
Indriði tekur þó fram að Bíla-
lind boði engar töfralausnir. „Nei,
þvert á móti reynum við að greina
þarfir og getu fólks. Hvaða mögu-
leikar eru raunhæfir í stöðunni.
Enda viljum við vera heiðarlegir,
bæði í samskiptum við viðskipta-
vini í leit að ökutækjum og lána-
fyrirtæki sem líta hlutina eðlilega
ekki sömu augum eftir hrun. Ef
maður sýnir því fullan skilning
næst góð samvinna. Heilindi eru
lykillinn að góðum árangri í við-
skiptum.“
Spurður hvort það hafi ekki
verið óðs manns æði að kaupa
bílasölu í miðri kreppu, hlær Indr-
iði. „Síður en svo. Ég væri kannski
orðinn gjaldþrota hefði ég gert það
fyrir nokkrum árum þegar bull-
andi bílasala var í gangi á Íslandi.
Þá fóru menn stundum svolítið
geyst. Nei, þá var nú betra að byrja
eftir hrun og fara af stað með hag-
sýni að leiðarljósi,“ svarar hann og
segir sú ákvörðun hafi reynst hár-
rétt.
„Með því móti hefur mér tek-
ist að skapa mér og öðrum vinnu
og ég get boðið viðskiptavinunum
góð kjör. Þannig að ég er feginn að
hafa látið gamlan draum rætast og
hent mér út í djúpu laugina. Þetta
er stórskemmtileg vinna, mjög
mannleg og gefandi í alla staði,“
segir hann og hvetur sem flesta að
kíkja í heimsókn. „Hér er glæsileg-
ur sýningarsalur og stórt bílaplan.
Svo er auðvitað alltaf heitt á könn-
unni og súkkulaði með.“
Fjölbreytt úrval á góðum kjörum
Bílalind að Funahöfða 1 er með umboðssölu á bílum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Bílalind leggur áherslu á notaða bíla og tengdar vörur. Hjá
fyrirtækinu vinna vaskir starfsmenn með margra ára reynslu af bílasölu og bílafjármögnun sem taka vel á móti viðskiptavinum.
Hjá Bílalind vinna vaskir starfsmenn með góða þjónustulund og áralanga reynslu af bílasölu. Frá vinstri: Indriði Jónsson, Jón Torfi
Eysteinsson og Lárus Arnar Þórisson. MYND/STEFÁN
Lipur þjónusta í Höfðahöllinni
Höfðahöllin er rótgróin bílasala að Tangabryggju 14-16. Fjölbreytileikinn er mikill á sölunni og geta viðskiptavinir skoðað úrvalið í 500 fermetra
sýningarsal eða á stóru útisvæði. Vefsíða Höfðahallarinnar er afar vel upp sett með greinargóðum upplýsingum um öll ökutæki sem eru til sölu.
„Hér seljum við allt mögulegt,” segja Árni Ágúst Brynjólfsson sölustjóri og Indriði Jónsson, eigandi Höfðahallar-
innar. MYND/STEFÁN
Höfðahöllin er í afar góðu húsnæði að Tangabryggju
14-16.