Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 8
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR8
1. Hvað heitir forsetaframbjóðandi
Sósíalistaflokksins í Frakklandi?
2. Hvaða hugleiðslu- og sjálfs-
ræktarkerfi hefur verið þyrnir í
augum kínverskra stjórnvalda?
3. Hvernig er útbreiðsla lúpínu
greind hér á landi?
SVÖR
1. François Hollande. 2. Falun Gong.
3. Skoðaðar eru gervitunglamyndir
FRÉTTASKÝRING
Hver ber áhættuna vegna
gerðar Vaðlaheiðarganga?
Að mati Ríkisábyrgðarsjóðs getur
gerð Vaðlaheiðarganga eins og
hún er fram sett í frumvarpi fjár-
málaráðherra ekki talist vera
einkaframkvæmd. Það verklag er
þó forsenda þess að fara í fram-
kvæmdina utan vegáætlunar Vega-
gerðarinnar og óháð öðrum vega-
framkvæmdum.
Samkvæmt framsettri dagskrá
þingfunda á Alþingi átti að ræða
Vaðlaheiðargöng síðasta þriðjudag,
en málið komst ekki á dagskrá.
Sama gerðist svo á miðvikudag.
„Málið fer ekki á dagskrá fyrr
en eftir helgi og fyrsti þingdagur
eftir helgi er á þriðjudag. Mánu-
dagurinn er þingflokks fundar-
dagur samkvæmt starfsáætlun
þingsins,“ segir í svari Ragnheiðar
Ríkharðsdóttur, fyrsta varaforseta
Alþingis, við fyrirspurn blaðsins.
Búast má við fjörugum
umræðum um málið á Alþingi
enda hefur víða komið fram hörð
gagnrýni á þá leið sem til stendur
að fara. Hefur því verið haldið
fram að þótt framkvæmdin beri
yfirbragð einkaframkvæmdar
sé í raun um ríkisframkvæmd að
ræða, enda beri ríkið í raun alla
ábyrgð á verkinu og þurfi líklega
að standa undir fjármögnun þess.
Þá hafa forsvarsmenn byggðar-
laga þar sem beðið er eftir veg-
bótum í formi jarðganga, líkt og
á við um ný Norðfjarðargöng í
Fjarðabyggð, talið eðlilegra í ljósi
aðstæðna að Vaðlaheiðargöng yrðu
tekin inn á vegáætlun og færu þar í
biðröð með öðrum fram kvæmdum,
í stað þess að vera skotið með
þessum hætti fram fyrir röðina.
Þingmenn skipast fremur í
flokka eftir kjördæmum í afstöðu
sinni til málsins en eftir flokks-
línum. Þannig er ekki einhugur um
frumvarpið innan ríkisstjórnar-
flokkanna.
Telja verður líkur á að í
umræðum um málið vegi þungt
umsögn Ríkisábyrgðarsjóðs sem
leggur til annað verklag en lagt
er til í frumvarpinu. Sjóðurinn
gengur raunar svo langt að segja
framkvæmd Vaðlaheiðarganga
ekki flokkast sem einkafram-
kvæmd. „Enda er gert ráð fyrir því
að ríkissjóður taki á sig alla áhættu
varðandi fjármögnun verkefnisins
ásamt því að þurfa að treysta því
að fjárfestar endurfjármagni án
ríkisábyrgðar verkefnið að fram-
kvæmdum loknum árið 2018.“
Niðurstaða Ríkisábyrgðarsjóðs
er að afar ólíklegt sé að unnt verði
að endurfjármagna framkvæmda-
lán ganganna án ríkisábyrgðar
og að vaxtastig að framkvæmda-
tíma loknum sé stórlega van metið.
Líklegir vextir án ríkisábyrgð-
ar, að viðbættu áhættuálagi, séu
6,8 til 7,3 prósent. Forsendur
Vaðlaheiðar ganga ehf. hljóða hins
vegar upp á 3,7 prósent.
Eins kemur fram að fari vextir
yfir 5,3 prósent þá séu 100 pró-
senta líkur á greiðslufalli Vaðla-
heiðarganga. „Standi vilji Alþingis
til þess að ríkið fjármagni gerð
Vaðlaheiðarganga, þá telur Ríkis-
ábyrgðarsjóður raunhæfara að
ríkis sjóður lágmarki áhættu sína
með því að fjármagna langtíma-
lánið á markaði áður en fram-
kvæmdir hefjast,” segir í niður-
stöðu umsagnar sjóðsins og bent
á að vaxtastig sé nú í sögulegu
lágmarki. olikr@frettabladid.is
Flokkast ekki
sem einka-
framkvæmd
Frumvarp um heimild til að fjármagna gerð Vaðla-
heiðarganga er á dagskrá Alþingis á þriðjudag. Málið
vék fyrir öðrum fyrir helgi. Frumvarpið er umdeilt og
vafi á hvort göngin falli í flokk einkaframkvæmda.
SÉÐ OFAN Í EYJAFJÖRÐ Leiðin um Víkurskarð er fögur og hefur ferðafólk gaman af
því að aka hana í góðu veðri, þótt hún geti verið torfær í hálku og vondum veðrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Námskeið með DAVÍÐ KRISTINSSYNI
næringar- og lífsstílsþjálfara
www.heilsuhusid.is
Síðasta námskeiðið í bili!
Námskeiðið er haldið í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5, kl. 20 - 22.
Innifalið er uppfærð handbók með öllum
upplýsingum sem þú þarft og 30 daga framhaldsmatseðill.
Námskeiðsgjald aðeins kr. 5.500,-
Nánari upplýsingar á www.30.is og í síma 864 9155.
Fimmtudaginn 26. aprí
l
Í því skyni að styrkja tengsl EFTA-ríkjanna við
styrkþegaríkin, verða í hverju hinna 15 ríkja,
starfræktir undirbúningssjóðir sem stuðla eiga
að auknu samstarfi. Styrki úr þessum sjóðum
má nýta til að sækja ráðstefnur, námskeið
og fundi og til annars sem auðveldað getur
fyrirtækjum og opinberum aðilum að koma
á samstarfsverkefnum tengdum áherslu-
sviðum sjóðsins. Nánar um sjóðinn á vefnum
www.eeagrants.org
EFNAHAGSMÁL Aðskilnaður við-
skipta- og fjárfestingabankastarf-
semi á Íslandi myndi fela í sér
umtalsverðan kostnað fyrir lán-
takendur og fjármagnseigendur.
Þetta er mat greiningardeildar
Arion banka sem gefið hefur út
skýrslu um þá hugmynd að aðskilja
viðskipta- og fjárfestingabanka.
Fréttablaðið greindi frá því
19. mars síðastliðinn að full sam-
staða hefði skapast um það á
Alþingi að aðskilja viðskipta- og
fjárfestinga bankastarfsemi með
lögum. Í greinar gerð sem fylgir
þingsályktunar tillögu um slíka
aðgerð segir að innlán viðskipta-
banka, sem hafa bakábyrgð frá
ríkinu, hafi í aðdraganda banka-
hrunsins verið notuð í glæfra legar
og jafnvel óarðbærar fjár festingar,
meðal annars í fyrirtækjum ná-
tengdum viðkomandi fjármála-
stofnunum. Vegna þeirrar sérstöku
tryggingar sem innlán njóti sé rík
ástæða til að aðskilja hefðbundna
bankastarfsemi frá áhættusækinni
fjárfestingarstarfsemi.
Svipuð umræða hefur átt sér
í stað í flestum nágrannaríkj-
um Íslands en skýrsluhöfundar
benda á að stærð íslenska banka-
kerfisins skeri sig ekki lengur úr í
alþjóð legum samanburði auk þess
sem fjárfestingabankastarfsemi
íslensku bankanna sé afar lítil.
Því sé vandséð að aðskilnaður sé
aðkallandi eins og sakir standa þótt
innlendur fjármálamarkaður geti
vissulega breyst.
Skýrsluhöfundar leggja því til
að vilji stjórnvöld gera bankastarf-
semi öruggari sé skynsamlegra að
hækka lágmarkseiginfjárkröfur
íslenskra banka, horfa í auknum
mæli á gæði eiginfjár og lausafjár-
stöðu bankanna og setja reglur um
hámarksvogun. Þá mætti skoða að
takmarka erlenda starfsemi sem og
eigin fjárfestingar banka. - mþl
Greiningardeild Arion banka hefur gefið út skýrslu um aðskilnað viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi:
Mæla gegn aðskilnaði á bankastarfsemi
BANKARNIR Samstaða er um það á
Alþingi að banna viðskiptabönkum að
stunda fjárfestingarbankastarfsemi.
VEISTU SVARIÐ?