Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 10
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR10
VIÐSKIPTI Umsóknarferli kínverska
fjárfestisins Huangs Nubos til að
leigja Grímsstaði á Fjöllum er nú
á lokastigi. Talið er að niðurstöðu
sé að vænta á næstu vikum.
Atvinnuþróunarfélagi Eyja-
fjarðar var falið að vinna að
útfærslu mögulegrar fjárfest-
ingar Nubos. Framkvæmdastjóri
félagsins, Þorleifur Lúðvík Sigur-
jónsson, segir vinnuna hafa verið
unna í samræmi við lög, hefðir og
fordæmi og án áhættu fyrir sveit-
arfélög og aðra hagsmunaaðila.
„Þetta var unnið í mikilli sátt
og er í mjög góðum farvegi,“ segir
hann. „Við vonumst til að klára
málið endanlega á næstu vikum.“
Niðurstöðurnar hafa nú verið
kynntar sveitarstjórnum og eru
þar til umræðu þar sem meðal
annars er verið að íhuga kaup á
jörðinni.
Eftir að Nubo var synjað um
undan þágu á kaupum á Gríms-
stöðum fór af stað vinna til að gera
honum kleift að leigja landið af
sveitarfélögum og ríkinu til langs
tíma.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir engan hafa gert
honum grein fyrir viðræðum af
neinu tagi, hvorki af hálfu sveitar-
félaganna né annars staðar innan
stjórnsýslunnar.
„Mér er hins vegar kunnugt
um að sveitarfélögin hafi átt í
við ræðum og þá hef ég sagt að
ráðuneytið komi að málum á ein-
hverju stigi vegna laga og ákvæða
sem þar er að finna um fjár reiður
sveitar félaga. En fram til þessa
hefur enginn haft neitt samband
við okkur,“ segir Ögmundur.
Ívilnananefnd, skipuð fulltrúum
úr iðnaðar-, fjármála- og viðskipta-
ráðuneyti, er nú á lokametrunum í
skoðunum á umsóknum Nubos.
„Við erum búnir að kalla í tví-
gang eftir frekari upplýsingum
frá umsækjanda. Málið gengur vel
og niðurstöðu er að vænta á næstu
dögum,“ segir Ingvi Már Pálsson,
formaður ívilnananefndar. - sv
Ívilnananefndin lýkur vinnu á næstu dögum:
Umsóknarferli Nu-
bos á lokametrunum
HUANG NUBO Eftir að kínverska fjárfestinum var neitað um undanþágu á kaupum á
Grímsstöðum er nú unnið að því að finna leiðir til að leigja honum jörðina til langs
tíma.
Frumkvöðull og
fræðimaður
Boðað er til málþings í
tilefni 250 ára fæðingar-
afmælis Sveins Pálssonar
24. apríl 2012 kl. 15–17
í Öskju, náttúrufræðahúsi
Háskóla Íslands, sal 132.
Sveinn var annálaður fræðimaður,
rithöfundur, læknir og ferðagarpur
sem var frumkvöðull í rannsóknum
á náttúru landsins og þá sérstak-
lega jöklunum. Hann er talinn
meðal fyrstu Íslendinganna sem
vöktu athygli á hugmyndafræði
sjálfbærrar þróunar, og var dagur
umhverfisins því tileinkaður
honum.
Aðgangur er ókeypis.
SVEINN PÁLSSON
DAGSKRÁ
Ávarp umhverfisráðherra
Upplýsingarmaðurinn Sveinn Pálsson
Læknirinn Sveinn Pálsson
Náttúrufræðingurinn Sveinn Pálsson
Jöklafræðingurinn Sveinn Pálsson
Landkönnuðurinn Sveinn Pálsson
Fundarstjóri er Elín Einarsdóttir,
oddviti Mýrdalshrepps
P
O
K
A
H
O
R
N
IÐ
Nýtt nám í ráðstefnutúlkun
– góðir tekjumöguleikar
PI
PA
R
\T
B
W
A
\
SÍ
A
-
1
2
1
2
6
0
Forkröfur í námið: Háskólagráða á grunn-
stigi, BA- eða BS-gráða með 1. einkunn (7,25+).
Sýna þarf fram á kunnáttu í tveim ur erlend um
tungu málum og einnig fara fram hæfnis próf í
byrjun maí.
Fyrsti hluti hæfnisprófa fer fram miðviku-
daginn 2. maí nk. og felst í þremur verk-
efnum: Tveimur stuttum þýði ngum úr erlend um
mál um (300 orð hvor) og krossa prófi í mál skiln-
ingi á íslensku. Umsókn um námið er jafn framt
skráning í prófin. Prófin fara fram
í Aðal bygg ingu HÍ frá kl. 10–14.
Þeir sem standast skriflegu prófin taka munn leg
próf 3. maí þar sem þeir fá tæki færi til að spreyta
sig á ör stutt um ræðum.
Umsækjendur sendi umsóknir til Marion
Lerner, marion@hi.is. Umsóknar frestur er til
og með 30. apríl.
Upplýsingar um námið má finna í kennslu skrá
á vef Háskóla Íslands.
Haustið 2012 verður boðið upp á nýtt tveggja ára meistaranám í ráðstefnu túlkun
við Hugvísindasvið.
• Ráðstefnutúlkar starfa við túlkun á ráðstefnum og fundum um víða veröld.
Starfið er vel launað því framboð af túlkum er miklu minna en eftirspurn.
• Góður ráðstefnutúlkur þarf að kunna móðurmálið, að minnsta kosti tvö erlend
tungumál og búa yfir víðtækri almennri þekkingu.