Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 21. apríl 2012
Sætún 10 | 105 Reykjavík | Sími 440 9000 | advania@advania.is | www.advania.is
Dagskrá:
13.00 Opnun
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania
13.10 Viðskiptagreind: Fimm þrepa
nálgun við stefnumótun
Hinrik Jósafat Atlason, Advania
13.25 Öryggi: Stafræn óværa,
blekkingar og öryggisstefna
Sigurður Másson, Advania
13.45 Öryggi: Upplýsingaleki er ógn
Tryggvi R. Jónsson, Deloi 14.05 Kaffipása
14.25 Samfélagsmiðlar: Hagnýt
ráð fyrir fyrirtæki og stofnanir
Bárður Örn Gunnarsson, Hvíta húsið
14.40 Snjallsímar: App og
farsímavefir sem markaðstæki
Helgi Pjetur Jóhannsson, Stokkur
(leggja.is)
15.00 Viðskiptalausnir: Microso
SharePoint fyrir skjöl og samvinnu
Sigvaldi Óskar Jónsson, Advania
15.15 Viðskiptalausnir: Hámörkun
árangurs með viðskiptalausn -
Reynslusaga
Reynir Eiríksson, Norðlenska
15.35 Verslun og viðskipti:
Framtíðarsýn í afgreiðslukerfum
Hjalti G. Hjartarson, Advania
15.50 Kaffipása
16.10 Veflausnir: Nýjungar í
netverslun og rafrænum viðskiptum
Sigrún Eva Ármannsdóir, Advania
16.30 Veflausnir: Spennandi stefnur
og straumar í hönnun og viðmóti
Jónatan Gerlach, Skapalón
16.50 Lokaorð
Garðar Már Birgisson, Advania
17.00 Léar veitingar
Þátaka er gestum að kostnaðarlausu.
Skráning og nánari upplýsingar á
www.advania.is.
Vorráðstefna
Advania á Akureyri
Hin árlega vorráðstefna Advania verður haldin í Menningarhúsinu Hofi
á Akureyri föstudaginn 27. apríl og er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
Á dagskrá eru 10 áhugaverðir fyrirlestrar þar sem áhersla er lögð á gagnlegan fróðleik
um nýjustu strauma og stefnur í upplýsingatækni fyrir atvinnulífið. Ráðstefnunni lýkur
með léum veitingum, ljúfum tónum og notalegum félagsskap.
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
Ársfundur 2012
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar verður haldinn fimmtudaginn
10. maí kl. 17.00 í Bæjarstjórnarsal Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð.
Dagskrá
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
2. Breyting á samþykktum
3. Önnur mál löglega upp borin
a. Kynning á mögulegri sameiningu lífeyrissjóða með bakábyrgð sveitarfélaga
Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til
fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins
Kópavogi, 20. apríl 2012
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar
Páll Torfi Önundarson læknir birtir enn á ný hugmyndir
sínar og Magnúsar Skúlasonar
arkitekts um stækkun Land spítala
við Hringbraut í Fréttablaðinu 19.
apríl 2012. Á fréttavefnum mbl.is
var fjallað um þessar sömu hug-
myndir 3. mars í ár og daginn
eftir leitaði mbl.is álits undir-
ritaðs á þeim. Nú bregður svo við
að Páll Torfi gerir það álit, og
reyndar skoðanir SPITAL hóps-
ins í heild, tortryggilegar vegna
„beinna fjárhagslegra hagsmuna
af sinni tillögugerð“ og mögulegs
„hagsmunaáreksturs“!
Skipulagstillaga sem SPITAL
hópurinn hefur unnið að, í góðri
samvinnu við Landspítala,
Háskóla Íslands, Reykjavíkur-
borg og fjölmarga aðra aðila,
þróaðist upp úr vinningstillögu
SPITAL hópsins í lokaðri sam-
keppni, að loknu opnu forvali árið
2010. Í kjölfar samkeppninnar
var samið við SPITAL hópinn um
gerð deiliskipulags á grundvelli
vinningstillögunnar og forhönnun
bygginga og gagna fyrir alútboð
bygginganna. Hluta vinnunnar er
þegar lokið, stórum hluta lýkur á
næstu vikum og umsömdu verk-
efni SPITAL hópsins verður
væntanlega lokið að fullu um leið
og deiliskipulagið er samþykkt.
Það gerist vonandi þegar líða fer
á árið 2012.
Alútboðsformið felur í sér
að aðrir hönnuðir en SPITAL
hópurinn haldi hönnunarverkinu
áfram. Á samkeppnisstiginu var
þó strax gert ráð fyrir að samið
yrði við sigurvegara í hönnunar-
samkeppninni um ráðgjöf og
aðstoð við verkefnið þar til því
lyki. Umfang slíkrar vinnu hefur
hvorki verið skilgreint né um
slíkt samið. Hér er ekki um mikla
vinnu að ræða í hlutfalli við heild-
arveltu þeirra fyrirtækja sem
standa á bak við SPITAL hópinn
og því eiga dylgjur Páls Torfa um
fjárhagslega hagsmunaárekstra
sér enga stoð í veruleikanum. Ég
vísa þeim til föðurhúsa.
Í ljósi stöðunnar eftir fall
bankanna árið 2008 voru áform
um uppbyggingu Landspítalans
endurskoðuð. Norska arkitekta-
stofan Momentum var fengin til
verksins og í skýrslu hennar er
annars vegar úttekt á áætlunum,
sem unnið var að fram til 2008, og
einnig tillögur um hvernig takast
mætti á við verkefnið í ljósi nýrra
aðstæðna. Meginniðurstaðan var
sú að uppbygginguna þyrfti að
hugsa út frá minni byggingar-
áfanga í upphafi en áður hafði
verið gert, að nota eldri byggingar
lengur og að líta á fyrsta áfanga
sem upphaf þróunar ferlis í endur-
skipulagningu og endurbyggingu
spítalans í heild. Þannig er tillaga
SPITAL hugsuð, öndvert við hug-
myndir Páls Torfa Önundarsonar
sem að eigin sögn duga til 20-30
ára með minna byggingamagni.
Engin afstaða er tekin til þróunar
eftir það.
Hér er fátt samanburðarhæft
við tillögu SPITAL hópsins. Hún
er til langs tíma og sýnir upp-
byggingu næstu ára og áratuga
og mögulega þróun í rökréttu
samhengi inn í enn fjarlægari
framtíð að auki. Að loknum fyrsta
áfanga verður orðinn til betri,
öruggari og hagkvæmari spítali
en áður. Í síðari áföngum verður
þyngsta spítalastarfsemin öll
komin í nýjar byggingar og eldri
byggingar fá léttara hlutverk sem
þær ráða við.
Hugmynd Páls Torfa hefur
yfir sér bútasaumsbrag liðinna
áratuga og grunnhugsunin þar
er ekki til þess fallin að á henni
megi byggja góðan og hag-
kvæman spítala. Þessi hugmynd
er slæm vegna þess að í henni
felst að gömlu byggingarnar
stýra í raun uppbyggingu til
framtíðar og hún er óraunhæf
þegar litið er til þess að starfsemi
þarf að vera í eldri byggingum á
framkvæmdatímanum.
Hugmynd Páls Torfa batnar
ekki við að sýna hana aftur og
aftur í fjölmiðlum. Hún batnar
heldur ekki við að reyna að gera
SPITAL hópinn tortryggilegan
og láta þannig tilganginn helga
meðalið.
Framtíðin endar ekki eftir 30 ár
Nýr Landspítali
Helgi Már
Halldórsson
hönnunarstjóri SPITAL
hópsins
Í síðari áföngum
verður þyngsta
spítalastarfsemin öll
komin í nýjar byggingar
og eldri byggingar fá
léttara hlutverk sem þær
ráða við.