Fréttablaðið - 21.04.2012, Síða 22
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR22
É
g er alltaf með sólgleraugu.
Líka á veturna,“ segir leik-
arinn Vignir Rafn Valþórs-
son þegar hann sest niður á
Hressó á svölum en sólríkum apríl-
morgninum. Hinn hluti rökstóla-
pars vikunnar, kvikmyndagerðar-,
dagskrár- og tónlistarkonan Vera
Sölvadóttir, er hins vegar sólgler-
augnalaus. „Síðasta mánuðinn hef
ég týnt tveimur pörum af Ray-Ban
og er ógeðslega svekkt. En það er
nýtt par á leiðinni í póstinum. Jack
Nicholson sagði eitt sinn: „Without
my Ray-Bans I am nothing. With
them, I am Jack Nicholson.“
Vandamál í miðbænum
Hvað vitið þið hvort um annað?
Vignir: „Við þekkjumst nú eitthvað.“
Vera: „Já, ég hitti þig fyrst í gegn-
um vinkvennahóp úr Garðabænum.
Svo sá ég þig fyrst í leikhúsi í
verkinu Penetreitor. Varstu ekki að
útskrifast úr leiklistarskólanum þá?
Vignir: „Jú, passar. Ég man líka
eftir þér frá Sirkus-árunum, þeim
skemmtilega og þokukennda tíma.
Og ég veit auðvitað að þú ert kvik-
myndagerðar- og tónlistarkona.
Svo sátum við nú saman til borðs á
Ölstofunni síðasta sunnudag ásamt
fullt af skemmtilegu fólki.“
Vera: „Ætli við séum ekki í
tengslum við sama fólkið í sömu
kreðsunum.“
Vignir: „Jú, þetta er svona mið-
bæjar- kunningsskapur. Það fylgja
ýmis vandamál því að búa í mið-
bænum, til dæmis að ákveða hvort
maður eigi að heilsa sama fólkinu í
hvert skipti sem maður hittir það,
eða bara í fyrsta sinn sem maður
hittir það þann daginn. Helsta
vandamálið eru samt túristarnir,
fólkið sem er að bjarga landinu
okkar, sem stoppar og virðir fyrir
sér Esjuna eða eitthvað slíkt sem
maður er sjálfur farinn að taka
sem sjálfsögðum hlut. Þá eru þeir
oft fyrir manni þegar maður þarf
að vera löngu kominn á barinn.“
Vera: „Já, og svo stoppa þeir oft úti
á miðri götu þegar maður er á bíl.“
Vignir: „Já. En guð blessi þá.“
Jesús yrði fínn forseti
Komandi forsetakosningar eru
mál málanna. Fylgist þið með
hræringum í þeim efnum? Og hvern
mynduð þið velja, lífs eða liðinn,
sem nýjan forseta ef þið fengjuð
frítt spil?
Vera: „Svona með öðru eyranu.“
Vignir: „Ég var mjög ánægður
þegar Þóra Arnórsdóttir sagði já og
myndi kjósa hana ef kosningarnar
væru á morgun. En þú?“
Vera: „Mér finnst að minnsta kosti
tveir af frambjóðendunum mjög
frambærilegir.“
Vignir: „Það er svo brjálæðislega
glatað að forseti lýðræðisríkis verði
sjálfkjörinn í fjórða sinn í röð, bara
vegna þess að við nennum ekki að
pæla í því hver ætti að taka við. Ég
held að þetta sé þrælsóttinn okkar
síðan í gamla daga. Við erum góð í
að sætta okkur við orðinn hlut.“
Vera: „Ég hef einmitt heyrt þessa
umræðu í heita pottinum. Að það sé
svo mikið vesen að breyta til. Það
finnst mér skrítið viðhorf, því það
er oft miklu meira mál að breyta
ekki til.“
Vignir: „Algjörlega. Væri Jesús
annars ekki fínn í þetta djobb?“
Vera: „Ef ég gæti breytt kerfinu
myndi ég líklega annað hvort leggja
niður forsetaembættið og færa
ábyrgðina yfir á forsætisráðherra
eða gera forsetaembættið valda-
meira. En eins og staðan er núna
væri kannski bara fínt að fá Kára
Stefánsson til að búa til nýja mann-
eskju úr Hófí og Jóni Páli.“
Vignir: „Já, eða Hófí og Hemma
Gunn. Við erum auðvitað börn
níunda áratugarins.“
Vera: Einmitt. Myndum spila Gleði-
bankann í öllum partíum.“
Vignir: „Bessi Bjarnason væri líka
góður kostur. Það er ómögulegt að
hafa nokkuð á móti honum.“
Vera: „Hann yrði bangsinn okkar.“
Vignir: „Eða bara að fá Kára til
að redda Vigdísi árið 1980 aftur.
Planta blómum, hengja orður á her-
foringja og byrja upp á nýtt.“
Stælalaus og viðkunnanleg
Hljómsveitinni Of Monsters and
Men gengur vel í Bandaríkjunum
og kemur meðal annars fram í vin-
sælum spjallþætti Jimmy Fallon í
maí. Ef þið væruð í beinni útsend-
ingu frammi fyrir stórum hluta
bandarísku þjóðarinnar, mynduð
þið nota tækifærið og senda henni
einhver sérstök skilaboð?
Vignir: „Maður hefur ekki komist
hjá því að heyra nokkur lög með
þessari hljómsveit en ég hef ekki
heyrt plötuna.“
Vera: „Sama hér. En það er frábært
ef það gengur vel hjá þeim.“
Vignir: „Það er samt dálítið erfitt
að greina hvað er í raun góður
árangur og hvað ekki, því ef ein-
hver Íslendingur gerir eitthvað í
útlöndum er það oftast stimplað
sem eitthvað geðveikt. Svo kemur
kannski síðar í ljós að það var ekki
jafn frábært og stóð í blaðinu. En
það er erfitt að horfa framhjá því
að 6. sæti á Billboard-listanum er
stórkostlegur árangur.“
Vera: „Já, svona fréttaflutningur er
svolítið hættulegur. Það er ekkert
mál að senda frá sér fréttatilkynn-
ingu um að fólki gangi svakalega
vel í Þýskalandi, en svo er það
kannski bara í einhverjum smábæ.
Samt er ekki verið að ljúga neinu.“
Vignir: „Einmitt. „Við erum rosa
stórir á bar í München!“ Ég man
þegar Jet Black Joe fékk samning
upp á sjö plötur í Bandaríkjunum og
mér fannst það alveg rosalegt. En
svo kom bara engin plata, eða var
það ein plata? En þetta er skemmti-
legt og margt svo fallegt við þetta
band.“
Vera: „Já, þau eru mjög viðkunnan-
leg.“
Vignir: „Já. Hann er feitur og hún
rosa sæt. Svo eru þau líka laus við
stæla.“
Vera: „Já, það er alltaf ánægjulegt.“
Vignir: „Trommarinn er reyndar
kominn með kúluhatt. Ætli hann
verði nokkuð með á næstu plötu? En
ef ég fengi færi á að senda banda-
rísku þjóðinni skilaboð myndi ég
líklega bara segja henni að leggja
frá sér gaffalinn.“
Vera: „Ég myndi bara segja ást og
friður. Verið góð hvert við annað.“
Vignir: „Er það ekki það sama og
forseti Íslands ætti að segja?
Vera: „Jú, enda hef ég alltaf sagt að
ég væri til í að verða forseti.“
Vignir: „Hvað myndirðu þá gera?“
Vera: „Nú, segja fólki að vera gott
hvert við annað. Og láta það fara í
hópfaðmlag.“
Vignir: „Eru það ekki dálitlir ein-
ræðisherratilburðir? „Faðmist!“
Vera: „Í myndinni Bananas sagði
Woody Allen að sem einræðisherra
myndi hann skipa fólki að skipta
um nærbuxur á hálftíma fresti og
klæðast þeim utan yfir fötin sín svo
það sé auðveldara að athuga. Það
yrði bara skemmtilegt að fá smá
skapandi hugsun í embættið.“
Fegurðarfatlaður Tom Cruise
Leikarinn Tom Cruise er væntan-
legur til landsins í júní til að taka
upp stórmynd og halda upp á fimm-
tugsafmæli sitt í leiðinni. Hvað
mynduð þið gefa honum í afmælis-
gjöf?
Vignir: „Hvar ætlar hann að halda
upp á afmælið?“
Vera: „Ég veit það ekki. Ég hef ekki
enn fengið boðskort.“
Vignir: „Hann hlýtur að láta grafa
fyrir veislusal í Eyjafjallajökli eða
eitthvað slíkt. Ég myndi allavega
gera það ef ég væri hann.“
Vera: „Ég man bara ekki í hvaða
myndum Tom Cruise hefur leikið
síðustu ár, nema Mission Impossible
1, 2, 3 og 4. Hvaða mynd er hann að
fara að taka upp hér?
Vignir: „Mission Impossible 18.
Tom Cruise getur alveg verið góður
leikari en hann er dálítið fegurðar-
fatlaður. Svolítill Hollywood-
stimpill á honum eins og Johnny
Depp, Brad Pitt og fleirum sem eru
frægari fyrir að vera fallegir en
það sem þeir hafa gert.“
Vera: „Lendir þú aldrei í svona
veseni? Að það verði hreinlega til
trafala hversu fallegur þú ert? Ertu
viss um að fólk taki þig alvarlega?“
Vignir: „Nei. Ég er alveg viss um
að fólk tekur mig ekki alvarlega, en
það er ekki vegna þess hversu fal-
legur ég er.“
Vera: „Það verður forvitnilegt að
sjá hversu lágvaxinn Tom Cruise
er í raun og veru.“
Vignir: „Já, hann er pínulítill.
Gefur maður honum ekki bara
buffaló- skó í afmælisgjöf?“
Vera: „Ég myndi gefa honum tíma
hjá sálfræðingi. Og buffaló-skó.“
Vignir: „Já, til að Tom geti horfst í
augu við sálfræðinginn þegar hann
gengur inn til hans.“
Mikið ferðalagasumar
Nú virðist vera farið að örla á vori.
Hafið þið skipulagt sumarið?
Vignir: „Ég fylgi sýningunni Axlar-
Birni á leiklistarhátíð í Þýskalandi
og ætla svo að ílengjast aðeins í því
fallega landi og vera í smá tíma í
Berlín. Svo ætla ég að reyna að
ljúka sumrinu á því að setja upp og
leikstýra Galdra-Lofti í nýrri leik-
gerð eftir sjálfan mig, ásamt leik-
hópnum Vér morðingjar. Sumarið
lítur vel út.
Vera: „Já, þetta verður mikið
ferðalagasumar hjá mér. Ég ætla
að skjóta stuttmynd eftir smásögu
Einars Kárasonar sem gerist á
ferðalagi um Ísland og svo ætla ég
líka að taka mér langt sumarfrí og
taka „road-trip“ yfir Bandaríkin frá
New York til Los Angeles.“
Vignir: „Ég hef aldrei komið til
Bandaríkjanna og aldrei farið í
„road-trip“. Ég er ekki með bílpróf
og get því ekki leikið í myndinni
þinni, því miður.“
Vera: „Ég hugsa að það verði mjög
heitt svo ég verð líklega að leigja
mér blæjubíl, eða að minnsta kosti
bíl með loftræstingu.“
Vignir: „Já, væri ekki dálítið glatað
að fara í svona ferðalag á Toyotu?“
Vera: „Jú, það verður eiginlega að
vera töff bíll. Reyndar væri líka
fyndið að vera á húsbíl og með der-
húfu, en ég veit nú ekki með það.“
Gleðibankinn í öllum partíum
Kvikmyndagerðar- og tónlistarkonan Vera Sölvadóttir myndi vilja fá Kára Stefánsson til að búa til nýjan forseta. Leikaranum
Vigni Rafni Valþórssyni líst illa á kúluhatt trommara Of Monsters and Men. Kjartan Guðmundsson hitti rökstólapar vikunnar.
AFMÆLISHUGLEIÐINGAR Vignir Rafn Valþórsson og Vera Sölvadóttir hafa hvorugt fengið boðskort í fimmtugsafmæli Tom Cruise, en þau gæfu honum buffaló-skó og sálfræðitíma í afmælisgjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Á RÖKSTÓLUM