Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 32

Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 32
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR32 Allt lagt undir í El clásico Risarnir á Spáni mætast í sjötta sinn á þessari leiktíð. Barcelona hefur sótt hart að Real Madrid á undanförnum vikum. Mikil stemning hjá íslenskum stuðningsmönnum beggja liða. Sigurður Elvar Þórólfsson fór yfir stöðuna með sérfræðingum Stöðvar 2 sport. E inn stærsti fótbolta- leikur ársins fer fram síðdegis í dag í Barce- lona þar sem ríkjandi Spánarmeistarar taka á móti Real Madrid í Nou Camp í Barcelona. Þessar viðureignir risanna á Spáni eru kallaðar „El clásico“ og það fer allt á hliðina hjá stuðnings- mönnum þessara félaga í að- draganda þessara leikja. Spennan er mun meiri að þessu sinni þar sem að Barcelona getur með sigri minnkað forskot Real Madrid í eitt stig – en fjórum stigum munar á liðunum. Fyrir nokkrum vikum síðan töldu flestir að úrslitin væru ráðin í Spánarsparkinu. For- skot Real Madrid á Barcelona var á þeim tíma 13 stig og fátt sem benti til þess að það myndi breytast. Katalónarnir í Barce- lona eru með tölfræðina á bak við sig ef tekið er mið af átta síðustu „El clásico“. Þar hefur Barcelona sigrað í sjö viðureignum. Hi nn spænsk- ættaði Íslendingur M i k ael M a r i nó Rivera er grjót- harður stuðnings- maður Real Madrid og fylgist vel með Spánarsparkinu. Mikael segir að áhugi Íslendinga á þessum leik hafi aukist gríðarlega á undanförnum árum. „Stuðningsmenn Real Madrid munu safnast saman á sportbarnum Úrillu G ó r i l lu n n i v i ð Gullin brú í Grafar- vogi og Barcelona stuðningsmenn á farfuglaheimilinu Reykjavík Backpackers við Laugaveg. Það má búast við miklu fjölmenni og gríðarlegri stemningu á báðum þessum stöðum. Við búumst við nokkur hundruð manns á báðum stöðum,“ sagði Mikael en hann telur að stuðningsmenn Barce- lona séu mun fleiri á Íslandi en stuðningsmenn Real Madrid. „Líklega á Eiður Smári Guð- johnsen stóran þátt í því enda eini Íslendingurinn sem hefur leikið með félaginu.“ Mikael segir að stemningin í þessum leikjum hafi breyst mikið á undanförnum misserum. „Það er mikil saga á bak við þessa leiki og þessi félög. Katalónar, sjálfstæðisbarátta, og allt það. Mér finnst hins vegar stemningin hafa breyst. Það er miklu meiri hiti og reiði í gangi. Það skýrist líklega af því að þessi lið eru einfaldlega stærstu fót- boltalið heimsins í dag,“ sagði Mikael. Leikurinn hefst kl. 18.00 í dag og verður í beinni út sendingu á Stöð 2 sport. Sært stolt eftir tapleiki í Meistara deildinni Það vekur einnig athygli að stolt beggja liða er sært eftir tapleiki í undanúrslitum Meistara deildar Evrópu. Á Spáni hefur ekki neitt annað komið til greina en að risarnir frá Spáni myndu mætast í úrslitaleiknum í München í maí. FC Bayern München frá Þýska- landi er hins vegar 2-1 yfir eftir fyrri leikinn gegn Real Madrid sem fram fór í Þýskalandi – og staða enska liðsins Chelsea er einnig góð eftir 1-0 sigur á heimavelli gegn ríkjandi Evr- ópumeistaraliði Barce lona. Sparksérfræðingar hafa velt upp þeim möguleika að þjálf- arnir José Mourinho hjá Real Madrid og Pep Guardiola hjá Barcelona muni freistast til þess að hvíla lykilmenn í „El clásico“. En við nánari skoðun þá er slíkt nánast óhugs- andi. Stolt og heiður beggja liða er í húfi og allt verður lagt undir í þessum slag eins og alltaf. Það er mjög líklegt að Portúgalinn José Mourinho muni leggja allt kapp á varnarleikinn hjá Real Madrid. Jafntefli væru góð úrslit fyrir liðið og það eru heimamenn sem þurfa að sækja stigin þrjú sem eru í boði. Mourinho hefur reynt það áður að leggja allt í varnar leikinn gegn Barcelona og það hefur aldrei gengið upp. Hann var harðlega gagnrýndur eftir 2-1 tap Real Madrid gegn Barcelona í janúar s.l. þar sem að Mourinho lagði allt kapp á varnarleikinn. Barcelona hefur alltaf fundið leið í gegnum varnarmúrinn hjá hinum litríka Mourinho. Argentínumaðurinn Lionel Messi er skæðasta vopn Barce- lona í sóknarleiknum og telja margir að hann sé besti fótbolta- maður allra tíma. Messi þarf að eiga afbragðsleik ef Barcelona ætlar sér sigur og varnarmenn Real Madrid munu án efa hafa góðar gætur á þessum magnaða 24 ára gamla leikmanni. Real Madrid er einnig með stórstjörnu í sínum röðum sem gæti gert út um leikinn; Portú galann Cristiano Ronaldo. Eins og sjá má í kortinu hér til hliðar eru þeir Lionel Messi og Cristiano Ronaldo búnir að afreka ótrúlega hluti á þessari leiktíð. Þeir standa nánast jafnt á öllum tölfræðiþáttum og sem markaskorarar. Ronaldo hefur skorað 41 mark á þessari leik- tíð í deildinni og 53 alls í öllum keppnum. Messi er einnig með 41 mark í deildinni og 63 mörk alls í öllum keppnum, sem er mesta markaskor leikmanns frá því að Þjóðverjinn Gerd Müller skoraði 67 mörk fyrir Bayern München tímabillið 1972-1973. Einnig er áhugavert að skoða þá staðreynd að Pep Guardiola hefur aðeins tapað einu sinni í 10 viðureignum gegn Real Madrid. „Messi og Ronaldo eflast í hvert sinn sem annar þeirra nær að skora. Þeir eru í sérflokki og við erum heppin að fá tækifæri til þess að sjá þessa snillinga spila fótbolta,“ sagði Guardiola við fréttamenn í gær. ■ SÉRFRÆÐINGARNIR VILJA LIONEL MESSI FREKAR EN CRISTIANO RONALDO RISARNIR Á SPÁNI MÆTAST Í EL CLÁSICO 86 Barcelona - Real Madrid Laugardaginn 21. apríl Nou Camp Ágúst Real 2-2 Barcelona Meistarakeppni Árangur í El Clásico Þjálfari Josep Guardiola Fyrirliði Carles Puyol Barcelona Real Madrid 86 Mörk 354 Mörk 365 Jafntefli 46 Þjálfari Jose Mourinho Fyrirliði Iker Casillas Viðureignir 2011-12 2,935 Stórstjörnurnar eru lykilmenn beggja liða Ágúst Barcelona 3-2 Real Meistarakeppni Des Real 1-3 Barcelona Deildarkeppni Jan Real 1-2 Barcelona Konungsbikar Jan Barca 2-2 Real Konungsbikar Guardiola: 9 sigrar í 14 „El clásico“ frá því hann tók við Barcelona 2009 Mourinho: Aðeins 1 sigur í 10 „El clásico“, 1-0 sigur í Konungsbikar 2011. El clásico Liðin hafa mæst í 218 skipti frá árinu 1902. Liðin eru jöfn í fyrsta sinn í 79 ár. Staðan í deildinni 1. Real 33 27 4 2 107:29 85 2. Barca 33 25 6 2 96:24 81 Lionel Messi Cristiano Ronaldo 41 12 55% 177 6 6 86 68 3,015 41 11 49% 225 7 11 76 78 Leikmínútur Mörk Stoðsendingar Þátttaka í mörkum Skot á mark Þrennur Mörk úr vítum Fyrirgjafir inn í vítateig Aukaspyrnur fengnar Fréttablaðið fékk knattspyrnusér- fræðinga Stöðvar 2 sport til þess að svara eftirtöldum spurningum um „El clásico“. Hvað segja sérfræðingar Stöðvar 2 sport? Reynir Leósson, Pétur Marteinsson og Hjörvar Hafliðason Guðmundur Benediktsson íþrótta-fréttamaður á Stöð 2 sport er á þeirri skoðun að José Mourinho, þjálfari Real Madrid, ætli sér að „pakka“ í vörn á Nou Camp. „José Mourinho mun leggja alla áherslu á varnarleikinn, hann er ekki vitlaus. Jafntefli eru frábær úrslit fyrir þá. Ætli við sjáum ekki svipað dæmi og þegar hann var með Inter í undanúr- slitunum gegn Barcelona þegar Inter fór í úrslitaleikinn. Ég er samt ekki viss um að það dugi til fyrir Real að þessu sinni en þeir munu svífast einskis til að fá stig. Þeir eru ekki að fara að tapa tveimur af síð- ustu fjórum leikum sínum í deildinni,“ segir Guðmundur en hann er sammála því að „El clásico“ sé alltaf að verða stærri og stærri viðburður. Síðustu ár hafa „þessir leikir orðið mun stærri en áður, enda eru þetta tvö stærstu fót- boltalið heimsins í dag. Þetta eru sterk- ustu liðin í Meistaradeildinni. Tveir flottustu þjálfarnir, tveir af bestu íþróttamönnum heims; Lionel Messi og Cristiano Ronaldo. Þessi leikur verður stórkostlegur,“ segir Guðmundur. Mourinho er ekki vitlaus og pakkar í vörn Guðmundur Benediktsson Pétur Marteinsson 1. Bæði lið töpuðu í vikunni i Meistara- deildinni en Madrid fær aukahvíldardag. Sú hvíld er dýrmæt en Barcelona er með betra lið og hafa gott tak á Real Madrid. Barcelona sigrar, 3-2, í frábærum leik. 2. Lionel Messi. Ég held að hann sé þægilegri gaur og meðfæri- legri. Þeir eru báðir stórkostlegir leikmenn en Messi er að mínu mati aðeins betri og skemmtilegri. 3. Real Madrid mun ekki tapa fleiri leikjum i deildinni og þeir verða Spánarmeistarar. Hjörvar Hafliðason 1. Barcelona vinnur leikinn. 2. Lionel Messi. Ég á engin orð til að lýsa honum lengur. 3. Ég geri ráð fyrir því að Barca minnki muninn á toppnum niður í eitt stig á laugardag. En ég held hins vegar að það stig muni ráða úrslitum og Real Madrid verður Spánar- meistari. Þeir eiga þó eftir mjög erfiðan leik gegn Athletic Bilbao á útivelli í næsta mánuði en með allt undir munu José Mourinho og félagar klára það verkefni. Reynir Leósson 1. Jafntefli, 2-2 í frábærum leik. 2. Tveir langbestu leik- menn í heiminum en Messi hefur vinninginn hjá mér. Messi er betri í stóru leikjunum, jarðbundnari og meiri liðsmaður. 3. Real Madrid klárar þetta með því að ná jöfnu í leiknum í kvöld og landa þannig titlinum. Þá er José Mourinho kominn með meistaratitil í Portúgal, Englandi, Ítalíu og Spáni. 1. Hvaða lið mun hafa betur í El clásico í kvöld? 2. Ef þú værir þjálfari og þyrftir að velja á milli þess að fá Lionel Messi eða Cristiano Ronaldo í liðið hjá þér. Hvorn myndir þú velja? 3. Hvaða lið verður Spánarmeistari 2012? STÓRSTJÖRNUR Cristiano Ronaldo Real Madrid og Lionel Messi Barcelona verða í aðalhlutverkum þegar liðin mætast í Barcelona í kvöld. Messi og Ronaldo hafa báðir skorað 41 mark í deildarkeppninni í vetur. NORDICPHOTOS/GETTY Mourinho hefur reynt það áður að leggja allt í varnarleikinn gegn Barce- lona og það hefur aldrei gengið upp.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.