Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 70
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR42
Hátt í 600 manns mættu í
Hörpu á sumardaginn fyrsta
og fögnuðu 100 ára afmæli
Verkfræðingafélags Íslands.
Þar var einstak lingum
veitt svokölluð Aldarviður-
kenning fyrir framlag sitt
og sérhæfða þekkingu á
sviði tækni og raunvísinda
til nýsköpunar og fram-
fara í íslensku atvinnulífi.
Þar með var vakin athygli
á afrekum sem hafa haft
umtalsverð áhrif á efna-
hag og lífsgæði á Íslandi
eða eru líkleg til að gera
það í framtíðinni. Meðal
annars var athyglinni beint
að þekkingar sviðum sem
fáa dreymdi um fyrir 30-40
árum að Íslendingar myndu
nokkurn tíma fást við og
síst af öllu að þeir yrðu í
fremstu röð á alþjóðavísu
eins og raunin hefur orðið í
nokkrum tilvikum.
Viðurkenningarnar voru
veittar í þremur flokkum, í
fyrsta lagi brautryðjendum í
þekkingarfyrirtækjum sem
eru alþjóðlega í fremstu röð,
í öðru lagi frum kvöðlum
innan sprotafyrirtækja og
í þriðja lagi einstaklingum
sem hafa plægt akurinn
með störfum sínum, sýnt
frumkvæði og haft veruleg
áhrif. - gun
Aldarafmæli fagnað í Hörpu
VERÐLAUNAFÓLK Þessi hópur hlaut viðurkenningar fyrir framlag sitt til
sprotafyrirtækja sem hafa náð fótfestu á markaði.
Árlegur fjölskyldudagur í
Gróttu á Seltjarnarnesi er
í dag og hægt að komast
þangað fótgangandi. Opið
verður milli klukkan 10.30
og 14.30. Vitinn sem nú
stendur þar er 65 ára í ár og
því þykir full ástæða til að
faðma hann.
Í Albertsbúð verður helgi-
stund í umsjá sr. Bjarna Þórs
Bjarnasonar og félaga milli
11.00 og 11.30 og klukkan
12 segir Kristján Sveinsson
sagnfræðingur sögu Gróttu-
vitans. Í Fræða setrinu
verður hægt að kaupa kaffi,
safa og rjómavöfflur.
Starfsmenn Seltjarnarnes-
bæjar verða á staðnum og
aka þeim sem ekki treysta
sér til að ganga út í eyju.
- gun
Föðmum
vitann
GRÓTTUVITI Sextíu og fimm ára
afmælisbarn.
Sr. Hjálmar Jónsson, fyrr-
verandi alþingis maður,
talar um Biblíuna og
stjórnmálin í Seltjarnar-
neskirkju á morgun, sunnu-
dag, klukkan 17. Erindi séra
Hjálmars er liður í Lista-
hátíð Seltjarnarneskirkju.
Sólveig Pálsdóttir leik-
kona mun við sama tæki-
færi lesa upp nokkur ljóð
eftir stjórnmálamennina
og skáldin Grím Thomsen
og Hannes Hafstein. Tónlist
flytja þær Agnes Amalía
Kristjónsdóttir sópran
og Jóhanna Héðinsdóttir
messó sópran við píanóleik
Renötu Ivan. Séra Hjálm-
ar Jónsson var prestur og
síðar pró fastur norðanlands
1976 til 1998. Þá hafði hann
verið varaþingmaður frá
1991 og kjörinn á Alþingi
1995. Hann kaus að snúa
sér aftur að prestskap árið
2001 og varð þá dómkirkju-
prestur í Reykjavík. Því
starfi hefur hann nú gegnt
í rúman áratug.
Listahátíð Seltjarnar-
neskirkju hófst um síðustu
helgi og stendur til 28. apríl
en því er nú fagnað að 20 ár
eru liðin síðan fyrsta hátíð-
in var haldin.
Ókeypis er á alla viðburði
Listahátíðar Seltjarnar-
ness. Hátíðin fer fram í
kirkjunni við Valhúsahæð.
Í kirkjunni og safnaðar-
heimili hennar stendur
einnig yfir sýning á mynd-
list Karólínu Lárusdóttur,
þar á meðal nýjum vatns-
litamyndum sem bregða
upp svipmyndum úr Nýja
testamentinu.
Ræðir Biblíuna og stjórnmálin
SÉRA HJÁLMAR JÓNSSON Hefur langa reynslu af prestskap og þátttöku í stjórnmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur dýrmæta samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför okkar elskulegu
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
LÁRU ÁGÚSTSDÓTTUR
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við yndislegu
starfsfólki lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akraness fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Hafsteinn Sigurbjörnsson
Jóhanna G. Þorbjörnsdóttir Ásgrímur R. Kárason
Sigurbjörn Hafsteinsson Sesselja L. Allansdóttir
Ingólfur Hafsteinsson Heiðrún Hannesdóttir
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir Jónas Geirsson
Berent Karl Hafsteinsson María Lilja M. Viðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
ÖNNU MÖRTU HELGADÓTTUR
frá Uppsölum,
sérstakar þakkir til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Blönduóss
fyrir einstaka alúð og umönnun.
Sigurður H. Ingþórsson Gunnhildur Lárusdóttir
Kristmundur Ó. J. Ingþórsson Herdís Sigurbjartsdóttir
Sigrún B. Ingþórsdóttir Hjálmar Magnússon
Þorsteinn R. Ingþórsson Sigurbjörg M. Jónsdóttir
Magnús H. Ingþórsson Margrét Rögnvaldsdóttir
Guðmundur E. Ingþórsson Guðrún S. Kjartansdóttir
Birgir L. Ingþórsson Sigríður Bjarnadóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
EDDU FARESTVEIT
Lautasmára 3, Kópavogi.
Gunnsteinn Gíslason
Guðrún Brynja Gunnsteinsdóttir
Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir Davíð Jónsson
Gísli Kristján Gunnsteinsson Lilja Ingimundardóttir
barnabörn og systkini hinnar látnu.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GÍSLLAUG BERGMANN
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 12. apríl.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 23. apríl kl. 13.00.
Dagbjört Bergmann Hjálmar Þ. Diego
Pétur Bergmann
Róbert Bergmann
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg tengdamóðir og amma,
SIGURLAUG BJÖRG
ALBERTSDÓTTIR
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn
17. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 25. apríl kl. 13.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð
Eirar.
Gréta Gunnarsdóttir
Birna Bjarnadóttir Hólmgeir Baldursson
Kristjana Sif Bjarnadóttir Steingrímur S. Ólafsson
Arnar Bjarnason Rakel Halldórsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
VALTÝS SÆMUNDSSONAR
grunnskólakennara
frá Reyðarfirði.
Sæmundur Valtýsson
Guðlaugur Valtýsson Sigríður Björnsdóttir
Anna Marta Valtýsdóttir Árni Ólafur Þórhallsson
Brynja Þóra Valtýsdóttir Grétar I. Guðlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, dóttir og systir,
INGIBJÖRG RAGNARSDÓTTIR
NORDEIDE
Lauvasveien 18, 3475 Sætre,
Hurum, Norge
lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn
9. apríl síðastliðinn.
Kveðjuathöfn hefur farið fram í kyrrþey.
Útför hennar fer fram frá Hurumkirkju í Noregi
föstudaginn 27. apríl kl. 13.00.
Arne Nordeide
Jorunn Nordeide
Sigrid Nordeide
Ragnar Nordeide Susanne Juell Gudbrandsen
Magnus Juell Nordeide
Sigríður Einarsdóttir
Kristín Ragnarsdóttir
Þórunn Ragnarsdóttir Snorri Egilson
Málfríður Ragnarsdóttir
Einar Ragnarsson Claudia Gluck
Guðmundur Ragnarsson Þóra Friðriksdóttir
Við þökkum ættingjum og vinum fyrir
samúð og hlýhug vegna andláts
KRISTJÁNS HELGA
GUÐMUNDSSONAR
Minna-Núpi.
Gleðilegt sumar.
Ámundi Kristjánsson
Herdís Kristjánsdóttir
Guðbjörg Ámundadóttir
Snorri og fjölskylda
Erla og fjölskylda
Guðrún og fjölskylda
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Kollafjarðarnesi, síðar Stórholti,
sem lést fimmtudaginn 12. apríl, verður
jarðsungin mánudaginn 23. apríl. Útförin fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 13.00.
Guðmundur Theódórs Þrúður Karlsdóttir
Elinborg Theódórs Bjarni Jensson
Benedikta Theódórs Ólafur Gunnlaugsson
Jón Brands Theódórs Kristjana Benediktsdóttir
Páll Theódórs Hrafnhildur Árnadóttir