Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 77
LAUGARDAGUR 21. apríl 2012 49
Poppdrottningin Madonna segir að
sér hafi brugðið er hún sá myndir
af 15 ára dóttur sinni reykja sígar-
ettu með vinum sínum í New York.
Aldurtaksmarkið fyrir sígarettur
eru 18 ár í Bandaríkjunum og
viðurkennir Madonna að hún
verði að vera strangari í móður-
hlutverkinu. „Ég varð ekki glöð
þegar ég sá myndirnar. Ég er ekki
jafn ströng og ég ætti að vera, svo
ég þarf að verða harðari. Ég hef
enga þolinmæði fyrir reykingum,“
segir Madonna í viðtali við Today
Entertainment.
Madonna á fjögur börn og viður-
kennir að það sé oft og tíðum erfitt
að vera einstæð móðir. „Að vinna
eins mikið og ég geri og vera ein-
stæð móðir í þokkabót getur verið
taugastrekkjandi. Hingað til hef
ég haldið í geðheilsuna með því
hafa húmorinn í lagi.“
Vill verða strangari móðir
EKKI SÁTT MEÐ LOURDES Madonna var
ekki sátt er hún sá myndir af 15 ára
dóttir sinni, Lourdes, reykja á almanna-
færi. NORDICPHOTOS/GETTY
Fréttir um að Guns N‘ Roses
rokkarinn Axl Rose væri látinn
komust á flug nú fyrr í vikunni.
Sögurnar fóru um samskipta-
vefinn Twitter á ógnarhraða en
þær áttu sér víst enga stoð í raun-
veruleikanum því rokkarinn er
enn sprelllifandi. Hann virðist
einnig vera í afar góðum gír, því
nýlega fór af stað orðrómur um
meint ástarsamband hins fimm-
tuga Rose við hina 26 ára gömlu
söngkonu Lönu Del Rey.
Rose lifir
EKKI DÁINN Orðrómur komst á kreik á
Twitter um að Axl Rose væri dáinn. Það
reyndist ekki satt.
Leikarinn Zac Efron segir að
það hafi verið óþægilegt að
horfa á myndina The Lucky One
með móður sinni. Í myndinni er
þónokkrar djarfar senur með
Efron og leikkonunni Taylor
Schilling. „Mamma sat fyrir
framan mig í bíóinu og ég sökk
niður í sætið í hvert skipti sem
ég fækkaði fötum í myndinni því
ég skammaðist mín svo mikið,“
segir Efron í samtali við People
eftir forsýningu myndarinnar.
Móðir hans, Starla, var hins
vegar ánægð með frammistöðu
sonar síns. „Hún hló bara að
þessu og var stolt af mér þó að
það hafi verið skrýtið fyrir hana
að horfa á þetta.“
Óþægilegt
að horfa með
mömmu
SKAMMAÐIST SÍN Zac Efron var ekki
skemmt er hann horfði á myndina The
Lucky One með móður sinni en hann
leikur í nokkrum djörfum senum í
myndinni. NORDOCPHOTOS/GETTY
Hljómsveitin The Red Hot Chili Peppers var
nýlega tekin inn í hina virtu Rock and Roll
Hall of Fame. Í tilefni þess hafa liðsmenn
sveitarinnar nú ákveðið að gefa út nýja sex
laga EP plötu sem þeir kalla We Salute You.
Á plötunni ætla þeir að heiðra aðra meðlimi
frægðarhallarinnar og syngja þar gamla slag-
ara með nokkrum vel völdum einstaklingum
þaðan. Fyrir valinu urðu lögin Havana Affair
með The Ramones, Suffragette City með
David Bowie, I Get Around með The Beach
Boys, Everybody Knows This Is Nowhere með
Neil Young, Search & Destroy með Iggy & the
Stooges og A Teenager In Love með Dion and
the Belmonts.
Platan er væntanleg í sölu þann 1. maí
næstkomandi.
EP heiðursplata á leiðinni
EP PLATA Fjórmenningarnir í The Red Hot Chili Peppers gefa út EP plötu
með lögum annarra meðlima frægðarhallar rokksins.