Fréttablaðið - 21.04.2012, Side 82
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR54
lifsstill@frettabladid.is
Kortið gildir í líkamsrækt, spinning og sund í
Sundlaug Kópavogs og líkamsrækt og sund í Salalaug.
Sundlaug Kópavogs / sími 570 0470
Íþróttamiðstöð Versalir / sími 570 0480
www.acticgym.is
FRÍR
PRU
FUTÍ
MI UN
DIR
LEIÐ
SÖGN
ÞJÁL
FARA
Hring
ja þa
rf og
pant
a tím
a
TILBOÐ GILDIR AÐEINS HELGINA 20.-22. APRÍL 2012
Vaxta
lausa
r Visa
/Euro
-léttg
reiðs
lur í b
oðiÍ LÍKA
MSRÆ
KT O
G SU
ND
Á SU
MAR
TILBO
ÐI 19
.990
KR.½ÁRS
KORT
Aðalfundur Sjálfsbjargar félags fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu, verður haldinn laugar-
daginn 28. apríl 2012 kl. 14.00 í félagsheimili
Sjálfsbjargar, Hátúni 12.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Þeir félagsmenn einir hafa kosningarétt sem
hafa greitt félagsgjaldið fyrir árið 2011.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórnin
Aðalfundur
Rauðvín fyrirbyggir fitu
54
HEILSA Rauðvíns-
drykkja á að fyrir-
byggja aukakílóin ef
marka má nýja rann-
sókn bandarískra
vísinda manna við
Purdue háskólann. Það
er efnið piceatannol,
sem finna má í rauð-
víni, sem kemur í veg
fyrir að ungu fitu-
frumurnar fjölga sér.
Rannsóknin er líklega
gleðifregnir fyrir
þá sem héldu að allt
áfengi væri fitandi.
Efnið hefur einnig
sýnt sig hafa jákvæð
áhrif á sjúkdóma á
borð við hjarta- og
taugasjúkdóma sem og
krabbamein. Efnið er
einnig að finna í vín-
berjum og bláberjum.
Eskimo/Next-fyrirsætukeppnin fór fram í Hörpu á síðasta
degi vetrar. Tíu stúlkur tóku þátt í keppninni og var það
Gyða Katrín Guðnadóttir sem fór með sigur af hólmi.
Stúlkurnar sýndu meðal annars föt frá Helicopter, Ýri, Zisku, Sævari,
Kronkron Rey og Spaksmannsspjörum og þóttu allar standa sig með
prýði. Sigurvegari kvöldsins var Gyða Katrín Guðnadóttir, í öðru sæti
var Ólöf Ragna Árnadóttir og þriðja sætið hreppti Bríet Ólína Kristins-
dóttir.
NEXT-STÚLKAN
VALIN Í HÖRPUNNI
SKRAUTLEG Stílistinn Þorsteinn Blær var
að venju skrautlegur í klæðaburði. Hér
sést hann með Arndísi Halldórsdóttur.
BROSMILD OG KÁT Fyrirsætan og læknaneminn Elmar Johnson sést hér ásamt Charlotte Borba og tónlistarmanninum Hrafnkeli
Flóka Kaktusi Einarssyni.
STYÐJA DÓTTUR SÍNA Leikaraparið Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir og Stefán Karl Stefánsson mættu til að sýna
dóttur sinni stuðning. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
ÁNÆGÐAR Vinkonurnar Sunneva Sverrisdóttir, Diljá Anna
Júlíusdóttir og María Þórisdóttir voru á meðal gesta.
SKEMMTILEG HÖNNUN Fyrirsæta sýnir kjól úr smiðju Sævars
Markúsar.
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
KYNLÍF Ágætis dæmi um mikilvægi
kynfræðslu á hinum ýmsu þroska-
stigum er kynlíf eftir barneignir.
Sexí tími fer oft illa saman við for-
eldrahlutverkið. Fyrir utan það að
tími sé af skornum skammti þá
virðist hugarfarsbreyting eiga sér
stað þar sem kynverunni er skipt út
fyrir foreldri með slef á öxl, hor í
hárinu og gula gúmmíhanska.
Nýbakaðir foreldrar greina oft
frá því að nú séu aðrar áherslur í
lífinu og tími doppóttra blúndu-
nærpjatlna sé geymdur og gott ef
ekki gleymdur. Mömmur og pabbar
stunda hljóðlátt kynlíf í myrkvuðu
herbergi, kirfilega varin af
sænginni svo ekki bíði barnið var-
anlega skaða ef það slysaðist til að
sjá í beran foreldrabossa dinglast
upp og niður. Nú ertu nefnilega
settlegur og fullorðinn og fullorðið
fólk stundar bara eins konar kynlíf.
Það eyðir sko ekki tíma í að sjúga
og sleikja.
Til að bæta úr þessu er for-
eldrum oft ráðlagt að skipuleggja
kynlífið og vissulega er það mikil-
vægt. Dagur barnsins skiptist í
stuttar skorpur af áti, svefni og leik
og þarna einhver staðar þarftu að
troða inn kynlífi. Þú gætir gert það
á meðan barnið sefur eða ætlaðirðu
að nota þann tíma í að vaska upp?
Eða setja í vél? Eða leyfa þér að
setjast niður og kíkja í tölvuna? Í
þessum eina heilaga „barnlausa“
tíma lendir kynlíf mjög aftarlega
á lista, ef það á annað borð kemst
inn á listann.
Kynlíf krefst nefnilega „nennu“.
Þú þarft að leggja frá þér tölvuna,
nenna að afklæðast, gefa þig á
vald kynferðislegra hugsana og
puða smá. Þetta er alveg heil-
mikil „nenna“. Það er auð veldara
að geyma þetta þangað til seinna.
Kynlíf fer ekki neitt, er það
nokkuð? Barn setur gríðarlegt álag
á sambandið og staðreyndin er sú
að kynlíf er oft límið sem heldur
sambandinu saman þegar það er
að kikna undan svefnlausu vælandi
álagi. Foreldrar þurfa báðir að taka
sig taki og nenna. Þeir þurfa að
nenna að byggja upp daglega kyn-
ferðislega spennu með hrósi, kjassi
og kossum.
Þeir þurfa einnig að muna að
þeir búa ekki í IKEA-sýningar-
rými, svo leggið frá ykkur barna-
dótið og náið í fullorðinsdótið.
Draslið má alveg liggja á gólfinu
næstu tuttugu mínúturnar eða svo.
Það eru ekki stellingarnar eða fjöl-
breytnin sem skiptir höfuðmáli,
heldur er það endurvakning pars-
ins sem kyn verur og að þau sinni
ástinni af sama ákafa og þau skipta
um bleyjur.
Að nenna að stunda kynlíf
90 KALÓRÍUR fjúka ef heimilið er ryksugað í 30 mínútur samkvæmt rannsóknar-mönnum við Indiana háskóla en rannsóknin sýnir að þeir sem eru með hreint heimili eru í betra formi en þeir sem nenna ekki að þrífa heimilið.