Fréttablaðið - 21.04.2012, Page 87
LAUGARDAGUR 21. apríl 2012 59
Justin Bieber reiddi á dögunum
fram um tvær og hálfa milljón
fyrir nýtt mótorhjól. Hjólið var
framleitt í takmörkuðu upp-
lagi og er af gerðinni Ducati.
Það var vinur hans, söngvarinn
Usher, sem mælti með hjólinu
við hann en Usher á sjálfur sams
konar hjól. Hinn átján ára Bieber
stendur þó frammi fyrir einu
vandamáli því hann er ekki með
mótorhjólapróf en mun vafalítið
bæta úr því fljótlega. Popparinn
á einnig margar glæsibifreiðir
og ætti því að geta komist leiðar
sinnar á næstu árum án nokkurra
vandkvæða.
Keypti sér
mótorhjól
JUSTIN BIEBER Popparinn keypti sér
glænýtt mótorhjól.
Svo virðist sem alvara sé að
færast í leikinn hjá skötuhjúunum
Ryan Reynolds og Blake Lively.
Þrátt fyrir ellefu ára aldurs-
mun er parið ástfangið upp
fyrir haus og í leit að sameigin-
legu heimili ef marka má orð
heimildar manns. Reynolds hefur
varið mestum tíma sínum á
heimili Lively eftir að hann setti
húsið sitt í Los Angeles á sölu í
febrúar, en því húsi deildi hann
með fyrrum eiginkonu sinni
Scarlett Johansson.
Það virðist því sem að ástin
ætli að endast eitthvað lengur hjá
parinu fallega sem er nú búið að
vera saman í sex mánuði.
Leita að húsi
6 MÁNUÐIR Þau Reynolds og Lively eru
búin að vera saman í sex mánuði og
leita sér nú að húsi.
Robert Downey Jr. hefur saknað
nýfædds sonar síns mikið á
meðan hann hefur verið að kynna
hasarmyndina The Avengers.
Þar leikur hann Iron Man eins og
hann hefur áður gert í tveimur
myndum.
Tveir mánuðir eru síðan hann
eignaðist soninn Exton Elias
með konu sinni Susan Levin.
„Mér finnst frábært að vera
orðinn pabbi aftur. Exton er mjög
fallegur og ég sakna hans mikið,“
sagði hinn 47 ára Downey. Hann
á fyrir átján ára soninn Indio
með fyrrum eiginkonu sinni
Deborah Falconer.
Saknar sonar
síns mikið
SÖKNUÐUR Robert Downey Jr. saknar
nýfædds sonar síns mikið.
Rapparinn og upptöku stjórinn
Dr. Dre er afar stoltur af því
að hafa ásamt Snoop Dogg látið
heilmynd af hinum sáluga Tupac
Shakur stíga á svið á Coachella-
hátíðinni. Hann vonast til að
aðrir fylgi fordæmi þeirra
og vekji goðsagnir á borð við
Marvin Gaye og Jimi Hendrix
aftur til lífsins. „ Vonandi eiga
aðrir listamenn eftir að koma
sínum uppáhaldstónlistar-
mönnum upp á svið. Vonandi
getum við séð Jimi Hendrix og
Marvin Gaye. Við sjáum hvað
setur,“ sagði Dre og útilokar
ekki að fara með Tupac-heil-
myndina á tónleikaferðalag.
Vill Hendrix og Gaye líka
JIMI HENDRIX Dr. Dre vonast til að Jimi Hendrix
snúi aftur sem heilmynd.