Fréttablaðið - 23.04.2012, Síða 8
23. apríl 2012 MÁNUDAGUR8
Alþingi gaf út ákæru
í sex liðum á hendur
Geir H. Haarde.
Landsdómur féllst
á kröfu Geirs um að
tveimur ákæruliðum
yrði vísað frá dómi.
Eftir stóðu því fjórir
ákæruliðir sem snúast
um meinta vanrækslu
Geirs á tímabilinu
frá febrúar til byrjun
október 2008.
■ Geir var í fyrsta lagi
ákærður fyrir að
hafa vanrækt að
gæta þess að störf
samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika væri markvisst og
skilaði tilætluðum árangri.
■ Í öðru lagi er hann í ákæru sakaður um að hafa vanrækt að hafa frum-
kvæði að virkum aðgerðum stjórnvalda til að draga úr stærð banka-
kerfisins, til að mynda með því að stuðla að því að bankarnir minnkuðu
efnahagsreikning sinn eða einhverjir þeirra flyttu höfuðstöðvar sínar úr
landi.
■ Þriðji ákæruliðurinn snýst um Icesave-reikningana. Þar er Geir ákærður
fyrir að hafa ekki fylgt því eftir og fullvissað sig um að unnið væri með
virkum hætti að flutningi reikninganna úr útibúi Landsbankans í Bretlandi
í þarlent dótturfélag bankans. Það hefði fært ábyrgð á reikningunum á
herðar breskra stjórnvalda.
■ Í fjórða og síðasta ákæruliðnum er Geir sakaður um að hafa látið hjá líða
að halda ráðherrafundi um mikilvæg málefni. Í ákærunni segir að hann
hafi látið hjá líða að funda með ráðherrum um aðsteðjandi háska vegna
fjármálakrísunnar.
*M.v. vaxtatöflu Íslandsbanka 13.04 2012
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Íslandsbanki býður hagstæð framkvæmdalán
til endurbóta á húsnæði. Lánin eru óverðtryggð
skuldabréfalán með breytilegum vaxtakjörum
samkvæmt vaxtatöflu bankans hverju sinni.
Framkvæmdalán geta numið allt að 1,5 milljónum
gegn veði og allt að 750.000 kr. án veðs.
Kynntu þér framkvæmdalán á
www.islandsbanki.is eða í næsta útibúi
Íslandsbanka.
Stjórnvöld hafa framlengt átakið ALLIR VINNA
til 1. janúar 2013
Þú getur fengið endurgreiðslu á virðisaukaskatti
fyrir framkvæmdir á árinu 2012.
Kynntu þér málið á www.allirvinna.is.
6,25% óverðtryggðir vextir*
og engin lántökugjöld
Við bjóðum
framkvæmdalán
1. Hvað óttast heilbrigðisyfirvöld
að hreindýr geti borið með sér milli
landshluta?
2. Hvað hefur Ólafur Ragnar
Grímsson náðað marga fanga í
forsetatíð sinni?
3. Hvar var keppt í Formúlu 1
kappakstri um helgina?
SVÖRIN
FRÉTTASKÝRING
Hvenær kemur í ljós á hvorn veginn
dómur Landsdóms fellur?
Landsdómur kemur saman í dag,
væntanlega í síðasta skipti í lang-
an tíma. Kveðinn verður upp
dómur yfir Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, sem
ákærður var af Alþingi fyrir það
sem hann gerði, eða gerði ekki í
aðdraganda bankahrunsins haust-
ið 2008.
Dómur yfir Geir verður kveð-
inn upp í dag klukkan 14 í Þjóð-
menningarhúsinu. Báðar sjón-
varpsstöðvarnar munu sýna beint
frá uppkvaðningu dómsins og má
búast við að fjölmargir muni fylgj-
ast með þegar dómur fellur.
Geir hefur haldið fram sakleysi
sínu og í dag kemur í ljós hvort
Landsdómur tekur undir hans rök
eða undir rök saksóknara Alþing-
is.
Hámarksrefsing við brotun-
um sem Geir er sakaður um er
tveggja ára fangelsi. Sigríður
Friðjónsdóttir, saksóknari Alþing-
is, fór þó ekki fram á svo þunga
refsingu við aðalmeðferð málsins,
og taldi eðlilegt að skilorðsbinda
refsingu verði Geir fundinn sekur.
Tveggja vikna aðalmeðferð
fyrir dóminum hófst 5. mars síð-
astliðinn. Geir gaf sjálfur skýrslu
fyrir dóminum, og í kjölfarið
fylgdu nokkrir af ráðherrunum
sem sátu með honum í ríkisstjórn
þegar bankarnir féllu. Bankastjór-
ar föllnu bankanna báru einnig
vitni fyrir dóminum, auk margra
núverandi og fyrrverandi starfs-
manna Fjármálaeftirlitsins og
Seðlabankans.
Framburður vitna í málinu var í
ýmsar áttir, en flest áttu það sam-
eiginlegt að telja að einhver annar
en þau sjálf hefðu átt að bregðast
við yfirvofandi hættu á fjármála-
kreppu í aðdraganda hrunsins.
Mörg vitnanna voru þó sammála
um að það hafi verið lítið sem Geir
hefði getað gert á síðustu mánuð-
unum fyrir hrun til að afstýra
hruninu eða draga verulega úr
tjóninu sem af því hlaust.
Vitnaleiðslurnar eru þó aðeins
hluti af því sem ákæruvaldið og
verjandi Geirs byggja sinn mála-
tilbúnað á. Bæði saksóknari og
verjandi hafa auk þess lagt fram
ógrynni gagna sem Landsdómur
hefur nú legið yfir frá því aðal-
meðferðinni lauk þann 16. mars
síðastliðinn. brjann@frettabladid.is
Landsdómur sker í dag úr
um sekt eða sakleysi Geirs
Landsdómur kveður í dag upp dóm yfir Geir H. Haarde. Verði hann sakfelldur er hámarksrefsing við brotunum
sem hann er sakaður um tveggja ára fangelsi. Saksóknari telur eðlilegt að skilorðsbinda mögulega refsingu.
Fjórir ákæruliðir gegn Geir standa eftir
HAGTÖLUR Gistinætur voru rúmar
3,2 milljónir hér á landi árið 2011
og fjölgaði um 8,3 prósent frá
fyrra ári, að því er fram kemur í
Gistináttaskýrslum 2011 hjá Hag-
stofu Íslands.
Erlendir ríkisborgarar standa
undir þremur fjórðu af heildar-
fjölda gistinátta og fjölgaði um 14
prósent milli ára. „Gistinóttum
Íslendinga fækkaði hins vegar
um 6 prósent,“ segir í frétt Hag-
stofunnar. „Eins og mörg undan-
farin ár gistu Þjóðverjar hér
flestar nætur, þá Bretar og svo
Bandaríkjamenn.“
Horft er til allrar seldrar gisti-
þjónustu utan orlofshúsa félaga-
samtaka, stéttar- og starfs-
mannafélaga. - óká
Heildarfjölgun er 8,3 prósent:
Gistinóttum Ís-
lendinga fækk-
aði á síðasta ári
1. Sauðfjársjúkdóma. 2. Fjörutíu og fimm.
3. Í Barein.
VEISTU SVARIÐ?
ákæruliðir voru í upp-
haflegri ákæru Alþingis
á hendur Geir H. Ha-
arde, fyrrum forsætisráðherra.
Tveimur var vísað frá dómi.
ÁKÆRA Á HENDUR GEIR H. HAARDE
6