Fréttablaðið - 23.04.2012, Side 13
MÁNUDAGUR 23. apríl 2012 13
Formaður samtaka afskrifta-framleiðenda segir að verði
kvótafrumvarp ríkisstjórnar-
innar að veruleika í núverandi
mynd muni rigna blóði af himn-
um og engisprettufaraldur eyða
landinu. Framkvæmdastjóri
Aflandseyjavinnslunnar segir
dökkar horfur framundan ef
kvótafrumvarp ríkisstjórnar-
innar verður samþykkt óbreytt;
hann segist sjá dýr stíga upp af
hafinu, það hafi tíu horn og sjö
höfuð …
Fréttatímarnir hjá RÚV og
Stöð 2 eru að verða eins og
Opinberunarbók Jóhannesar.
Þar birtist á hverjum degi í við-
tali nýr spámaður með æði í
augum og opnar nýtt innsigli
með nýjum plágum, sem hann
segist sjá.
Birtingarmynd frekjunnar
Orðbragðið er ofboðslegt.
Breytingum á kvótakerfinu
er líkt við versta hrylling 20.
aldarinnar: Helförina, Gúlagið
… Þegar Friðrik J. Arngríms-
son fær ekki sitt fram undan-
bragðalaust er honum svo
brugðið að hann líkir því við
ofsóknir nasista á hendur gyð-
ingum. Svona fer fyrir þeim
sem alltaf fá allt. Svona leikur
frekjan mennina.
Þetta er nýjasta útgerðin og
sú umsvifamesta til þessa:
Barlómur RE – mannskapurinn
um borð eru kunnar aflaklær
við mótun almenningsálits,
almannatenglar, bankamenn,
endurskoðendur, stjórnmála-
menn, hagfræðingar, lögmenn
og allir ráðnir upp á hlut – gerð-
ur út til að hindra með öllum
ráðum að gerðar verði nokkrar
breytingar á því fyrirkomulagi
sem reynst hefur svo afdrifa-
ríkt fyrir íslenskt samfélag
og mótað það meira en annað.
Með kvótakerfinu fylltist allt af
peningum sem voru ekki til, frá
mönnum sem höfðu aflað þeirra
með því að selja það sem þeir
áttu ekki: óveiddan fisk.
Undirstaða efnahagsundursins
Og þeir sem fjárfest höfðu í
áformum um að veiða fisk –
kvóta – flýttu sér að breyta
þeim áformum í verðmæti,
með því að veðsetja kvótann, fá
peninga í hendur og kaupa sér
hús í vesturbænum í Reykjavík,
brjóta niður hús í vesturbæn-
um í Reykjavík, kaupa bílaum-
boð, enskt fótboltalið, þyrlu,
bara eitthvað nógu fáránlegt til
að tjá rótgróna fyrirlitningu á
þessum auði… Menn sem við
höfum horft upp á spreðandi í
kringum sig stórkostlegum fjár-
hæðum koma nú hver af öðrum
fram blásvartir í fram af heift
og segjast ekki vera aflögu
færir með að greiða gjald til
samfélagsins af auðlind sem á
þó að heita í eigu þjóðarinnar.
Þetta var mjög þróað. Höf-
undar þessa kerfis fóru um
heiminn og hældust um af því
að kvótakerfið væri undirstaða
hins íslenska efnahagsundurs –
sem reyndist svo efnahagsvið-
undur. Þessi velmegun var öll
óveidd, byggð á væntingum og
áformum –blásin út, rétt eins
og verðið fyrir aðganginn að
hinum óveidda fiski.
Með öðrum orðum: ekki til.
Glópagull. Hins vegar urðu til
menn sem héldu að helsta hlut-
verk athafnamanna í samfé-
laginu væri að græða peninga
til að græða peninga – og þeir
allra gáfuðustu fundu upp þá
aðferð að tapa peningum til
að græða peninga. En sá sem
græðir endalaust peninga
græðir ekkert á því – nema pen-
inga.
Þeir klikkuðu
Samtök atvinnulífsins héldu
vakningarsamkomu um daginn
þar sem einhver hafði fundið
upp á því að bera núverandi
gjaldeyrishöft saman við bjór-
bannið um árið. Það vitnar um
athyglisverð hugrenningar-
tengsl. Við afnám ýmissa hafta
og óheft flæði fjármagns milli
landa má nefnilega segja að
íslenskir fjármálaspekúlantar
hafi einmitt dottið í það; vandi
þjóðarinnar er ekki síst til kom-
inn af „ofneyslu“ þessara aðila
á erlendum gjaldeyri. Erlendar
skuldir þjóðarinnar urðu glóru-
lausar og vitnuðu um einhvers
konar æði – ekki ölæði og úr
urðu ekki auðævi heldur var
þetta allt einhvers konar auð-
æði. Og nú eru þeir hjá SA sýni-
lega orðnir þurrbrjósta.
En þeir klikkuðu. Íslenskir
kapítalistar réðu ekki við kapít-
alismann. Þeir stóðu ekki undir
því að búa við viðskiptafrelsi.
Þeir fyrirgerðu rétti sínum til
þess að ná eyrum okkar með sín
úrræði. Því miður. Við höfum
fengið nóg af auðæðistilburð-
um þeirra. Og því höfum við
nú ríkisstjórn sem leitast við
að reisa íslenskt samfélag úr
þeim rústum sem þeir skildu
eftir sig. Eflaust gerir sú ríkis-
stjórn eitt og annað af veikum
mætti enda nýtur hún ekki einu
sinni trausts innan eigin raða.
En þetta er ríkisstjórn sem við
getum gagnrýnt án þess að eiga
á hættu atvinnumissi. Það er
nokkurs vert.
Sjálfstæðismenn tala eins
og það jafngildi vist í Gúlag-
inu að fá ekki lengur að græða
peninga á hvaða hátt sem er.
Allt í einu getur maður ekki
rekið skóla og greitt sjálfum
sér milljóna-arð þegar ríkið
stendur undir kennaralaunum
og skólagjöld eru himinhá. Allt
í einu getur maður ekki fegrað
afkomu fyrirtækja í ársreikn-
ingum með fulltingi endurskoð-
unarfyrirtækja með virðu-
leg útlensk nöfn. Allt í einu
getur maður ekki stungið arði
undan í eignarhaldsfélögum í
erlendum skattaskjólum. Það er
ekki kommúnismi. Það er ekki
alræði og ekki óþolandi skerð-
ing á frelsi einstaklingsins. Það
er einfaldega verið að reyna að
koma á siðuðu samfélagi.
Kannski hætta einhverjir
útgerðarmenn í fússi og fara
með allt sitt heim til Tortóla.
Jæja. En fiskurinn óveiddi í
sjónum: hann fer ekki með
þeim. Hann verður hér áfram
og vonandi undirstaða fyrir
gróandi þjóðlíf.
AF NETINU
Og Muamba þakkar...
„Það er ánægjulegt að heyra hversu vel leikmanni enska liðsins Bolton gengur að ná heilsu aftur. Hann fékk hjartaáfall
í miðjum leik við Tottenham fyrir nokkru. Fullt af fólk rauk til og lagði alla sína kunnáttu og tækni í að halda í honum
lífinu og koma honum á sjúkrahús þar sem hann fékk aðstoð færustu lækna.
Ég veit ekki hversu margir komu að því að bjarga lífi hans, bara á vellinum var talsverður fjöldi.
En hverjum þakkar kappinn? Þeim læknum og sjúkraliðum sem héldu í honum lífinu. Nei, hann þakkar guði.”
blog.eyjan.is/valgardur/
Valgarður Guðjónsson
Eðlilegt kannski að komast aftur í tísku
„Ég horfði á fyrsta þáttinn af sjónvarpsþættinum Girls, sem hefur verið lýst sem “Sex in the city – the next generation”.
Þetta er ágætis stöff og frábærast að fólkið í þættinum er ekki fótósjoppað og alveg með hold utan á sér og svona.
Eðlilegt. Ekki skinkað. Þetta gefur smá von um að eðlilegt sé að verða inn.”
http://drgunni.wordpress.com/
Gunnar Lárus Hjálmarsson
Höfundar þessa kerfis fóru um heiminn
og hældust um af því að kvótakerfið
væri undirstaða hins íslenska efna-
hagsundurs – sem reyndist svo efnahagsviðundur.
Þessi velmegun var öll óveidd, byggð á væntingum
og áformum –blásin út, rétt eins og verðið fyrir
aðganginn að hinum óveidda fiski.
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
Fjárfestum í eigin landi
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins efna til fundar um opinberar fjárfestingar í ljósi
ramma- og samgönguáætlana og nýs Landspítala
Miðvikudaginn 25. apríl kl 8:30 - 10.00 á Hilton Reykjavík Nordica
Opinberar fjárfestingar og atvinnusköpun
Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis
Rammaáætlun
Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá SI
Nýr Landspítali
Gunnar Svavarsson, form. byggingarnefndar um nýjan Landspítala
Opinberar fjárfestingar og lífeyrissjóðirnir
Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í Gildi og framkvæmdastjóri hjá Eimskip
Afstaða þingflokka til verkefnanna
Sjálfstæðisflokkur, Bjarni Benediktsson
Framsókn, Sigurður Ingi Jóhannesson
Samfylking, Magnús Orri Schram
Vinstri græn, Björn Valur Gíslason
Panelumræður
Fundarstjóri: Sigþór Sigurðsson,
formaður Mannvirkis
Skráning á www.si.is
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Hilton Reykjavík
Nordica miðvikudagurinn 25. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á
skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni,
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi
og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum
stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum
standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast
stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Reykjavík 10. apríl 2012,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 012
www.gildi.is
Barlómur RE