Fréttablaðið - 23.04.2012, Síða 13

Fréttablaðið - 23.04.2012, Síða 13
MÁNUDAGUR 23. apríl 2012 13 Formaður samtaka afskrifta-framleiðenda segir að verði kvótafrumvarp ríkisstjórnar- innar að veruleika í núverandi mynd muni rigna blóði af himn- um og engisprettufaraldur eyða landinu. Framkvæmdastjóri Aflandseyjavinnslunnar segir dökkar horfur framundan ef kvótafrumvarp ríkisstjórnar- innar verður samþykkt óbreytt; hann segist sjá dýr stíga upp af hafinu, það hafi tíu horn og sjö höfuð … Fréttatímarnir hjá RÚV og Stöð 2 eru að verða eins og Opinberunarbók Jóhannesar. Þar birtist á hverjum degi í við- tali nýr spámaður með æði í augum og opnar nýtt innsigli með nýjum plágum, sem hann segist sjá. Birtingarmynd frekjunnar Orðbragðið er ofboðslegt. Breytingum á kvótakerfinu er líkt við versta hrylling 20. aldarinnar: Helförina, Gúlagið … Þegar Friðrik J. Arngríms- son fær ekki sitt fram undan- bragðalaust er honum svo brugðið að hann líkir því við ofsóknir nasista á hendur gyð- ingum. Svona fer fyrir þeim sem alltaf fá allt. Svona leikur frekjan mennina. Þetta er nýjasta útgerðin og sú umsvifamesta til þessa: Barlómur RE – mannskapurinn um borð eru kunnar aflaklær við mótun almenningsálits, almannatenglar, bankamenn, endurskoðendur, stjórnmála- menn, hagfræðingar, lögmenn og allir ráðnir upp á hlut – gerð- ur út til að hindra með öllum ráðum að gerðar verði nokkrar breytingar á því fyrirkomulagi sem reynst hefur svo afdrifa- ríkt fyrir íslenskt samfélag og mótað það meira en annað. Með kvótakerfinu fylltist allt af peningum sem voru ekki til, frá mönnum sem höfðu aflað þeirra með því að selja það sem þeir áttu ekki: óveiddan fisk. Undirstaða efnahagsundursins Og þeir sem fjárfest höfðu í áformum um að veiða fisk – kvóta – flýttu sér að breyta þeim áformum í verðmæti, með því að veðsetja kvótann, fá peninga í hendur og kaupa sér hús í vesturbænum í Reykjavík, brjóta niður hús í vesturbæn- um í Reykjavík, kaupa bílaum- boð, enskt fótboltalið, þyrlu, bara eitthvað nógu fáránlegt til að tjá rótgróna fyrirlitningu á þessum auði… Menn sem við höfum horft upp á spreðandi í kringum sig stórkostlegum fjár- hæðum koma nú hver af öðrum fram blásvartir í fram af heift og segjast ekki vera aflögu færir með að greiða gjald til samfélagsins af auðlind sem á þó að heita í eigu þjóðarinnar. Þetta var mjög þróað. Höf- undar þessa kerfis fóru um heiminn og hældust um af því að kvótakerfið væri undirstaða hins íslenska efnahagsundurs – sem reyndist svo efnahagsvið- undur. Þessi velmegun var öll óveidd, byggð á væntingum og áformum –blásin út, rétt eins og verðið fyrir aðganginn að hinum óveidda fiski. Með öðrum orðum: ekki til. Glópagull. Hins vegar urðu til menn sem héldu að helsta hlut- verk athafnamanna í samfé- laginu væri að græða peninga til að græða peninga – og þeir allra gáfuðustu fundu upp þá aðferð að tapa peningum til að græða peninga. En sá sem græðir endalaust peninga græðir ekkert á því – nema pen- inga. Þeir klikkuðu Samtök atvinnulífsins héldu vakningarsamkomu um daginn þar sem einhver hafði fundið upp á því að bera núverandi gjaldeyrishöft saman við bjór- bannið um árið. Það vitnar um athyglisverð hugrenningar- tengsl. Við afnám ýmissa hafta og óheft flæði fjármagns milli landa má nefnilega segja að íslenskir fjármálaspekúlantar hafi einmitt dottið í það; vandi þjóðarinnar er ekki síst til kom- inn af „ofneyslu“ þessara aðila á erlendum gjaldeyri. Erlendar skuldir þjóðarinnar urðu glóru- lausar og vitnuðu um einhvers konar æði – ekki ölæði og úr urðu ekki auðævi heldur var þetta allt einhvers konar auð- æði. Og nú eru þeir hjá SA sýni- lega orðnir þurrbrjósta. En þeir klikkuðu. Íslenskir kapítalistar réðu ekki við kapít- alismann. Þeir stóðu ekki undir því að búa við viðskiptafrelsi. Þeir fyrirgerðu rétti sínum til þess að ná eyrum okkar með sín úrræði. Því miður. Við höfum fengið nóg af auðæðistilburð- um þeirra. Og því höfum við nú ríkisstjórn sem leitast við að reisa íslenskt samfélag úr þeim rústum sem þeir skildu eftir sig. Eflaust gerir sú ríkis- stjórn eitt og annað af veikum mætti enda nýtur hún ekki einu sinni trausts innan eigin raða. En þetta er ríkisstjórn sem við getum gagnrýnt án þess að eiga á hættu atvinnumissi. Það er nokkurs vert. Sjálfstæðismenn tala eins og það jafngildi vist í Gúlag- inu að fá ekki lengur að græða peninga á hvaða hátt sem er. Allt í einu getur maður ekki rekið skóla og greitt sjálfum sér milljóna-arð þegar ríkið stendur undir kennaralaunum og skólagjöld eru himinhá. Allt í einu getur maður ekki fegrað afkomu fyrirtækja í ársreikn- ingum með fulltingi endurskoð- unarfyrirtækja með virðu- leg útlensk nöfn. Allt í einu getur maður ekki stungið arði undan í eignarhaldsfélögum í erlendum skattaskjólum. Það er ekki kommúnismi. Það er ekki alræði og ekki óþolandi skerð- ing á frelsi einstaklingsins. Það er einfaldega verið að reyna að koma á siðuðu samfélagi. Kannski hætta einhverjir útgerðarmenn í fússi og fara með allt sitt heim til Tortóla. Jæja. En fiskurinn óveiddi í sjónum: hann fer ekki með þeim. Hann verður hér áfram og vonandi undirstaða fyrir gróandi þjóðlíf. AF NETINU Og Muamba þakkar... „Það er ánægjulegt að heyra hversu vel leikmanni enska liðsins Bolton gengur að ná heilsu aftur. Hann fékk hjartaáfall í miðjum leik við Tottenham fyrir nokkru. Fullt af fólk rauk til og lagði alla sína kunnáttu og tækni í að halda í honum lífinu og koma honum á sjúkrahús þar sem hann fékk aðstoð færustu lækna. Ég veit ekki hversu margir komu að því að bjarga lífi hans, bara á vellinum var talsverður fjöldi. En hverjum þakkar kappinn? Þeim læknum og sjúkraliðum sem héldu í honum lífinu. Nei, hann þakkar guði.” blog.eyjan.is/valgardur/ Valgarður Guðjónsson Eðlilegt kannski að komast aftur í tísku „Ég horfði á fyrsta þáttinn af sjónvarpsþættinum Girls, sem hefur verið lýst sem “Sex in the city – the next generation”. Þetta er ágætis stöff og frábærast að fólkið í þættinum er ekki fótósjoppað og alveg með hold utan á sér og svona. Eðlilegt. Ekki skinkað. Þetta gefur smá von um að eðlilegt sé að verða inn.” http://drgunni.wordpress.com/ Gunnar Lárus Hjálmarsson Höfundar þessa kerfis fóru um heiminn og hældust um af því að kvótakerfið væri undirstaða hins íslenska efna- hagsundurs – sem reyndist svo efnahagsviðundur. Þessi velmegun var öll óveidd, byggð á væntingum og áformum –blásin út, rétt eins og verðið fyrir aðganginn að hinum óveidda fiski. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Fjárfestum í eigin landi Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins efna til fundar um opinberar fjárfestingar í ljósi ramma- og samgönguáætlana og nýs Landspítala Miðvikudaginn 25. apríl kl 8:30 - 10.00 á Hilton Reykjavík Nordica Opinberar fjárfestingar og atvinnusköpun Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis Rammaáætlun Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá SI Nýr Landspítali Gunnar Svavarsson, form. byggingarnefndar um nýjan Landspítala Opinberar fjárfestingar og lífeyrissjóðirnir Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í Gildi og framkvæmdastjóri hjá Eimskip Afstaða þingflokka til verkefnanna Sjálfstæðisflokkur, Bjarni Benediktsson Framsókn, Sigurður Ingi Jóhannesson Samfylking, Magnús Orri Schram Vinstri græn, Björn Valur Gíslason Panelumræður Fundarstjóri: Sigþór Sigurðsson, formaður Mannvirkis Skráning á www.si.is Gildi - lífeyrissjóður Sætúni 1 105 Reykjavík Sími 515 4700 www.gildi.is gildi@gildi.is Á R S F U N D U R Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudagurinn 25. apríl kl. 17.00. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni, Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Reykjavík 10. apríl 2012, lífeyrissjóður Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. 2 012 www.gildi.is Barlómur RE

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.