Fréttablaðið - 23.04.2012, Side 38

Fréttablaðið - 23.04.2012, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGLyftarar MÁNUDAGUR 23. APRÍL 20124 Kraftvélar selja Toyota dísel- og rafmagnslyftara ásamt vöru-húsatækjum frá BT, en BT er í fullri eigu Toyota. Dísellyftararnir eru frá einu og hálfu tonni upp í átta tonn og rafmagnslyftararnir frá einu tonni upp í átta og hálft. „Undanfarin ár hafa bæði Toyota lyftarar og BT vöruhúsa- tækin átt mikilli velgengni að fagna hér á landi og höfum við verið að þjónusta mörg stærstu fyrirtæki landsins; Eim- skip, Samskip, Aðföng, Garra, Vífilfell, MS ásamt fjöldanum öllum af sjávar- útvegsfyrirtækjum,“ segir Viktor Karl Ævarsson sölustjóri Kraftvéla. Sérvarðir fyrir sjávarútveg Kraftvélar bjóða upp á sérvarða lyftara fyrir sjávarútveg þar sem meira álag er á lyfturum í sjávarútvegi en í vöruhús- um. „Þessir lyftarar koma sérvarðir beint frá verksmiðju. Þá eru allir tjakk- ar og mótorar sérvarðir og allur raf- búnaður með hlífum svo að salt eða bleyta komist ekki að þeim. „Maður hefur séð ársgamla lyftara sem líta út eins og þeir séu tíu ára vegna salttær- ingar. Þetta er því hlutur sem þarf að huga að áður en fest eru kaup á lyftara,“ segir Viktor stoltur af þjónustu Toyota. Öflug þjónusta Þjónustuverkstæði Kraftvéla er með tólf starfsmenn og sex viðgerðarbíla, þar af tvo fullbúna, sem þjónusta alla þeirra vöruflokka ásamt því að reka varahlutaverslun. „Við höldum lager með öllum helstu varahlutum en ef varahluturinn er ekki til þá getum við útvegað hann næsta dag sé pantað fyrir klukkan 14.“ Þjónustuverkstæði Kraft- véla þjónustar einnig aðrar tegundir lyftara, allt eftir óskum viðskiptavina. Innbyggð bilanatölva Allir Toyota lyftarar eru framleiddir með innbyggðri bilanatölvu sem að- greinir Toyota frá flestum öðrum gerð- um lyftara. „Ef það bilar til dæmis lyft- ari á Austurlandi þá getum við veitt nauðsynlega aðstoð símleiðis; inn- byggða tölvan finnur bilanakóðann, við flettum honum upp og sjáum hvað er bilað, hvað þarf að laga eða panta og málinu er reddað á mettíma. Ef ekki væri fyrir þessa innbyggðu tölvu þyrfti að senda mann á staðinn með tölvu til að finna bilunina. Það segir sig sjálft að það er töluvert dýrari og tímafrek- ari kostur.“ Kraftvélar reka líka full- búna viðgerðarbíla og senda menn á staðinn ef þörf er á, en í langflestum tilfellum er lyftarinn lagaður á staðn- um hvort sem það sé af Kraftvélum eða eigandanum sjálfum. Kraftvélar eru einnig með umboðsmenn víðs vegar um landið sem sinna viðgerðarþjón- ustu fyrir öll þeirra vörumerki. Aukin ábyrgð Toyota og BT bjóða gegn vægu gjaldi upp á tveggja ára verksmiðjuábyrgð sem er meira en gengur og gerist en alla jafna er ekki veitt nema ársábyrgð. „Eimskip var til að mynda að kaupa af okkur fimm lyftara í síðasta mánuði og keypti tveggja ára ábyrgð á þá alla.“ Á þessu ári fagna Kraftvélar tutt- ugu ára afmæli og segir Viktor að þeir horfi bjartsýnir fram á veginn, stoltir af Toyota, f laggskipi Kraftvéla. Það er kraftur í Kraftvélum Toyota hefur verið stærsti lyftaraframleiðandi í heimi síðastliðin níu ár. Krafvélar eru með umboð fyrir þessa gæðalyftara og bjóða tveggja ára verksmiðjuábyrgð ásamt öflugu þjónustuverkstæði og varahlutaverslun að Dalvegi 6-8. Viktor Karl Ævarsson, sölustjóri Kraftvéla, segir Toyota lyftara og BT vöruhúsatæki hafa átt mikilli velgengni að fagna hér á landi. MYND/VALLI Kraftvélar selja Toyota dísel- og rafmagnslyftara ásamt vöruhúsatækjum frá BT.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.