Fréttablaðið - 23.04.2012, Síða 38
KYNNING − AUGLÝSINGLyftarar MÁNUDAGUR 23. APRÍL 20124
Kraftvélar selja Toyota dísel- og rafmagnslyftara ásamt vöru-húsatækjum frá BT, en BT er í
fullri eigu Toyota. Dísellyftararnir eru
frá einu og hálfu tonni upp í átta tonn
og rafmagnslyftararnir frá einu tonni
upp í átta og hálft. „Undanfarin ár hafa
bæði Toyota lyftarar og BT vöruhúsa-
tækin átt mikilli velgengni að fagna hér
á landi og höfum við verið að þjónusta
mörg stærstu fyrirtæki landsins; Eim-
skip, Samskip, Aðföng, Garra, Vífilfell,
MS ásamt fjöldanum öllum af sjávar-
útvegsfyrirtækjum,“ segir Viktor Karl
Ævarsson sölustjóri Kraftvéla.
Sérvarðir fyrir sjávarútveg
Kraftvélar bjóða upp á sérvarða lyftara
fyrir sjávarútveg þar sem meira álag er
á lyfturum í sjávarútvegi en í vöruhús-
um. „Þessir lyftarar koma sérvarðir
beint frá verksmiðju. Þá eru allir tjakk-
ar og mótorar sérvarðir og allur raf-
búnaður með hlífum svo að salt eða
bleyta komist ekki að þeim. „Maður
hefur séð ársgamla lyftara sem líta út
eins og þeir séu tíu ára vegna salttær-
ingar. Þetta er því hlutur sem þarf að
huga að áður en fest eru kaup á lyftara,“
segir Viktor stoltur af þjónustu Toyota.
Öflug þjónusta
Þjónustuverkstæði Kraftvéla er með
tólf starfsmenn og sex viðgerðarbíla,
þar af tvo fullbúna, sem þjónusta alla
þeirra vöruflokka ásamt því að reka
varahlutaverslun. „Við höldum lager
með öllum helstu varahlutum en ef
varahluturinn er ekki til þá getum við
útvegað hann næsta dag sé pantað fyrir
klukkan 14.“ Þjónustuverkstæði Kraft-
véla þjónustar einnig aðrar tegundir
lyftara, allt eftir óskum viðskiptavina.
Innbyggð bilanatölva
Allir Toyota lyftarar eru framleiddir
með innbyggðri bilanatölvu sem að-
greinir Toyota frá flestum öðrum gerð-
um lyftara. „Ef það bilar til dæmis lyft-
ari á Austurlandi þá getum við veitt
nauðsynlega aðstoð símleiðis; inn-
byggða tölvan finnur bilanakóðann,
við flettum honum upp og sjáum hvað
er bilað, hvað þarf að laga eða panta og
málinu er reddað á mettíma. Ef ekki
væri fyrir þessa innbyggðu tölvu þyrfti
að senda mann á staðinn með tölvu til
að finna bilunina. Það segir sig sjálft
að það er töluvert dýrari og tímafrek-
ari kostur.“ Kraftvélar reka líka full-
búna viðgerðarbíla og senda menn á
staðinn ef þörf er á, en í langflestum
tilfellum er lyftarinn lagaður á staðn-
um hvort sem það sé af Kraftvélum eða
eigandanum sjálfum. Kraftvélar eru
einnig með umboðsmenn víðs vegar
um landið sem sinna viðgerðarþjón-
ustu fyrir öll þeirra vörumerki.
Aukin ábyrgð
Toyota og BT bjóða gegn vægu gjaldi
upp á tveggja ára verksmiðjuábyrgð
sem er meira en gengur og gerist en
alla jafna er ekki veitt nema ársábyrgð.
„Eimskip var til að mynda að kaupa af
okkur fimm lyftara í síðasta mánuði og
keypti tveggja ára ábyrgð á þá alla.“
Á þessu ári fagna Kraftvélar tutt-
ugu ára afmæli og segir Viktor að þeir
horfi bjartsýnir fram á veginn, stoltir af
Toyota, f laggskipi Kraftvéla.
Það er kraftur í Kraftvélum
Toyota hefur verið stærsti lyftaraframleiðandi í heimi síðastliðin níu ár. Krafvélar eru með umboð fyrir þessa gæðalyftara og bjóða tveggja ára
verksmiðjuábyrgð ásamt öflugu þjónustuverkstæði og varahlutaverslun að Dalvegi 6-8.
Viktor Karl Ævarsson, sölustjóri Kraftvéla, segir Toyota lyftara og BT
vöruhúsatæki hafa átt mikilli velgengni að fagna hér á landi. MYND/VALLI
Kraftvélar selja Toyota dísel-
og rafmagnslyftara ásamt
vöruhúsatækjum frá BT.