Fréttablaðið - 23.04.2012, Page 50
23. apríl 2012 MÁNUDAGUR26
...alltaf opið!
Í 10–11 finnurðu
frábært vöruúrval.
Þú færð uppáhalds
Sómasamlokuna þína
í næstu 10–11 verslun.
Ljómandi
góðar Sóma-
samlokur!
Enska úrvalsdeildin:
MAN. UTD - EVERTON 4-4
0-1 Nikica Jelavic (32.), 1-1 Wayne Rooney (41.),
2-1 Danny Welbeck (57.), 3-1 Nani (60.), 3-2
Marouane Fellaini (67.), 4-2 Wayne Rooney (68.),
4-3 Nikica Jelavic (83.), 4-4 Steven Pienaar (85.).
LIVERPOOL - WBA 0-1
0-1 Peter Odemwingie (75.)
WOLVES - MAN. CITY 0-2
0-1 Sergio Aguero (26.), 0-2 Samir Nasri (74.)
BLACKBURN ROVERS - NORWICH CITY 2-0
1-0 Mauro Formica (40.), 2-0 David Hoilett (48.).
BOLTON WANDERERS - SWANSEA CITY 1-1
0-1 Scott Sinclair (5.), 1-1 Chris Eagles (13.).
FULHAM - WIGAN ATHLETIC 2-1
0-1 Emmerson Boyce (56.), 1-1 Pavel Pogrebnyak
(57.), 2-1 Philippe Senderos (88.).
NEWCASTLE UNITED - STOKE CITY 3-0
1-0 Yohan Cabaye (13.), 2-0 Papiss Cisse (17.),
3-0 Yohan Cabaye (56.).
QPR - TOTTENHAM HOTSPUR 1-0
1-0 Adel Taarabt (23.)
ARSENAL - CHELSEA 0-0
ASTON VILLA - SUNDERLAND 0-0
STAÐAN:
Man. United 35 26 5 4 86-32 83
Man. City 35 25 5 5 87-27 80
Arsenal 35 20 5 10 67-43 65
Newcastle 34 18 8 8 53-42 62
Tottenham 34 17 8 9 57-39 59
Chelsea 34 16 10 8 56-38 58
Everton 34 13 9 12 42-38 48
Liverpool 34 12 10 12 40-37 46
Fulham 34 12 10 12 45-44 46
WBA 35 13 6 16 41-47 45
Sunderland 35 11 11 13 42-41 44
Swansea City 35 11 10 14 39-45 43
Norwich City 35 11 10 14 47-60 43
Stoke City 34 11 9 14 32-48 42
Aston Villa 34 7 15 12 35-48 36
QPR 35 9 7 19 39-57 34
Wigan 35 8 10 17 34-60 34
Blackburn 35 8 7 20 47-73 31
Bolton 33 9 3 21 37-66 30
Wolves 35 5 8 22 34-75 23
* Wolves er fallið úr deildinni. Reading er
búið að tryggja sér sæti í úrvalsdeild næsta
vetur.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Það verður allt undir eftir
viku er Man. City tekur á móti
Man. Utd. City er aðeins þrem
stigum á eftir United og kemst
á toppinn með sigri. Aldrei áður
hefur eins mikið verið undir í
þessum magnaða nágrannaslag.
Manchester United er þekkt
fyrir að snúa töpuðum leikjum sér
í hag en ekki eins vant því að sitja
hinum megin við borðið.
Það fengu þeir þó að reyna í
gær er liðið missti niður 4-2 for-
skot. United var mjög nálægt því
að komast í 5-2 er það átti skot í
stöng en eftir það hófst ótrúleg
endurkoma Everton.
„Við erum búnir að gefa Man.
City frumkvæðið,“ sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Man. Utd, en
liðin mætast á heimavelli City
um næstu helgi. Vinni City þann
leik kemst það á toppinn enda með
mun betra markahlutfall en Uni-
ted.
„Leikurinn á Etihad mun skera
úr um úrslitin í deildinni. Það
verður nágrannaslagur af nýrri
stærðargráðu og líklega sá stærsti
í sögu félaganna.“
Ferguson var eins og flestir á
Old Trafford algjörlega steinrunn-
inn yfir klúðri United-liðsins.
„Við gáfum leikinn frá okkur.
Þetta var hreinasta hörmung.
Varnarleikurinn var ömurlegur
og við gáfum þeim auðveld mörk.
Það er sorglegt því sóknarleikur-
inn hjá okkur var frábær.“
Það var enginn glæsibragur á
leik City gegn Wolves í gær en sig-
urinn samt aldrei í hættu.
Stjóri City, Roberto Mancini,
hefur verið duglegur að halda
því á lofti að Man. Utd sé búið að
tryggja sér titilinn og hann hélt
áfram að gera lítið úr titilmögu-
leikum síns liðs í gær.
„Ég er ánægður með formið
á liðinu en við eigum þrjá erfiða
leiki eftir. Þetta gæti ekki orðið
erfiðara. Við eigum möguleika
en Man. Utd stendur betur að
vígi en við. United er þrem stig-
um á undan okkur og á auðveld-
ari leiki eftir,“ sagði Mancini sem
var ánægður með sigurinn en ekki
leikinn. henry@frettabladid.is
Allt undir í einum leik
Man. Utd og Man. City munu spila nánast hreinan úrslitaleik um enska meist-
aratitilinn næsta mánudag. United bauð City inn í titilbaráttuna með ótrúlegu
klúðri gegn Everton. City lagði Úlfana og sendi þá um leið niður í B-deildina.
RÁÐALAUSIR Rio Ferdinand og David de Gea eru hér svekktir á svip rétt eins og
stuðningsmaður United fyrir aftan markið. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Real Madrid á Spánar-
meistaratitilinn næsta vísan eftir
1-2 sigur á Barcelona í El Clásico.
Það var Cristiano Ronaldo sem
skoraði sigurmarkið í leiknum.
Sami Khedira kom Real yfir
í leiknum en Alexis Sanchez
jafnaði. Skömmu síðar kláraði
Ronaldo leikinn.
Munurinn á liðunum er nú sjö
stig og Pep Guardiola, þjálfari
Barcelona, játaði sig sigraðan
eftir leikinn.
„Ég vil óska Real Madrid til
hamingju með sigurinn í leikn-
um sem og með deildarmeist-
aratitilinn. Þetta er búið,“ sagði
Guardiola.
„Ég er samt stoltur af mínu liði
og myndi ekki skipta á neinum
leikmanna minna. Þessir strákar
hafa lent í mótlæti áður og sýnt
að þeir geta risið upp. Við verðum
líka að gera það enda bíður okkar
afar mikilvægur leikur gegn
Chelsea í Meistaradeildinni.“ - hbg
Real Madrid vann El Clásico:
Pep játar sig
sigraðan
UPPREIST ÆRU Ronaldo hefur oftast
verið slakur í El Clásico en steig upp að
þessu sinni. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES