Fréttablaðið - 30.04.2012, Síða 13

Fréttablaðið - 30.04.2012, Síða 13
MÁNUDAGUR 30. apríl 2012 13 BERJUMST! 1. MAÍ 2012 Í REYKJAVÍK VINNA ER VELFERÐ ASÍ BSRB BHM KÍ Safnast saman á horni Snorrabrautar og Laugavegs kl. 13.00. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika nokkur lög. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Gengið niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Ræðumenn flytja örræður meðan gangan stendur yfir. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10. Útifundi lýkur kl. 15.00. Þegar ég horfði á 79 af Stöðinni um daginn fór ég að hugsa um Ísland og Ameríku, Ísland og nútímann – Ísland í heiminum og þetta allt saman. Upphaf alls ófarnaðar í myndinni er ástarsam- band Gógóar við Kanann, sem hún getur ekki hætt að hitta þótt hún eigi kost á myndarlegum, heiðar- legum, blíðlyndum – já yndisleg- um – íslenskum karlmanni: þetta var íslenskum karlmönnum ger- samlega óskiljanleg ráðgáta: hvað dregur þær að þessum Könum þegar þær eiga kost á mér? Aðdráttaraflið Það er nú það. Aðdráttaraflið sem Kaninn hafði á þessum árum fyrir íslenska þjóð. Kaninn tákn- aði hið forboðna og ljúfa, hann var lágkúran sjálf í allri sinni dýrð, hinn spennandi og takt- fasti nútími þar sem vegir liggja til allra átta, hinn ómótstæðilegi sálnagleypir, og hver sem honum gengi á hönd væri þar með glötuð sál sem stungin væri svefnþorni efnishyggjunnar, hugsaði bara um bíla og ísskápa og tyggigúmí en gleymdi eddukvæðunum og þjóðsögunum, markaskránum, rímnaháttunum og fimm gangteg- undum íslenska hestsins – öllu því sem amma kvað og huldan spann. Sveik. Kaninn táknaði peninga og velsæld – stæl – framfarir, hann var handhafi framtíðarinnar. Sóley Sólufegri situr við hafið á kóralskóm og elskhuginn blund- ar alla stund – þjóðin lét fallerast og æ síðan hefur sektarkenndin verið djúpt í þjóðarsálinni. Það er sektarkennd yfir því að hafa yfirgefið dalinn fagra og þorpið góða, iðju þarfa til sjós og lands og rétta notkun orðatiltækja en haldið suður á vit braskara, bíla- prangs og rangra beyginga. Eng- inn ræður för. Þetta er íslenski blúsinn – 79 af Stöðinni fjallar um hann eins og fleiri bækur Indriða G. Þorsteins- sonar. Þó að Kaninn sé baklægur í sögunni fer ekki milli mála að hann er sjálfur örlagavaldurinn. Þessi blús grasserar enn í menn- ingu okkar og sögum en ein aðal- persónan er hins vegar búin að skrá sig út úr þessari sögu, sagði bless og var farin til mið-austur- landa að sinna erindum fyrir Ísraelsmenn og Halliburton. Og Íslendingar standa hálfhvumsa enn og finnst eins og sagan hafi ekki alveg verið búin – forsmáð- ir eftir að hafa fórnað svo miklu fyrir þetta samband. Klaus kemur í heimsókn Þetta rifjaðist allt upp í vikunni þegar birtar voru niðurstöður könnunar sem gerð var á við- horfum Íslendinga til aðildar að Evrópusambandinu. Þar reynd- ust fimmtíu og fjögur prósent svarenda andvíg aðild. Að vísu eru ekki öll kurl komin til grafar – þjóðin á eftir að sjá samning og viðhorf kunna að breytast þá, sem er auðvitað skýringin á því hvers vegna andstæðingar Evrópusam- bandsins berjast um á hæl og hnakka að hindra að slíkur samn- ingur verði kláraður, eða reyna þá að minnsta kosti – þeir sem eru í ríkisstjórn – að sjá til þess að hann verði sem allra óhagstæðast- ur fyrir Ísland. Þetta snýst vissulega um lífs- kjör – um vöruverð og vöruúrval, gjaldmiðil, rekstrarskilyrði – og líka yfirráð og vald (íslenska valdastéttin er óvenju einbeitt í að halda öllum yfirráðum sínum). Þetta snýst um aðgang að mörk- uðum, viðskipti og þar fram eftir götunum – en er ekki eitthvað fleira sem hér kemur til og mótar viðhorf Íslendinga til aðildar? Eitthvað svolítið óljóst? Eitthvað huglægt? Eitthvert rótgróið við- horf Íslendinga til Evrópu … Ef við prófum sögu eins og 79 af Stöðinni í nútímanum og reynum að kippa Kananum út úr frásögn- inni og setja í staðinn fulltrúa Evrópusambandsins, hvað gerist þá? Hann gæti heitið Klaus og verið frá Wiesbaden í Þýskalandi eða Jacques og verið frá Belgíu; Jukka Pekka frá Finnlandi, How- ard frá Sheffield … Ég veit það ekki hvernig sem við reynum og hvern sem við setjum þarna inn í þennan frásagnarlið þá gengur þetta ekki upp. Gógó fellur ekki fyrir neinum þeirra. Maður sér hana ekki fyrir sér að laumast til að taka á móti einhverjum Evr- ópu-lúða vegna þess að allt sem hann stendur fyrir sé svo ómót- stæðilegt. Hvað nákvæmlega? Evrovision-keppnin? Aðgangur að fiskmörkuðum? Makríldeilan? Voruð þið búin að læra heima? Evrópusambandið er ekki sexí. Það er útlendingurinn mót- stæðilegi. Tengsl við það jafn- gilda ekki fyrirheitum um for- boðnar ástir við hættulegan og heillandi mótspilara heldur er það meira eins og að lenda hjá umhyggjusamri frænku sem lítur inn til okkar og spyr: átt- irðu ekki eftir að læra heima og ertu ekki búin að vera svolítið lengi í tölvunni? Það minnir okkur á að við eigum eftir að innleiða reglugerð númer átján samkvæmt tilskipun um innleið- ingaraðlögunarréttindi sáttmála eittþúsund. Það áminnir okkur. Það er sífellt með nefið ofan í dótinu okkar, tilætlunarsamt og velviljað. Og fullorðin. Evrópusamband- ið er fullorðins. Það er banda- lag sjálfstæðra ríkja sem ákveð- ið hafa að koma sér saman um hlutina í stað þess að þjösnast áfram og grípa sitt hvert og eitt. Þar búa þjóðir sem hafa sams konar sjálfsmynd og fullorðið fólk sem binst samtökum um til- tekna hluti og myndar þannig samfélag. Íslendingar hugsa enn eins og gömul nýlenduþjóð, kenjóttur krakki, fullur mótþróa og sjálfstæðislöngunar en líka þarfar fyrir að láta sjá um sig og fyrir sér. Öldum saman var landið dönsk nýlenda og eftir tuttugu og fimm ára fullveld- istíð með konungssambandi við Danmörku var stofnað lýðveldi í skjóli Bandaríkjamanna sem voru þessu lýðveldi bakhjarl allar götur fram yfir síðustu aldamót. Kaninn fór árið 2006. Hrunið varð árið 2008. Árið á milli var 2007. Eina árið í Íslandssögunni sem er orðið hugtak. Útlendingurinn mótstæðilegi Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG AF NETINU Formaður hæfir flokki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hæfir öfgaflokki Framsóknar. Rökstyður hvorki né sundurliðar gaspur sitt um, að ríkisstjórnin hafi unnið meira tjón en sem nemur hruninu. Þetta er í stíl við aðrar upphrópanir hans og öfgaliðs hans á Alþingi síðustu misserin. Hratt hefur flokkurinn verið að öfgast að hætti le Pen í Frakklandi. Gælir við þjóðrembu og daður við þá, sem Bandaríkjamenn kalla „hvíta ruslið”. Áður var flokkurinn tæki nokkurra græðgiskarla gegn almenningi og nú þykist hann þar á ofan gæta þjóðararfsins. Þú þarft ekki að elska ríkisstjórnina til að sjá, að SDG er lýðskrumari frá innsta grunni. jonas.is Jónas Kristjánsson Ruslflokkur rammaáætl- unar Þegar litið er á það sem ætlunin er að gera á Reykjanes- skaganum í virkj- anamálum blasir við að virkjanahug- myndirnar miða að því að gera skagann að samfelldu neti virkjanamannvirkja. Njörva á skagann niður í borholur, stöðvarhús, skiljuhús, gufuleiðslur, háspennumöstur og virkjanavegi og gera hann að allsherjar Hellis- heiðarvirkjun. Röðin nær allt frá Reykjanestá til Þingvallavatns og gera á Reykja- nesfólkvang að virkjanasvæði. blog.is/omarragnarsson Ómar Ragnarsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.